Læknaneminn - 01.12.1976, Blaðsíða 21
Teljum við því fyllstu ástæðu til þess að fara yfir
dánarvottorð 0-4 ára barna fyrir þetta tímabil.
Rétt er að benda á, að ef reiknað er út meðaldán-
artala vegna megnisbólgu tímabilanna 1951-’60 og
1966-75, kernur í ljós að hún er 5,8 og S. D. 1.0.
Frávikið 1961—'65 er 6,2 frá meðaltali og með því
að nota tölfræðina (chi sq. test) kemur í ljós að
þetta er marktækt (p <j 0,01).
g. Mislingar
Niðurstaða
A öllum 5 ára tímabilunum 1941-’75 eru misl-
ingafaraldrar í landinu, einn hvert tímabil utan
1951-’55 þá eru 2 faraldrar.8 Athygli vekur að á ár-
unum 1961-’70 látast börn úr mislingum (samt. 3).
Okkur þykir því full ástæða lil að taka upp mislinga-
bólusetningu almennt um allt land.
STUDLARIT XI MISLINGAR
n n
Ijl-fó ti-So iPSf Si'ío U-íS ilrlo 7/'75
V. Af hrabbameini
Engar sérstaka ályktanir er hægt að draga af
stuðlariti XII. Dálitlar sveiflur eru milli tímabila en
en lilfellin eru það fá, að sérhvert tilfelli veldur mikl-
um breytingum. Því er ómögulegt að sjá útfrá þess-
um dánartölum hvort horfur barna (0-4 ára) með
krabbamein hafi batnað.
Þetta stuðlarit gefur enga hugmynd um nýgengi
(incidence) krabbameina í börnum innan 5 ára. Hér
eru eingöngu skoðaðar dánartölur. Það ber að var-
ast, að reikna nýgengi út frá dánartölum. Miklu
betri upplýsingar um nýgengi fást frá sérstökum
stofnunum, sem skrá öll tilfelli sem greinast (sbr.
krabbameinsskráninguna).
V/. Aðrir sjjúhdómar
1- Æ-ts og 40
Athygli vekur dánartala tímabilanna 1941—’45 og
1946—’50. Þá var ein algengasta dánarorsök nýbura
kynlegur sjúkdómur nefndur „debilitas neonatorum“
eða sem útleggst meðfælt fjörleysi. Þar sem við
könnumst ekki við skilmerki þessarar greiningar
höfum við flokkað hann í B-46, hvers konar aðrir
sjúkdómar.
I svo stuttri skrá sem B-flokka skráin er, þarf ó-
hjákvæmilega að hafa flokk sem heitir aðrir sjúk-
dómar. Síðustu 4 tímabilin gefa nokkuð rétta mynd
af stærð þessara flokka. B45 - illa skýrgreint sjúk-
dómsástand, ætti að hverfa í framtíðinni.
STUÐLARIT XIII ADRIR SJÚKDOMAR
LÆKNANEMINN
17