Læknaneminn - 01.12.1976, Blaðsíða 15
Þar er í rauninni skiljanlegt að burðarmálsdauði
hafi þetta mikil áhrif á heildardánartöluna, ef at-
hugað er línurit IV.
LÍMURIT IV HLUTI DANARTÓLU I 1.
\/IKU AF HEILDARDANAR
TOLU
bo%.
5o %.
tfo%-
3o%_
5I-5S Sb'bo 11-15
Það sýnir hluta dánartölu í 1. viku af heildardán-
artölunni. Lætur nærri að 2 af hverjum 3 börnum,
sem látast innan 5 ára aldurs, látist í 1. viku. Frá
1951-’75 hefur hlutfalið vaxið hægt en jafnt og er
komið upp í 65% 1971-’75. Með lækkandi dánar-
tölum teljum við að hlutfallið muni stöðvast við u.
þ .b. 75%. Lætur nærri að 2 af hverjum 3 börnum,
sem látast innan 5 ára aldurs, látist í 1. viku.
II . lf iiM'tiiiiiii sóttum
I þessum kafla eru teknir fyrir sjúkdómar er sótt-
kveikjur, bakteríur og veirur valda. Þetta er unnið í
2 hlutum. Annars vegar er athuguð stöðluð tíðni
sýkingasjúkdóma er dauða valda sem ein heild. Hins
vegar eru athugaðir einstakir sýkingasjúkdómar.
Við höfum unnið þessar niðurstöður úr töflum 2-8.
Stuðlaritin, sem á eftir fara, eru stöðluð m. t. t. með-
alfjölda barna 0-4 ára á hverju 5 ára tímabili.
Heildarfjöldi látinna 0-4. ára 1941-’55 af völd-
um sýkingasjúkdóma, sbr. stuðlarit nr. V.
Niðurstaða
1. Sama fylgni er milli stuðlarits V og stuðlarita I
og II.
2. Athygli vekur hin gífurlega háa dánartala ár-
anna 1941-’45. Þess ber að gæta að Sulfalyf eru al-
mennt komin í notkun fyrir 1940. Hins vegar er
penicillin ekki almennt í notkun fyrr en í byrjun
tímabilsins 1946-’50. Á milli þessara tímabila lækk-
ar dánartalan um sem næst 60%. Virðist penicillin
augljóslega eiga þar verulegan hluta að máli. Einn-
ig verður að benda á almennt betri hollustuhætti eft-
irstríðsáranna.
Ef teknir eru logaritmar af niðurstöðutölum
stuðlarits V, þá fæst línurit 5.
Þegar log. af dánartíðninni er tekinn kemur í ljós
bein lína. Liklega tökum við of mikið upp í okkur
ef við spáum því, að línan skeri X-ásinn einhvern-
tíma. Teljum við það í hæsta máta ólíklegt. Þó er
augljóst, að markmiðið ætti að vera engin dauðsföll
vegna sýkingasjúkdóma.
læknaneminn
13