Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1976, Side 6

Læknaneminn - 01.12.1976, Side 6
Spjall Þegar sá er þessar línur ritar hóf nám í deildinni haustið 1972 var aðsókn að lœknadeild í hámarki og mál málanna, a. m. k. meðal okkar busanna, var hversu margir kœmust áfram. Þá óðu uppi alls kyns grýlur svo sem anatómíugrýla og efnafrœðigrýla. Ef nejnt var orðið numerus clausus fór hrollur um alla og haji einhver nemenda verið fylgfandi fjölda- takmörkunum hafði sá hinn sami ekki hátt um það. Nú örfáum árum seinna eru fjóldatakmarkanir stað- reynd og það án þess að stuna eða hósti heyrist (a. m. k. hefur undirritaður ekki heyrt neitt). Kveikjan að þessum vangaveltum er, að í tilefni þess að brátt hefur göngu sína 30. árg. LÆKNA- NEMANS, fór undirritaður að kynna sér sögu blaðs- ins. M. a. var það fólgið í lestri gamalla fundargerða Félags lœknanema. Kom þá í Ijós, að á fundi hinn 9. nóvember 1939 að Garði var umrœðuefnið: Of- fjölgun í lœknadeild og takmörkun á aðgangi í deild- ina. Virtust menn aðeins greina á um leiðir til að stemma stigu við ófögnuðinum. I fundarlok voru bornar fram tvœr tillögur og var sú fyrri þannig: „Fundur haldinn í F. L. 9/11 skorar á ríkisstjórn og Alþingi að stofna þegar til nýrra kennsludeilda, t. d. í efnafrœði, stœrðfrœði og landbúnaðarvísind- um. Telur fundurinn að offjölgun lœknanema liorfi til vandrœða og komi geti til álita að beita sér fyrir takmörkun á inngöngu í lœknadeild ef ekki verður þegar í stað ráðin bót á þessu með opnun nýrra deilda.“ Tillaga þessi var borin fram m. a. af Olafi Bjarnasyni, Þórarni Guðnasyni og Karli Strand. Var hún felld með 19 atkv. gegn 12. Seinni tillagan, borin fram m. a. af Hauki Kristjánssyni, Hannesi Þórarinssyni og Arinbirni Kolbeinssyni, var síðan samþykkt með 22 atkv. gegn 10, en um 40 stúdentar voru mœttir á fundinum. Hún var svona: „Almennur fundur í Félagi lœknanema, haldinn á Garði 9. nóv. 1939, lítur svo á, að nauðsyn beri til að gjöra sem fyrst ákveðnar ráðstafanir, er miði að því að koma í veg fyrir enn frekari ofjjölgun í lœknadeild Há- skólans en þegar er orðið. Hins vegar skorar fundur- inn á stúdenta, prófessora við Háskólann, þing og stjórn að vinna að því að bœtt verði nýjum deildum við Háskólann.“ Svo mörg voru þau orð. 4 LÆKNANEMINN

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.