Heimili og skóli - 01.03.1973, Blaðsíða 48
firðingum vegna hins nýja menntaseturs og
lagði áherzlu á, að allir ættu jafnan rétt til
menntunar, þéttbýlismenn og strjálbýlis-
fólk, og það væri skylda ríkisins að jafna
aðstöðu þeirra svo að allir stæðu sem jafn-
ast að vígi í lífsbaráttunni án tillits til bú-
setu.
Þá talaði Jón Heiðar Kristinsson, Ytra-
Felli, formaður skólanefndar, veitti skóla-
húsunum viðtöku og afhenti yfirráð þeirra
skólastjóranum, Sigurði Aðalgeirssyni. Jón
lýsti merki skólans, hrafnsfjöður, sem sr.
Bolli Gústavsson í Laufási hafði teiknað,
og kvað það í senn eiga að minna á nafn
staðarins og tengslin við forna menningu
þjóðarinnar, sem hefði átt fjöðurstafinn að
beittustu vopni í menningar- og frelsisbar-
áttu liðinna alda.
Sigurður Aðalgeirsson, skólastjóri, lýsti
húsakynnum skólans. Húsin eru tvö, heima-
vistarhús og kennsluhús. í hinu fyrra, sem
er 6670 rúmmetrar, 2 hæðir og kjallari, er
anddyri, snyrtingar, setustofa, matsalur,
eldhús, þvottahús, geymslur og íbúðir nem-
enda, kennara og starfsfólks. I kennsluhús-
inu, sem er 2335 rúmmetrar á einni hæð,
eru 5 almennar kennslustofur, tilraunastofa
í eðlis- og efnafræði, kennarastofa, vinnu-
stofa kennara, tækjageymsla og skrifstofa
skólastjóra. í vetur eru í skólanum 90 nem-
endur, og er drepið í hverja smugu. 6 fasta-
kennarar og 2 stundakennarar starfa við
skólann, 4 stúlkur í mötuneyti og 2 við
ræstingu. Skólastjóri kvað nú skorta tilfinn-
anlega meira heimavistarhúsnæði, kennara-
bústaði og íþróttamannvirki, en þau eru
engin nú. Nauðsynlegt væri að bæta úr
þessu fyrir næsta skólaár.
Þegar hér var komið sögu, var öllum
viðstöddum boðið að skoða húsakynnin, en
síðan var setzt að veizluborði í félagsheim-
ilinu Laugarborg. Þar flutti ræðu Sveinn
Jónsson á Kálfskinni, byggingameistari
skólahúsanna og formaður fræðsluráðs
Eyjafjarðarsýslu, þakkaði öllum, sem lagt
hefðu hönd að verki með ráðum og dáð, og
Heimavistarskólinn að Hrafnagili. Byggingarmeistari þessa nýbyggða skóla var Sveinn Jónsson, form. UMSE.
40 — HEIMILI OG SKÓLI