Heimili og skóli - 01.03.1973, Page 22

Heimili og skóli - 01.03.1973, Page 22
viðhaldið stefnumörkun, sem í rauninni var grundvölluð þegar með setningu fræðslu- laga árið 1907. Frv. það, sem hér liggur fyrir, boðar vissulega enga byltingu í skólamálum. Menn þurfa ekki að óttast það þess vegna. Það er miklu minni breyting en margir vilja vera láta, þótt lögfest sé 9 ára skólaskylda og árlegur skólatími lengdur að auki. Hér er miklu fremur um stigsmun að ræða en eðlisbreytingu. Það getur ekki talizt til byltingar, þótt stefnt sé að því á 10 árum að jafna sem verða má skólagöngu allra barna og unglinga í landinu og færa starfs- aðstöðu skólanna til nútímahorfs. Eg held, að það væri í miklu ósamræmi við metnað Islendinga á öðrum sviðum þjóðlífsins, ef við settum okkur lágt markmið í skólamál- um og þá sérstaklega hvað varðar skyldu- námið. Hitt er svo annað mál, að við verð- um án efa að halda vel á spöðunum, ef okk- ur á að auðnast að gera stefnumið grunn- skólafrv. að veruleika í ýmsum greinum. Það kostar ekki einasta mikið fjármagn, heldur krefst það fyrst og fremst nægilegs úrvals og framboðs starfskrafta. Frv. um grunnskóla gerir ráð fyrir mjög víðtækri sérfræðiþjónustu í sambandi við kennslu og uppeldisstörf. Hvað það snertir, setur frv. markið býsna hátt miðað við þá starfs- getu og sérmenntun, sem nú er fyrir hendi í landinu. Ef þessu marki á að verða náð, er augljóst, að þegar í stað verður að hefj- ast handa um skipulega menntun nauðsyn- legra sérfræðinga, enda hefur það ekki far- ið milli mála, að allt þetta kerfi stendur og fellur með hæfu starfsfólki. Hér er mikill vandi á höndum, og ég held, að yfirstjórn fræðslumála verði öðru fremur að beita sér á þessu sviði nú á næstu árum. 14 — HEIMILI OG SKÓLI SVAYA JAKOBSDÓTTIR, alþingismaður: Stefna verður að því, að allir skól- ar verði einsetnir. Ég hefði viljað, að ákveðnari afstaða hefði verið tekin gegn tví- og þrísetningu skóla. Þegar sú krafa hefur verið borin fram af almenningi, að allir skólar verði einsetnir, hefur því verið borið við, að skólahúsnæði leyfði ekki slíkt. Mér kemur því nokkuð spánskt fyrir sjónir, að þegar samþykkja á ný grunnskólalög, að ekki virðist gert ráð fyrir, að breyta eigi til á þessu sviði. Að vísu er ákvæði í 25. gr. um aðstöðu nemenda í skólanum — mjög mik- ilvægt ákvæði og stórt skref í átt til félags- legs réttlætis. En í reynd er hlutverk þess svipað og hlutverk skóladagheimila. Sízt vil ég draga úr inikilvægi þess, að skólar verði jafnframt heimili í því skyni, að menn hafi þar aðstöðu til þess að læra til næsta dags. En einmitt þetta orðalag, að menn skuli „búa sig undir kennslustundir næsta dags,“ gefur í skyn, að hér sé ekki hugsað til breytinga á kennsluháttum á þann veg, að allt námið skuli fara fram í kennslu- stund. Það orðalag hefði ég frekar viljað taka upp, og það væri fróðlegt að heyra álit hæstv. ráðh. á, hvað muni hafa valdið, að ekki skuli vera ætlunin að breyta til í þessu efni. En hvort sem sú breyting yrði fram- kvæmanleg eða ekki, hefði ég talið rétt að kveða skýlaust á um það í þessari grein, að við gerð nýs kennsluhúsnæðis skuli vera aðstaða til framreiðslu matar fyrir nem- endur. Að öðrum kosti kemur þetta ekkí nema að hálfu gagni. Lengingu skólaskyldu og árlegs nám»- tíma er ég hlynnt. Að vísu hefur nefndin

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.