Læknaneminn - 01.12.1976, Blaðsíða 32
socialförsákringssystem, organisation och
funktioner inom sjukvárd, socialvárd och vissa
andra omráden aktuella för lákaren i hans
verksamhet.
5. Ges översiktliga kundskaper om de vanligaste
metoderna att máta effekten av sjukvárd.
6. Bibringas kunskap om huvuddragen i upp-
fattningen om sjukvárdens framtida utveckl-
ing sedd ur Socialstyrelsens, Landstingsför-
bundets och Lákarförbundets samt Riksdags-
partiernas synvinkel.
Fárdigheter:
Pá basen av exempel hámtade frán olika sjuk-
domar i samhállet och funktioner inom sjukvárd-
en, översiktligt kunna analysera sambandet mell-
an sjukdom, individ, beteende á ena sidan samt
lákare, resurser och samhálle á den andra.
Við kennsluna hefur veriö stuðst við bók Gunn-
ars Inghe, Socialmedicin.
I álitgerð hins opinbera um kennslu læknaefna,
SOU: 1967:51, segir að kennsla í félagslækningum
skuli vera ein fimm aðalgreina kennslunnar og
byggjast á:
1. Faraldsfræði og vitalstatistik.
2. Heilsuvernd (preventiv medicin).
3. Klíniskum félagslækningum (social rehabiliter-
ing).
4. Heilsugæzluskipan, lögum og reglum er lúta að
heilbrigðismálum.
Enginn einn maður hefur mótað jafn mikið fé-
lagslækningar í Svíþjóð og prófessor Gunnar Inghe.
Hefur hann jafnan verið ötull talsmaður klíniskra
félagslækninga. Hann hefur spáð8 að félagslækning-
ar muni með tímanum skiptast í þrjár sérgreinar:
a) Klíniskar félagslækningar er stundir sjúklinga.
b) Faraldsfræðilegar félagslækningar er stundi
kennslu og rannsóknir.
c) Stjórnunarlækningar er sinni skipulagningu og
stjórnun.
Það var fyrst í ársbyrjun 1975 að félagslækningar
voru viðurkenndar sem sérgrein í Svíþjóð.
28
Bretland
Kennsla í félagslækningum fer fram með ýmsum
hætti í Bretlandi. Hefur Dr. Una Mclean, kennari
við Department of Community Medicine í Edinborg,
nýlega gert grein fyrir stöðu þessara mála.15 Víðast
hvar fer kennslan fram í samvinnu við félagsvís-
indadeild og sálarfræði í byrjun námsins (1. náms-
ári), en aðalnám er á vegum félagslækningadeildar
eða samfélagslækninga (Community Medicine),
hvort heldur maður vill kalla það. A nokkrum stöð-
um, þar á meðal í Edinborg, er námið í félagslækn-
ingum valfrjálst. Aðrir hafa skýrt frá árangri til-
rauna með nám á 1. námsári undir heitinu „Maður-
inn og líffræðilegt og félagslegt umhverfi hans“.16
Er árangur þessara tilrauna jákvæður og lagt til að
svipuðu námi verði komið á víðar. Sömu sögu er að
segja frá Skotlandi17 þar sem athuguð hefur verið
breyting á afstöðu til ýmissa atriða í tengslum við
heilsugæzlu fyrir og eftir kennsluna. I Southompton
hefur verið reynd samkennsla,18 faraldsfræði, sálar-
fræði og félagsfræði á 6 vikna námskeiði á fyrsta
námsári. Efnið: Man, medicine and society. Við-
brögð stúdenta við þessu námskeiði hafa verið mjög
góð, gagnrýnin verið mest á félagsfræðina af þess-
um þremur greinum.
Nátengd kennslunni í félagslækningum í Bretlandi
er hin nýja sérgrein, Community Medicine (samfé-
lagslækningar), sem áður hefur verið minnzt á og
lögleidd var með nýskipan yfirstjórnar heilbrigðis-
mála í Bretlandi 1974. Hér átti sér þó fyrst og fremst
stað nafnbreyting, sem áður er getið. Hefur mikið
verið rætt um hver muni verða framlíð þessarar sér-
greinar og eru um það skiptar skoðanir.1 o, 19,20,2 i,
22,23 f'legtir vara við of mikilli bjartsýni og benda
á að langur tími muni líða áður en hægt sé að vænta
nokkurs árangurs. Réttmæti sérgreinarinnar er ekki
dregið í efa en nokkur ágreiningur gerir vart við sig
er rætt er um starfssvið og starfsaðferðir.
Bandaríkin
Aður hefur verið getið um af hverju orðið social-
medicine er ekki notað í Bandaríkjunum, en í þess
stað heilsuvernd, heilbrigðisfræði eða samfélags-
lækningar. Hefur próf. Susser í ítarlegri grein- gert
grein fyrir kennslunni í Bandaríkjunum. Kennir þar
margra grasa eins og við var að búast og fjölbreytn-
LÆKNANEMINN