Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1976, Síða 42

Læknaneminn - 01.12.1976, Síða 42
Námsbraut í hjúkrunarfrœðum í Hl Inngangur Ritnefnd Læknanemans hefur farið þess á leit við okkur, að við skrifuðum greinarkorn um hjúkrunar- fræðinámsbrautina, og í framhaldi af því birtast þessir punktar. Fyrst munu rakin nokkuð tildrög að stofnun hennar og stöðu. Þá mun gerð nokkur grein fyrir námsefni og kennsluaðferðum. Að síðustu mun rætt um það, hvað við tekur að námi loknu og nefndir nokkrir punktar varðandi háskólanám í hjúkrunar- fræðum erlendis. Uni tilurií námsbrautarinnar o. f. Hugmyndin um háskólanám í hjúkrunarfræöum er langt frá því að vera ný af nálinni. Það hefur verið fyrir hendi í Bandaríkjum N.-Ameríku síðan á fyrri hluta þessarar aldar og er nú einnig að finna í mörgum háskólum í Kanada og Bretlandi. Miklar umræður hafa orðið á síðari árum víða um lönd varðandi menntun hjúkrunarstéttarinnar og stöðu hennar innan heilbrigðiskerfisins. Stefnan virðist víða sú að færa menntunina, að hluta eða alla, á há- skólastig. Þetta speglast í eftirfarandi samþykkt, sem gerð var á þingi um hjúkrunarmenntun, er haldið var á vegum Alþjóða Heilbrigðismálastofnunarinnar í Haag, í október 1972, en þar segir meðal annars: „. . . Þau lönd, sem ekki hafa þegar tekið upp hjúkr- unarmenntun í háskóla, ættu að gera viðeigandi ráð- stafanir til aö færa þessa menntun á háskólastig og/ eða í aðrar stofnanir, tengdar háskóla . . Segja má því, að stofnun námsbrautarinnar hér hafi verið í beinu framhaldi af þessari samþykkt. ASdragand- inn að stofnuninni var langur og verSur ekki rakinn hér í smáatriSum. Til gamans má geta þess, aS Vil- mundur landlæknir Jónsson bar fram tillögu áriS 1943, þess efnis, aS æskilegt væri aS færa hjúkrunar- menntun inn í háskólann. Ekki komst þó skriSur á máliS fyrr en tæpum 30 árum seinna, eSa 1970, aS menntamálaráöuneytiS skipaSi nefnd til aS kanna möguleikana á háskólanámi í hjúkrunarfræöum. I álitsgerS er DavíS DavíSsson, þáverandi forseti læknadeildar, og Arinbjörn Kolbeinsson sömdu um þetta mál, dags. 26. 6. 1972, setja þeir fram eftirfar- andi forsendur fyrir háskólanámi í hjúkrunarfræS- um: „1) HjúkrunarstarfiS þarf aS breytast í samræmi viS flóknari og fjölþættari heilbrigSisþjón- ustu, sem krefst aukinnar þekkingar af hjúkr- unarfólki. 2) Orsakir hjúkrunarkvennaskorts liggj a meSal annars í því, aS núverandi nám gefur hjúkrun- arfólki ekki kost á faglegum þjóSfélagslegum frama. 3) Hjúkrunarfólk er vanmenntað með tilliti til sérhæfSra starfa, sem nútíma heilbrigSisþj ón- usta krefst . . .“ Þá leggja þeir og mikla áherzlu á, aS langskóla- nám stuðli að betri nýtingu vinnuaflsins, þ. e. færri hverfi frá vinnumarkaði með háskólamenntun að baki.1 Að lokaundirbúningi starfaði hin svokallaða „sjö manna nefnd“ undir stjórn Þórðar Einarssonar stjórnarráðsfulltrúa, og tók námsbrautin til starfa haustið 1973. í nefnd þessari áttu sæti fulltrúar menntamála- og heilbrigðismálaráðuneyta, háskóla- ráSs, læknadeildar Háskóla íslands og Hjúkrunar- félags Islands. Nefndin samdi m. a. drög aS reglu- gerS fyrir námsbrautina, en síðar var þeim drögum breytt, og endanleg reglugerS lá ekki fyrir fyrr en sumarið 1976. Tók hún gildi við birtingu í Stjórnar- tíðindum 22. 9. 1976.3 Námsbrautin starfar í tengslum við læknadeild háskólans. Stjórn námbrautarinnar er í höndum námsbrautarstjórnar, en dagleg stjórn er í höndum 36 LÆKNANEMINN

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.