Læknaneminn - 01.12.1976, Blaðsíða 12
LINURIT III
30
lo
BURDARMÁLSDAUÐI
-f
+ —-f-
-lo '
51 52i 53 '5H '55 '%> '51 58 '59 'tfi ’fel 'tt> 'tó ’W 'éÁ 'fcfc 'é>7 '68 '» '7o'TÍ ‘7i 73'74 V
frá því fyrir 1951 eru ekki fyrir fiendi, þar sem dán-
artölur voru þá ekki gefnar upp fyrir börn látin á 1.
viku. Aðeins var gefinn upp fjöldi barna látin í 1.
mánuði.
Niðurstaða
1) Greinilega stöðug minnkun í burðarmálsdauða
sem ekki er séð fyrir endann á. Við teljum að þessa
minnkun megi rekja til a) bættrar fæðingarhjálpar
og mæðraskoðana, b) betri greiningu og meðferð
sjúkra nýbura.
2) Við athugun á línuriti III vekur strax athygli
hin skyndilega aukning burðarmálsdauða milli ár-
anna 1960 og 1961, þar sem burðarmálsdauðinn fer
úr 19,7 per 1000 fædd börn 1960 upp í 27,8 per 1000
fædd 1961. Fer burðarmálsdauðinn ekki aftur undir
20 per 1000 fæðingar fyrr en árið 1969. Ef athugað-
ur er meðalburðarmálsdauði fyrir 5 ára tímabil frá
1951 (sbr. stuðlarit IV-1), kemur í ljós, að árin
1956-’60 er hann 21,9 per 1000 fædd börn en 1960-
’65 24,0 per 1000 fædd börn. Teljum við að þessi
aukning burðarmálsdauða á árunum 1961—65 skýri
að verulegu leyti það frávik sem var í dánartölum
sveina og meyja þetta tímabil (vide supra).
3) Um orsakir þessarar aukningar burðarmáls-
dauða áranna 1961-’65 viljum við ekki fjölyrða. Þó
má benda á tvo möguleika: a) að tilviljun ein ráði
þarna vegna smæðar þjóðarinnar, sem kemur t. a.m.
fram í því, að einungis fæðast hér á landi 4—5000
börn árlega og því sé sá möguleiki fyrir hendi að
eitt árið deyi mun fleiri ])örn um burðarmálstímann
en annað árið. Þó viljum við draga þessa skýringu
í efa að nokkru marki, sbr. þróun burðarmálsdauð-
ans sl. 15 ár. b) Ef lil vill hefur einhver epidemia
valdið þessu, ef til vill hjá mæðrum í meðgöngu, eða
einhverjar aðrar ytri orsakir. Teljum við þetta vert
nánari athugunar þótt slík rannsókn hljóti að vera
verulegum annmörkum háð þar sem svo langt er um
liðið.
Annað sem hækkar dánartölu barna 1961-’65 er
að okkar mati óvenju mörg dauðsföll vegna mengis-
bólgu og þá bjá eldri börnum (þ. e. utan burðar-
málstímabilsins, vide infra).
Burðarmálsdauði hér á landi er með því lægsta
10
LÆKNANEMINN