Læknaneminn - 01.12.1978, Side 15
Sem hverfur við sjónstillingarlömun (cycloplegia).
Koma fram þreytueinkenni.
Oft eru þessir unglingar fjarsýnir með eða án
sjónskekkju.
I aldursflokknum 5-19 ára voru 5 drengir og 20
stúlkur með augnþreytu af þessum sökum. Hefur
greinarhöfundur veitt því athygli að geti börn ekki
slakað á sjónstillingu leiði það stundum til eigin-
legrar nærsýni síðar meir.
Augneinkenni frá öðrum líffœrakerfum
Sykursýk.i. Alls voru 7 sjúklingar með þekkta
sykursýki meðal hinna skoðuðu (yngri en 39 ára:
1 karl, eldri en 40 ára: 2 karlar og 4 konur). Ekki
fundust sjúklegar breytingar í augnbotnum hjá nein-
u.m þeirra.
Hár blóðþrýslingur. Augnbotnabreytingar í för
háþrýstings eru aðeins skráðar meðal tveggja sjúk-
linga. Var um blæðingar og serumútfellingar að
ræða í sjónu. Æðabreytingar einar út af fyrir sig
eru ekki tíundaðar hér vegna þess hversu lítt mark-
tækar þær eru og lítið leggjandi upp úr þeim einum
saman.
Vöðvagigt (eða vöðvaspenna) í hálsi og herðum
Spennuhöfuðverkur. Algengt er að sjúklingar með
vöðvagigt leiti til augnlækna. Helstu kvartanir eru
þrýstingur bak við augu, höfuðþyngsli, sem líkt er
við gjörð um höfuðið, augnþreyta og oft almenn
vanlíðan.
Oft má rekja þessa kvilla til þvingaðrar vinnustell-
ingar, einkum ef vinnan útheimtir mikla nákvæmni
og einbeitingu. I yngri aldursflokkum voru í þessum
hópi 4 karlar og 25 konur. Við augnskoðun fannst
ekkert sjúklegt við augu og sjónlagsgallar voru ekki
teljandi, a. m. k. ekki það miklir að þeir gætu skýrt
kvartanir.
I eldri hópnum voru mun færri: 2 karlar og 4
konur með þennan kvilla.
Sjóndepra og blinda (Low vision and blindness).
Við flokkun blindu er farið eftir reglum WHO um
skráningu blindra, þ. e. 6/60 sjón eða minni á betra
auga með besta gleri.
Af 1352 sjúklingum voru 11 einstaklingar, sem
eru það sjóndaprir að þeir teljast í flokki blindra
eða um 0,8% af skoðuðum og 0,3% af íbúum. Sam-
bærileg tala var 0,9% í Framingham-könnuninni.
Allir eru þeir komnir yfir áttrættH
Blindurorsakir eru þessar: Gláka 5 (4 karlar, 1
kona), ellirýrnun í miðgróf sjónu 5 (1 karl, 4 kon-
ur), drer 1 karl.
Mesta sjónskerðingin er meðal glákusjúkling-
anna: Einn er alblindur á báðum augum, 88 ára
(’78) og hinir með smá hliðlæga sjón (temporal
eyju).
Aðrir sjúklingar eru starfsblindir, þ. e. komast
leiðar sinnar nær óhindrað, en geta ekki lesið vegna
sjóndepru.
Blinda á öðru auga er tíunduð í 12. töflu. Þar
eru blinduorsakir mun fleiri. Alls 52 einstaklingar
eða 46,9%o eftir 40 ára. Þetta er nákvæmlega sama
talan (46%e) og í Framingham-könnuninniH
Gláka meðal karla er þar lang algengasta orsökin
og þar næst drermyndun á augasteini.
Með mikicf skerta sjón (partial sight) á betra
auga 6/18-6/24 en teljast ekki blindir, voru 28
skoðaðra. Lang algengustu orsakir voru drer og elli-
rýrnun í sjónu.
Shil
Athyglisvert er hversu mörg skólabörn og ung-
lingar koma til skoðunar. Sýnir þetta árangur
heilsugæslu í skólum og skilning á fyrirbyggj andi
aðgerðum. A heilsugæslustöðinni í Borgarnesi eru
öll börn 4^5 ára sjónprófuð af heilsugæsluhjúkrun-
arkonu og eru þau börn, sem finnast með sjóngalla
eða afbrigðilegt jafnvægi á augnvöðvum send til
augnlæknis, þegar hann er á ferð.
Orggasta ráðið til að lækna starfræna sjóndepru
og þjálfa augu til samstarfs, er að taka börn sem
fyrst til meðferðar og helst að hafa læknað áður en
þau hefja skólagöngu. Þegar barn er 7-8 ára er
sjónin orðin fullmótuð og erfitt um að bæta.
Lang algengasta orsök sjóndepru á öðru auga
fram yfir miðjan aldur er starfræn sjóndepra af
völdum mismunandi sjónlags á augum (anisome-
tropia).
Sjónlag breytist með aldri, einkum á tveimur
fyrstu áratugunum, meðan augað er enn í vexti.
LÆKNANEMINN
13