Heimili og skóli - 01.03.1973, Blaðsíða 39

Heimili og skóli - 01.03.1973, Blaðsíða 39
FORELDRAÞÁTTIJR V orskólinn A Akureyri og víðar hefur skapazt sú venja að kalla allan 7 ára ágang barna á stutt vornámskeið árlega. Yornámskeiðin eru fyrst og fremst hugsuð sem tími aðlög- unar og gagnkvæmra kynna milli barnsins og skólans, sem nú kemur til með að grípa svo mjög inn í líf 'þess á komandi árum. í vor, eða eftir rúmlega einn mánuð, munu 250 börn hefja skólagöngu við barnaskólana á Akureyri. Eitt er þeim öll- um sameiginlegt, að vera fædd á árinu 1966, en að öðru leyti eru þau ólík að þroska og reynslu, að útliti og vexti. Skólinn býður öll þessi börn velkomin og mun fyrir sitt leyti leitast við að gera þeim skólagönguna sem ánægjulegasta og heilladrýgsta. Að byrja í skóla í fyrsta sinn er vissulega spennandi og nýtt ævintýri í augum barns- ins, þótt kannski sé það stundum blandið einhverjum óljósum eða leyndum kvíða. Það er því mikils um vert með hvers kon- ar hugarfari barnið kemur í skólann. Barn- ið verður að vera ánægt með skólann, til þess að árangur verði af skólagöngunni. Hér geta foreldrar vissulega rétt hjálpar- hönd með því að ræða við barnið, vinsam- lega um skólann og það, sem skeður í skól- anum. Af öðrum atriðum, sem ég vil benda for- eldrum á, má nefna þessi: Sjá um, að barnið fái nægan svefn og hvíld, hafi rúman tíma til að klæða sig á morgnana og borði vel áður en það fer í skólann. Foreldrar tala oft um lystarleysi barna sinna á morgnana. Meginástæðu tel ég vera þá, að barnið hefur ekki fengið nægilegan svefn. Nauðsynlegt er að fylgjast vel með háttatíma barnsins á kvöldin og hafa hann reglubundinn. Gæta þess, að barnið komi í hentugum og þægilegum fötum í skólann. Hafi með sér vasaklút og kunni að nota hann. Kunni að klæða sig úr og í yfirhafnir og hengja þær laglega upp. Kunni að binda skóreimar og sé einfært um að fara á klósett. Nauð- synlegt er, að hlífðarföt og skór séu vel auð- kennd. Kenna barninu að gera grein fyrir heiti sínu, afmælisdegi, heimilisfangi, nöfnum foreldra, símanúmeri og þar fram eftir göt- unum. Fyrstu viðfangsefni barnsins í skól- anum hljóta ávallt að vera bundin nánasta umhverfi þess, heimilinu, sem það þekkir bezt. Eg hef ávallt haft mikla ánægju af að kenna í byrjendabekkjum. Allt frá fyrsta skóladegi, þegar sjá má einstakt tár blika á brá, og til síðasta kennsludags eru ávallt ný og skemmtileg viðfangsefni að koma fyr- ir. Skólinn er orðinn að veruleika í huga barnsins. Gleðilegt sumar. V. H. HEIMILI OG SKÓLI — 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.