Heimili og skóli - 01.03.1973, Qupperneq 56

Heimili og skóli - 01.03.1973, Qupperneq 56
miðaður við stærri skóla. Leiddi það til þess, að greiðsluhlutfall sveitarfélaganna í heild varð mjög óhagstætt, hlutur þeirra mörgum milljónum hærri en reiknað hafði verið með. Vegna margvíslegra ráðstafana, sem þegar höfðu verið gerðar til undirbún- ings framkvæmda á þessu sumri, töldum við varla hægt að fresta framkvæmdum enn um óákveðinn tíma. Gerðum við oddvitum hinna aðildarhreppanna grein fyrir þeim stórauknu framlögum sveitarfélaganna, sem búast mætti við, og vont þeir á sama máli. Ef við létum teikna og byggja 2ja vetra unglingaskóla nákvæmlega eftir normi, hefði hlutur sveitarfél. orðið miklu minni, en þá töldum við litlar líkur til, að sá skóli fengist stækkaður í fyrirsjáanlegri framtíð, þar sem þá yrði aftur að byggja frá grunni álta aðstöðu vegna þeirra deilda,- sem við yrði bætt. Hins vegar vildum við ógjarna binda sveitarfélögunum þessa þungu bagga, nema fá staðfestingu ráðuneytisins á því, að samþykkt yrði af þess hálfu áframhald- andi uppbygging skólaseturs á Hrafnagili. Ut úr því fengum við skriflega yfirlýsingu ráðherra um, að ráðuneytið samþykki fyr- ir sitt leyti, að á Hrafnagili verði barna- og miðskóli, þ. e. þriggja vetra skóli eftir barnapróf. Með tilliti til endurskoðunar fræðslukerfisins vildi hann ekki að svo stöddu taka ákvörðun um 4. bekk gagn- fræðastigsins. Þetta töldum við þó allmikið skref í áttina, þar sem það mundi, eins og nú er fram komið, opna leið beint úr Hrafnagilsskóla í menntaskóla og sérskóla, sem gera miðskólapróf að inntökuskilyrði. Og í trausti þess, að við fengjum að njóta þess, sem síðar kynni að ávinnast í samn- ingum sveitarfélaganna og sambands þeirra við ráðuneytið, var samningsuppkastið 48 — HEIMILI OG SKÓLI undirritað sem bráðabirgðasamkomulag, og var framkvæmdaleyfi þar með fengið. Framkvæmdir hafnar Voru nú framkvæmdir hafnar af fullum krafti, og hefur verið unnið stanzlaust síð- an. Nokkrum töfum olli, að grunnur reynd- ist ekki eins góður og búist hafði verið við. Tókst þó á þessu ári, 1969, að steypa upp norðurálmu heimavistar, mötuneytið að miklu leyti og undisstöður vesturálmu. Jafnframt var unnið að undirbúningi endanlegra samninga við ríkið, í samvinnu við byggingarnefndir annarra skóla í kjör- dæminu og Samband ísl. sveitarfélaga. Full- trúar þess í samstarfsnefnd um framkvæmd skólakostnaðarlaga unnu að hagsmunum sveitarfélaganna af mikilli þrautseigju, og ráðuneytið hliðraði sérstaklega til við þá skóla, sem undirbúnir' voru áður en norm- in komu til sögunnar. í byrjun marz 1970 var aftur lagt af stað í samningaferð, ásamt fulltrúum Stóru- tjarnarskóla og Hafralækjarskóla. Og eftir nokkra daga fundahöld var undirritaður nýr samningur, allmikið hagstæðari en bráðabirgðasamkomulagið. Greiðsluhlut- fall hreppanna var nú ákveðið 25% af heildarkostnaði, og verður þannig aldrei ó- hagstæðara en eftir gömlu lögunum. Rými, sem ekki var viðurkennt, að félli undir norm, var nú komið ofan í 387 fermetra og tekið fram, að ef eitthvað af því félli undir norm síðar vegna stækkunar skólans, þá greiddi ríkið sinn hluta í því. Kennsluhús- næðið var nú tekið með í 1. áfanga, en honum skipt í 4 smærri hluta, og greiðslur úr ríkissjóði áætlaðar eftir því, sem hverj- um hluta fyrir sig miðaði áfram. Var áætl- að, að norðurálma heimavistar og mötuneyt-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.