Læknaneminn - 01.12.1976, Blaðsíða 51
Frd rdðningarstjóra
Björn Tryggvason læknanemi
S.l. vor gætti allmikillar svartsýni um sumarvinnu,
enda full ástæða til, þar sem útséð var að engan veg-
inn myndi takast aS anna öllu framboSi um vinnu.
Var því farið að kanna möguleika á sumarvinnu við
læknisstörf erlendis, einkum í Noregi en einnig í
Svíþjóð. Þótt seint væri farið af stað, bar þetta
mjög góða raun og reyndist á endanum ekki hægt
að manna allar þær stöður, sem í boði voru. Um
haustið er hópurinn fór að skila sér heim, kom í Ijós
að hér var nær undantekningarlaust um uppgripa-
vinnu að ræða og komu menn til baka með bólgnar
buddur og fullir vísdóms. Utanlandsferðir þessar
urðu svo aftur til þess að meiri vinna var til skipt-
anna fyrir þá sem heima sátu. Með hliðsjón af þess-
ari reynslu er vonandi að sem flestir stúdentar er
geta komið því við taki þelta til athugunar í sumar.
Sömuleiðis munu einhverjir 3ja árs menn hafa farið
utan og unnið við hjúkrunarstörf.
A tímabilinu apríl-maí í fyrra var nokkuð fram-
boð á vinnu, eins og venjan hefur verið og gekk
sæmilega að manna þær stöður þrátt fyrir ósveigjan-
leika nýju reglugerðarinnar. Sá ókostur fylgdi þó
því að vinna á þessu tímabili, að mönnum var refs-
að fyrir það um sumarið, með því að vera settir
aftastir á atvinnuleysisskrána. Sama gilli um stúd-
enta sem höfðu unnið eitthvað fyrr um veturinn,
þ. e. a. s. eftir 1. desember eins og reglugerð um
ráðningar mælir fyrir um. Þetta er mjög slæmt með
tilliti til þess að allmargar stöður eru lausar á þessu
tímabili, sem ella væru ómannaðar og engum til
gagns. Til að koma í veg fyrir þetta þarf breytingu
á reglugerð um ráðningar, sem vonandi nær fram
að ganga sem fyrst.
S.l. sumar komu 125 stöður (mánaðarstöður) til
úthlutunar fyrir þá 72 stúdenta, sem vildu vinna hér
á landi (35 af 5. ári og 37 af 4. ári) þannig að hver
fékk að meðaltali tæplega 2 stöður (miðað við 2,5
sumarið þar áður). 5. árs menn fengu þó hlutfalls-
lega miklu meiri vinnu af sumarleyfistímanum, en
sumarleyfi þeirra er 3 mán. á móti tæplega 4 mán.
4. árs stúdenta. 13 stúdentar unnu erlendis (10 af 4.
ári og 3 af 5. ári) og 6 stúdentar kærðu sig ekki um
vinnu (3 af hvoru ári).
3 stúdentar réðu sig í vinnu án samráðs við ráðn-
ingarstjóra, þar af 2 allt sumarið, allir af 5. ári.
Eins og reglugerð um ráðningar er í dag, veitir hún
mjög takmarkaða möguleika til að refsa þessum
mönnum, sem eru þar að auki oftast ekki félags-
bundnir. Er því vonandi að félagsmenn taki höndum
saman og samþykki breytingartillögu við reglugerð-
ina þar sem kveðið verður á um harðari refsiákvæði
gagnvart brotum sem þessum, svo þau verði úr sög-
unni í framtíðinni.
I vetur hefur nokkuð verið um vinnu og hefur tek-
izt allvel að manna þær stöður og þá einkum af 5.
árs mönnum á kúrsus í taugasjúkdómafræði, en
einnig af 4. árs stúdentum, sem með breyttu kúrsa-
fyrirkomulagi gefst nú meira tækifæri til þess.
Varðandi horfur í sumar er lítið hægt að segja,
en flest bendir til að töluvert verði um lausar stöður
á tímabilinu apríl-maí eins og venjulega. Allnokkur
fjöldi kandidata mun vera á förum erlendis og ein-
hver hluti 6. árs manna verður í „fílu“ i júní, þannig
að sennilega verður mest um vinnu þá, en þó skal
bent á það að júlí og ágúst hafa alltaf verið mestu
sumarleyfismánuðirnir og vegið þar nokkuð á rcnóti.
Gíróseðlar hafa verið sendir út, til að innheimta
kr. 1000 fyrir hverja læknisstöðu og kr. 600 fyrir
hverja hjúkrunar- eða meinatæknisstöðu, sem veitt
var s.l. sumar og hvet ég stúdenta eindregið til að
borga þetta lítilræði er hver og einn þarf að greiða.
Að lokum vil ég þakka stúdentum og vinnuveit-
endum samstarfið á s.l. ári, sem var nær undantekn-
ingarlaust mjög gott. Einnig átti ég mjög gott sam-
starf við ráðningarnefnd kandidata, sem er mikil-
vægt í þessu starfi.
LÆKNANE MINN
41