Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1976, Blaðsíða 28

Læknaneminn - 01.12.1976, Blaðsíða 28
Greinargerð um kennslu í félagslœkningum Guðjón Magnússon læknir Nýlega hefur veriS sett á stofn nefnd til að gera tillögur um kennslu I félagslækningum, heimilislækningum og heilbrigðisfræSi við læknadeild H. í. Guðjón Magnússon læknir, sem stundar framhaldsnám í Sviþjóð í félags- lækningum, hefur samið eftirfarandi greinar- gerð til nefndarinnar. Er hún birt hér á þess- um vettvangi að tillögu og með góðfúsu leyfi höfundar. Efni það er greinargerðin fjallar um á fullt erindi til iæknanema, ekki sízt þegar höfð er i huga sú staðreynd, að læknanemar eiga engan fulltrúa í nefndinni. - Ritstj. Innyangur Enda þótt félagslækningar séu nýjar af nálinni í kennsluskrá HÍ eiga þær sér langa sögu, sem rakin verSur allt til ársins 1848, er kennsla hófst í grein- inni í Þýzkalandi. Hefur nýlega verið gefið út á veg- um háskólans í Oegstgeest, Hollandi, rit um sögu fé- lagslækninga í Evrópu 1848-1972. Er rit þetta byggt á svörum 48 prófessora í félagslækningum í átta Evrópulöndum.1 Því fer víðs fjarri að um sé að ræða eina sérgreinina enn í aukinni sérhæfingu læknisfræðinnar. Hins vegar er rétt að benda á að aukin sérhæfing hefur án efa átt sinn þátt í að félags- lækningar hafa á síðustu áratugum skipað hærri sess en fyrr í kennslu heilbrigðisstétta. Hvað eru þá félagslækningar? Verksvið félagslækninga er mjög yfirgripsmikið og að auki breytilegt í hinum ýmsu löndum. Vekur því varla furðu að margar skilgrein- ingar á félagslækningum hafa verið birtar. I áður- nefndu riti kemur fram að vitað er um a. m. k. 50 skilgreiningar. Sú skilgreining, sem almennast er viðurkennd í dag er sett fram af próf. Mervyn Suss- er, höfundi bókarinnar Sociology in Medicine, Ox- ford University Press, 1971. Þessi skilgreining er einnig notuð í bók próf. Gunnars Inghe, Socialmedi- cin 1, Metodik och sjukdomspanoramat, 1973. Skil- greiningin hljóðar svo: „The basic sciences and skills of social medicine apart from the common core of medical knovv- ledge, are epidemiology and the social sciences. By means of epidemiology social medicine studies the distribution of health, sickness and disease in social collectivities and the factors associated with these distributions. By means of social sci- ence, social medicine interprets the significance of these distributions, studies behavior related to health and sickness, and analyses the structure and function of medical organizations In brief, social medicine is the application of epidemiology and social sciences to the study and care of pati- ents individually and in mass.“ I upphafi hókar sinnar, Socialmedicin, segir pró- fessor Gunnar Inghe m. a.: „Socialmedicinen innefattar de faktorer hos manniskorna i deras samlevnad i olika sociala grupper, avensom de faktorer i samhallets struk- tur, vilka har inflytande pá det allmanna halso- tillstándet. Alla strávandena att genom ándring av dessa faktorer förbáttra individens och grupp- ens hálsotillstánd ráknas sálunda hit.“ Þessar ítarlegu tilraunir til skilgreiningar á félags- lækningum eru hér raktar þar eð nokkurs misskiln- ings hefur gætt4 hvert sé hlutverk félagslækninga og þá ekki sízt hvert sé samband félagslækninga og sam- félagslækninga (Community Medicine). Um þetta segir Susser svo:2 „The term social medicine is little used in the United States because of its clang association with socialized medicine, the connotions of which arouse the hostility of the organized medical pro- 24 LÆKNANEMINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.