Heimili og skóli - 01.08.1961, Síða 47

Heimili og skóli - 01.08.1961, Síða 47
HEIMILI OG SKOLI 91 Eftir ANN LANDERS. Á bak við vandamálið standa oft- ast nokkrir óskynsamir foreldrar, sem hyggjast kenna börnum sínum að ganga áður en þau læna að skríða. . . . Vinsæll bréfakassarit- stjóri gefur hér nokkur góð ráð. ... Kæra Anna Landers! Þér hljótið að vera piparmey, líklega með æðakölk- un eða eitthvað þess háttar. Við erum tvær 13 ára stúlkur. Okkur hafa þótt ráðleggingar yðar góðar, en nú þykir okkur það ekki lengur. — Þér skrifið, að stúlkur á okkar aldri eigi ekki að sækja dansleiki. Hvað ættu þær annars að gera? Aka um göturnar í barna- vagni? Síðan í fyrra höfum við verið á mörgum dansleikjum, og önnur okkar hefur eignazt vin, sem hún er alltaf með. Okkur þykir sem þér séuð þröng- sýn, gömu'I kerling. Við erurn engin pelabörn. Við erum nefnilega báðar vel uppaldar og vitum hvernig við eigum að hegða okkur. Við þorum að veðja, að þér þorið ekki að birta þetta bréf. (undirskrift): Tvær, sem fyrirlíta Önnu Landers. Ég birti bréfið og sagði þessum ungu bréfriturum, að ég kynni mjög vel að meta hæversku þeirra, sem bæri vott um gott uppeldi. Þessi bréfaskipti leiddu af sér mörg önnur bréf frá 13 ára unglingum (Teenagera, táning- um) og hundruð af bréfum frá mæðr- um, sem sögðu mér, að ég skyldi gera hreint fyrir mínum eigin bæjardyrum, þær gætu alið dætur sínar upp án minnar hjálpar. Ein móðirin skrifaði: „Þér getið þó ekki neitað því, að allar aðstæður eru aðrar en áður fyrr, þegar þér voruð á unglingsaldri. í dag er 13 ára stúlka reynd, ung kona. Dóttir mín 13 ára veit meira en ég, þegar ég var 19 ára! Þessi móðir hefur nokkuð til síns máls. Aðstæðurnar eru sannarlega aðrar. I dag lenda miklu fleiri drengir og stúlkur í árekstrum, og verri á- rekstrum miklu fyrr en áður, og það kemur ekki nema að litlu leyti til af því, að þeir eru íleiri. Það er ekki hægt að fullyrða neitt um það, en á bak við þá afstöðu, sem ríkir í dag, liggur það sjónarmið, að við verðum að „njóta lífsins“ á meðan við höfum það, því að það sé alls ekki víst, að við lifum morgundaginn. Og allt of margir unglingar líta svo á, að „njóta Mfsins" sé sama og ótímabær áhugi fyrir hinu kyninu, tóbaksreyk- ingar, drykkjuskapur, jafnvel kynferð- isleg samskipti. Afleiðingin verður svo ótímabær hjónabönd og — hjónaskiln- aður. — Þegar ég var í Rússlandi árið 1939, spurði ég rektor einn, sem var kona, hvernig henni tækist að gera skólameyjar sínar áhugasamar fyrir náminu. (í Sovétríkjunum eru það konurnar, sem hafa hlotið 75% af öll- um doktorsnafnbótum). í okkar

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.