Heimili og skóli - 01.03.1973, Blaðsíða 45

Heimili og skóli - 01.03.1973, Blaðsíða 45
verkefni, áður en ritað er um þau, gera al- mennt miðlunargildi þeirra enn augljósara. 2. Með því að sýna persónulegum tján- ingarhætti nemenda áhuga og urnburðar- lyndi, þótt honum kunni að vera ábótavant frá málfræðilegu eða stílfræðilegu sjónar- miði, og með því að örva nemendur til að tjá athuganir sínar, hugmyndir og niður- stöður á sem fjölbreytilegastan hátt. 3. Með því að ræða við nemendur um formfestu í riti af ýmsu tagi (t. d. við ým- iss konar skýrslugerðir, skilgreiningar o. s. frv.) og leyfa þeim að spreyta sig á að móta sjálfir slík ritform. 4. Með því að vara nemendur við að nota um of venjubundið orðalag og stein- runnin orðasambönd og hvetja þá jafnframt til að reyna að velja það orðalag, sem bezt hentar hverju sinni efni og aðstæðum. 5. Með því að gefa nemendum jafnan nægilegt úrval ritefna og jafnframt að stuðla að frumkvæði þeirra við verkefna- val. 6. Með því að gefa nemendum kost á að ná til áheyrenda eða lesenda með ritsmíð- um sínum og þá ekki aðeins innan hekkj- arins, hehlur á víðara vettvangi. 7. Með því að einskorða ekki ritmennsku nemenda við venjulegar tímaritgerðir og heimaritgerðir, heldur leita eftir aukinni fjölbreytni, t. d. í samvinnu nemenda um verkefni. Af þessum hugmyndum má ráða, að skrifleg málnotkun nemenda krefst fremur athygli og áhuga af kennurum en einkunna. Ef nemendur finna, að kennsla og athygli kennarans beinist aðallega að réttritun, greinarmerkjasetningu, „réttu“ máli og öðrum formsatriðum, munu þeir venjast á að líta á sjálft ritstarfið og efni og boð- skap hins ritaða orðs sem minniháttar atr- iði. Ef aftur á móti ritsmíðar þeirra hljóta áheyrn og eftirtekt, ekki aðeins kennarans, heldur einnig skólafélaganna og jafnvel fleiri, en þess að vænta, að þróist með þeim áhugi og vilji að bæta form ritsmíða sinna og framsetningu. Nauðsynlegt er að æfa nemendur í að skrifa minnisgreinar sjálfstætt og með eig- in orðum. Mjög hæpið er að láta nemend- ur skrifa mikið hjá sér minnisgreinar eftir upplestri, þar sem hugsun og sjálfstæð vinnubrögð koma þar ekki við sögu. Lestur Mikilvægt er að sjá nemendum fyrir góð- um bókakosti og leiðbeina þeim um bóka- val. Bækur eru góðir kennarar, af þeim geta nemendur aukið drjúgum við skóla- nám sitt, þar finna þeir og kynnast marg- víslegum umræðuformum og notkun þeirra. Venjuleg kennslubók getur tæplega upp- fyllt slíkar kröfur, jafnvel þótt vel skrifuð sé, hvað þá þær, sem síðri eru. Oft virðast kennslubækur fremur ætlaðar kennurum en nemendum, og ber þá mál þeirra lítið vitni um skilning á málvanda nemenda gagnvart nýju efni. Eftirfarandi hugmyndir gætu ef til vill komið hér að gagni: 1. Nemendur ættu að eiga greiðan að- gang að hvers konar lesefni, sem varðar námsefni þeirra, alfræðibókum, orðabók- um, dagblöðum, blaðaúrklippum, tímarit- um, skýrslum, ævisögum o. s. frv. 2. Þeir ættu að eiga þess kost að kynn- ast mismunandi viðhorfum og framsetningu ýmissa höfunda um sama efni. 3. Kennslubækur ætti ekki að skoða sem HEIMILI OG SKÓLI — 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.