Heimili og skóli - 01.03.1973, Síða 58
ástæðum höfum við mest leitað til fyrrv.
fjármrh., Magnúsar Jónssonar, Ingvars
Gíslasonar, fjárveitinganefndarmanns, og
Stefáns Valgeirssonar, auk Jónasar Rafnar,
sem áður var í fjárvn. Hafa þeir ávallt tek-
ið okkur vel.
Við viljum þakka arkitektunum okkar
fyrir ágæta samvinnu um nærri 6 ára skeið.
Eg sé ekki þörf á að bera lof á þeirra starf,
því árangur þess blasir hér við allra augum.
Við þökkum verkfræðingunum, Karli
Omari Jónssyni, sem séð hefur um hitakerf-
ið og veitur allar, Guðmundi Jónssyni, sem
séð hefur um rafmagnskerfið, og verkfræð-
ingunum frá Hönnun, sem annast hafa
rannsókn á grunni, burðarþolsútreikninga
og þess háttar. Einnig Gunnlaugi Olafssyni,
bryta, sem aðstoðaði við skipulagningu á
mötuneyti.
Ég vil þakka ráðuneytisstjóra, Birgi
Thorlacius, sem því miður gat ekki verið
hér viðstaddur, fyrir sérstaka velvild í okk-
ar garð. Ég þakka forstöðumanni bygg-
ingadeildar ráðuneytisins, Guðmundi Þór
Pálssyni, og forstöðumanni fjármáladeild-
ar, Torfa Ásgeirssyni. Þeirra hlutverk er
m. a. að gæta hagsmuna ríkissjóðs, og það
er ekki ætíð vinsælt verk. Ríkissjóður á
engan vin, sagði ráðuneytisstjórinn einu
sinni við okkur. En ef þessir 3 menn hefðu
ekki alltaf greitt fyrir okkur eftir því sem
þeir hafa aðstöðu til, þá værum við ekki
komnir það áleiðis sem við erum.
Olvi Karlssyni þökkum við aðstoð við
samninga og mikla vinnu af hálfu Samb.
ísl. sveitarfél. til hagsbóta fyrir okkur dreif-
býlismenn í sambandi við framkvæmd
skólakostnaðarlaganna yfirleitt.
Síðan Sigurður Aðalgeirsson hóf hér
starf sem skólastjóri sumarið 1971, við
50 — HEIMILI OG SKÓLI
erfiðar aðstæður, hefur hann unnið með
byggingarnefndinni og aðstoðað hana á
ýmsan hátt. Hann hefur orðið að sætta sig
við að deila takmörkuðu húsrými með
starfsmönnum byggingarinnar. Vegna lip-
urðar hans og framkvæmdastjórans okkar
hefur þetta sambýli gengið vel, og það ber
sérstaklega að þakka.
Síðast en ekki sízt vil ég þakka þeim
manni, sem framkvæmdirnar hér hafa hvílt
þyngst á, byggingameistara okkar og fram-
kvæmdastjóra, Sveini Jónssyni. Við hefð-
um sjálfsagt getað fengið ýmsa góða húsa-
smiði til að standa fyrir byggingum hér, að
því leyti sem heyrir undir þeirra fag. En
ég efast um, að við hefðum getað fengið
nokkurn jafn fjölhæfan og áhugasaman
mann til að sjá um allar framkvæmdir hér,
úti og inni, ásamt efnisútvegun og öðrum
erindarekstri. Það hefur komið sér sérstak-
lega vel fyrir byggingarnefndina að geta
falið honum að leysa margs konar vanda,
þar sem við nefndarmennirnir eru allir
störfum hlaðnir heima fyrir, og höfum því
ekki getað fylgzt eins vel með hér eins og
við hefðum kannski átt að gera. Ég held, að
Sveinn, sem er formaður fræðsluráðs Eyja-
fjarðarsýslu og eftirsóttur í margs konar
félagsmálastörf vegna ósérhlífni, vinni að
uppbyggingu þessa skóla sem hugsjónamað-
ur, fremur en atvinnumaður. Og við vonum
fastlega, að við fáum að njóta starfskrafta
hans hér lengi enn við áframhaldandi upp-
byggingu.
Þá vil ég persónulega þakka samstarfs-
mönnum mínum í byggingarnefndinni sér-
staklega ánægjulegt samstarf. Síðan fram-
kvæmdir hófust hefur erfiðasta starfið þar
lent á Hreini Ketilssyni, en hann hefur séð
um fjármálin, útborganir allar og reikn-