Læknaneminn - 01.12.1978, Page 21
TABLE 12
Monocular blindness arnong 689 patients 40 years
and older individuals in Borgarnes district 1978
(Visual acuity 6/60 or less).
M F
Ablatio retin.ae, seqv........................... 1
Amblyopia ex anopsia .................. 2 2
Cataracta ....................................... 3 6
Degeneratio macularis senilis ........................... 4
Dystrophia corneae ...................................... 1
Glaucoma ....................................... 17 4
Keratitis disciformis, seqv.............................. 2
Leucoma corneae post keratitis .......................... 2
Myopia degenerativa et nuclear sclerosis..... 1
Retinopathia areata ..................................... 1
Thrombosis v. centralis retinae.............. 1 1
Uveitis seqv............................................. 2
Trauma .......................................... 1 1
Total 26 26
Blinda. Miðað við íbúatölu Borgarnesslæknisum-
dæmis eru um 3 af þúsundi sem eru það sjóndaprir
að þeir teljast blindir skv. skilgreiningu WHO. Er
þetta sama hlutfall og greinarhöfundur fann við
blindukönnun hér á landi 1950.13 Var glákublinda
þá í yfirgnæfandi meirihluta blinduorsaka en tiltölu-
lega fáir skráðir með ellirýrnun í sjónu. Nú teljast
jafnmargir blindir af þessum orsökum.
Sennilegt er að ekki nema hluti af ellirýrnuninni
hafi þá komist á skrá, því blindumarkið var þá mið-
að við 3/60 Snellen og margt fólk, sem misst hafði
lestrarsjón og komst allra sinna ferða taldi sig ekki
vera blint. Er því ekki hægt að bera saman blindra-
tölur nú og fyrir nokkrum áratugum. Sennilegt er
að glákublinda sé á undanhaldi og benda kannanir,
sem gerðar hafa verið á göngudeild augndeildar
Landakotsspítala til þess.6
JVt Surstaða
Almennur augnhagur hér á landi virðist sam-
kvæmt framanskráðu yfirliti vera svipaður og með-
al nágranna okkar austan hafs og vestan.
Sjúkdómar, sem orsaka blindu, eru tíðastir meðal
aldraðs fólks og eru þeir sömu hér og í nágranna-
löndum, nema að sykursýkisblinda hérlendis er lítt
farin að gera vart við sig ennþá, en er orðin tíðust
blinduorsök meðal fólks yngra en 65 ára í neyslu-
þjóðfélögum. Þó að sjóndepra af völdum sykursýki
sé ennþá sjaldgæf hér á landi, er hún þó í uppsigl-
ingu, því æ fjölgar sykursýkissjúklingum og þeim
sem komnir eru með sykursýkisskemmdir í augn-
botna. Á tveimur síðustu árum hefur þurft að senda
allmarga sjúkinga með yfirvofandi sykursýkisblindu
til útlanda í lasergeisla og ljósmeðferð (photo-coa-
gulation). Þurfum við því sem fyrst að hefja slíka
meðferð hér heima.
Blinda af völdum gláku virðist vera á undanhaldi,
enda er mun auðveldara að fylgjast með gláku-sjúk-
lingum nú en fyrir nokkrum áratugum. Fólk leitar
mun fyrr og oftar til augnlækna en áður og margir
komu gagngert til að fá úr því skorið, hvort það sé
með gláku, einkum ef blinda er í ættinni. Margir
heilsugæslulæknar mæla augnþrýsting meðal sjúk-
linga sinna og eru þar með virkur þáttur í sjónvernd
meðal aldraðra. Þarf slík þjónusta enn að aukast.
Drer kemur alltaf til með að valda meiri eða
minni sjónskerðingu, en fáir blindast af drermynd-
un nú orðið, því aðgerðartækni hefur mjög farið
fram á síðari árum og aðgerðaráhætta tiltölulega
lítil.
Ekki eru vísindin komin á það stig ennþá, að
unnt sé að bæta sjón þeirra mörgu, sem fá ellirýrn-
un í miðgróf sjónu og ekki heldur hægt að stöðva
þróun sjúkdómsins. Koma þarf upp sjóntækjabún-
aði fyrir fólk með skerta sjón (low vision clinic)
því sjónskert fólk er margt hér á landi þó ekki telj-
ist það blint eins og um getur í þessari grein.
Með sífelldri aukningu fólks í eldri aldursflokk-
um mun þeim fjölga, sem verða sjónskertir af völd-
um ellibreytinga í augum. Þarf því að leggja áherslu
á að fylgjast vel með glákusjúklingum eins og þegar
er gert með reglulegum augnlækningaferðalögum
um landið og á glákudeild augndeildar Landakots-
spítala, þar sem mikill fjöldi glákusjúklinga er í eft-
irliti (um 650 einstaklingar í árslok 1978) og sömu-
leiðis stór hópur, sem grunaðir eru um gláku.
Sjónvernd meðal barna þarf að aukast og hlú þarf
betur að þeirri starfsemi, sem annast þennan þátt
heilbrigðisþjónustunnar. Það sem er mest aðkall-
andi á þessu sviði er leit að starfrænni sjóndepru
meðal barna og leyndri skjálg og taka þau börn
17
læknaneminn