Læknaneminn - 01.12.1976, Blaðsíða 18
Ef borín eru saman tímabilin 1941-’4.5 annars vegar
og 1971—’75 hins vegar þá kemur í ljós, að dánar-
tala vegna lungnabólgu hefur dottið úr 108 í 8,6.
/. Mengisbólga
A stuðlaiiti X eru skráðar niðurstöður dánar-
talna vegna mengisbólgu.
STUÐLARIT X
Tvö fyrstu tímabilin er ekki greint mili .mengis-
bólgu af völdum meningitides og mengisbólgu af
öðrum orsökum. Frá 1951 er greint milli meningitis
meningococcica og annarra mengisbólgna. I töflu 3
eru skráð dauðsföll vegna mengisbólgu áranna 1951
-’75.
TAFLA3
1951-55 56-60 61-65 66-70 71-75
a b a b a b a b a b
Infectio meningococcica 4 2.0 7 3.2 19 8.1 5 2.2 7 3.3
Meningitis,
nonmeningococcica,
nontubereulosa 7 3.6 6 2.8 9 3.9 4 1.8 7 3.3
a: Fjöldi dauðsfalla.
b: Fjöldi dauðsfalla 0-4 ára barna per 10.000 0-4 ára börn.
Rétt er að hafa í huga að niðurstöður þessarar
greinar byggjast á skráningu dánarvottorða. Því
hlýtur sannleiksgildi hennar að ráðast af réttri og
samvizkusamlegri útfyllingu dánarvottorða.
Við vitum ekki við hvaða skilmerki er stuðst er
greiningin infectio meningococcica sem dánarorsök
hefur verið gerð. Hins vegar á greiningin að byggj-
ast á niðurstöðum sýklarannsóknar, og er nánast
rökleysa án slíkrar rannsóknar.
Niðurstaða dregin af stuðlariti X
I ) Dauðsföllum vegna mengisbólgu hefur alls
ekkert fækkað í þessum aldursflokki (0-4 ára).
2) Þessi sjúkdómur hefur stöðuga dánartíðni
1941-’75 einn allra sýkingarsjúkdóma. I grein V.
H. A. er fjallað um þetta atriði.15 Bendir höfundur
á að dánartölur vegna mengisbólgu séu enn 10—15%
og 50% hjá nýfæddum. Hafi þar engin breyting
orðið á síðustu 20 árin, þrátt fyrir sífellt aðstreymi
nýrra og kröftugri sýklalyfja.
3) Tíðni dauðsfalla vegna mengisbólgu lækkar
fyrstu 3 tímabilin (1941—’55). Stendur í stað (1955
-’60), en 1961-’65 tvöfaldast dánartalan skyndilega.
Er þar um að ræða aukningu í meningitis mening-
ococcica nær eingöngu. Þær heimildir, sem við böf-
um um mengisbólgur hér á landi, geta ekki þessarar
aukningar.0,15
Þessar upplýsingar voru bornar undir próf. Vík-
ing H. Arnórsson og komu honum nokkuð á óvart.
16
LÆKNANEMINN