Heimili og skóli - 01.03.1973, Page 59
ingshald. Og ég held að honum hafi tekizt
að leysa þetta óvinsæla starf þannig af
hendi, að það hafi engum óvinsældum vaid
ið honum. Þar eiga einnig hlut að máli
sveitarstjórnir aðildarhreppanna, sem ávallt
hafa látið íjármuni greiðlega af hendi, hver
eftir sinni getu, án tillits til þess hvað hverj-
um ber endanlega að greiða.
Að lokum vil ég hér með fyrir hönd
byggingarnefndarinnar afhenda þær skóla-
byggingar, sem hér hafa risið, með öllu
sem þeim fylgir, til eigenda þeirra, en þeir
eru ríkið að hlutum og aðildarhrepp-
arnir sameiginlega að hluta. Vil ég
biðja hæstv. menntamálaráðherra, Magnús
Torfa Ölafsson, yfirmann allra skóla í
landinu, að veita þeim viðtöku.
Þakka gott hljóð.
Hringt inn í tíma.
HEIMILI OG SKÓLI — 51