Læknaneminn


Læknaneminn - 01.03.1974, Side 17

Læknaneminn - 01.03.1974, Side 17
anlegar rannsóknir eru settar í gang, en vesalings sjúklingurinn týnist í moldviðrinu. Sumir þessara lækna hafa ómeðvitaða tilhneigingu til að tala um sjúklinginn með nafni sjúkdómsins, t. d. „Turner", 3>Libmann-Sack“, „Hashimoto“. Mest ber á þessu njá ungum, framagjörnum læknum. Ll 4: Sjúhlingurinn sent tœhi til uS biliiyja upp sjjálfsintintl Læknar hafa eins og aðrir hugmyndir um sjálfa S1g, þ. e. sjálfsmynd, sem þeir reyna að halda til streitu í félagslegum samskiptum sínum. Stundum getur læknirinn notað sjúklinginn til að byggja upp sjálfsmyndina og ber mest á þessu í geðlækningum. Hann talar þá „neikvætt“ um sjúklinginn (sjúkur, °áreiðanlegur, með karaktergalla o. s. frv.) til að draga fram hve hann sjálfur sé „jákvæður“ (heil- Lrigður, áreiðanlegur, heilsteyptur karakter o. s. frv.). Ll S: Sjúhlingurinn sem hennslutæhi Þeir sem stundað hafa klínískt nám þekkja allir þá niðurlægingu sem sjúklingar verða að þola þeg- ar þeir eru notaðir sem kennslutæki. Þeir eru varla spurðir leyfis og sé það gert hætta fæstir þeirra sér ut í að mótmæla, því slíkt kostar ónáð hjá kerfinu. Heyndar er verulega gert upp á milli stétta hvað þetta varðar, því sjaldgæft er að einkasj úklingar Professoranna og yfirlæknanna, svo og sjúklingar úr efstu þrepum þjóðfélagsstigans séu notaðir til kennslu. Nú, svo er sjúklingurinn sýndur eins og kjötlæri i verslun, potað í hann og talað um sjúkdóm hans, en þar gleymist stundum að hann hefur bæði sjón, heyrn og tilfinningu. Eins og klíníska kennslan fer fram núna bera stúdentarnir enga ábyrgð á meðferð sjúklinganna. Til stúdenta á kúrsus eru aðallega gerðar þær kröf- ur að þeir taki ákveðinn fjölda af sjúrnölum. Þessir sjurnalar fara svo oftast lítið lesnir og nær alltaf gagnrýnislaust inn í skjalasafn sjúkrahússins. Lækn- u' sjúklingsins tekur jú hvort sem er sinn eigin sjúrn- ar- Þetta verður til að drepa niður áhuga margra stúdenta og þeir fara að líta á sjúklingana sem hverja aðra hluti, sem þeir þurfi að safna sér á- kveðnum fjölda af til að fá kúrsinn viðurkenndan. Trúlega hefðu menn meira gagn af kúrsinum ef þeir tækju sjúrnal af færri sjúklingum, en sæu síðan að verulegu leyti um meðferð þeirra (þó undir handleiðslu læknis) og fylgdust með hata. Með því að auka svona ábyrgð stúdentanna má búast við að samband þeirra við sjúklingana yrði einlægara og áhuginn meiri. 3 Hér að framan hefur verið drepið á ýmsa þætti, sem einkenna sjúkling og lækni og þar með sam- skipti þeirra. En eftir er að minnast á lækninn í hlutverki galdramannsins. I öllum frumstæðum þjóðfélögum eru galdramenn, sem jafnframt eru læknar þessa þjóðfélags — töfralæknar. Hinn nútíma læknir er beinn arftaki galdramannsins í hugum fólks þrátt fyrir það, að læknavísindin, eða kannski réttara sagt læknislistin, eiga sér ævaforna sögu. I huga almennings er læknirinn goðborin vera, ó- manulegur og allt að því óskeikull. Eflaust á mikinn þátt í þessu hula sú, sem jafnan hefur hvílt yfir lækn- isfræði, byggingu og störfum líkamans, meinum hans og sjúkdómum og meðhöndlun þeirra. A okkar dögum er þetta þó að breytast. Lagt hefur verið kapp á að fræða fólk um eigin líkama og eðlileg störf hans, og er það vel. I kjölfarið hefur komið fræðsla um helztu sjúkdóma og varnir gegn þeim. En fræðsla um meðhöndlun sjúkdóma, aðgerðir læknisins og ástæður hans fyrir þeim er enn á byrj- unarstigi. Fæstir læknar eru nógu opnir gagnvart sjúklingum sínum, og flestir sjúklingar hafa það mikinn ótta af lækni sínum, að þeim dytti aldrei í hug að ganga hart að honum eftir fróðleik um eigið ástand. Þegar sjúklingur kemur til læknis, er sjúkl- ingurinn oft í hlutverki barns, sem leitar úrræða LÆKNANEMINN 11

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.