Læknaneminn - 01.12.1978, Side 17
FIG. 6
Comparison of visual acuity among glaucoma population and non-glaucoma population in glaucoma clinic
St. Josephs Hospital, Reykjavík and Borgarnes district 1978.
VISUAL ACUITY
6/6-6/15 Snellcn.
--------- /Von glaucoma population 1275 indiviuals 50 years and older.
Glaucoma population 624 individuals 50 years and older.
stigi eða orðin blind, sjá 6. töflu. Sjónskerpa gláku-
sjúklinga segir lítið sem ekkert um gang sjúkdóms-
ins fyrr en á lokastigi. Þegar borin er saman sjón-
skerpa glákusjúklinga og ekki-glákusjúklinga í sömu
aldursflokkum, kemur í ljós að heldur fleiri eru með
slævða sjón í glákuhópnum, hvort sem miðað er
við öll augu að betra auga, sjá 6. mynd. Slævð
sjón meðal glákusjúklinganna orsakast mestmegnis
vegna þess, að drermyndun er algengari meðal
glákusjúklinga en annarra. Eftir áttrætt eru að til-
tölu jafnmargir með nothæfa lestrarsjón á betra
auga meðal glákusjúklinga og ekki-glákusjúklinga,
sjá 6. mynd.
Við samanburð á ellidreri (cataracta senilis) í
þessari könnun og við Framingham-könnunina kem-
ur í Ijós svipuð aukning í aldursflokkum og að drer
er tíðari kvilli meðal kvenna en karla, þó ekki mark-
tækur munur. Heildaralgengi drers í Framingham-
könnuninni var 15,6% meðal íbúa 52-85 ára svipað
og í þessari könnun, þegar drer meðal glákusjúk-
linga eru meðtalin. Ath. að í 8. töflu eru glákusjúk-
lingar ekki taldir með.
læknaneminn
15