Læknaneminn - 01.12.1978, Page 54
Húsið á horninu
Hrafnkell Óskarsson læknanemi . Myndir: Konráðs S. Konráðsson
Ef eitthvert ykkar gerðist sögulega sinnað og fletti
upp í annálum (Olclin sautjánda og systur hennar
duga ef annað bregst), þá finnið þið svaðalýsingar
á aðbúnaði nemenda í t. d. Skálholtsskóla og Hóla-
vallaskóla. Lek hús, frost á þiljum, sex vindstig í
kennsluslofum etc. En nú er öldin önnur (Öldin
okkar 4. bindi). Eins og allir góðir Velvakendur
vita, þá er hlaðið undir þessa stúdentsræfla og
styrkjapakk og til þess eytt of fjár af skattakrónum
heiðarlegra borgara, ekki satt?
Á horni Skothúsvegar og Tjarnargötu stendur t.
d. virðulegt steinhús, sem hýsir lesstofu læknanema.
Húsið er fallega sementsgrátt að lit, og sprungurnar
í veggjunum gefa því virðuleikablæ. Ræktarlegur
njóli og túnvingull vaxa milli hellna og í tröppum
og auka með látleysi sínu við „sjarma“ hússins.
Þegar inn kemur sést, að sprungurnar ná flestar í
gegnum veggina og er þar því sjálfvirk loftræsting
auk annarra þæginda.
Hinar sígildu Síberíuljósakrónur lýsa aldinn virðu-
leik hússins og eru enda mjög í stíl við húsið. Að
vísu er löngu búið að lofa einhverjum byltingarsinn-
um ljósum af annarri tegund, en sem betur fer er
PlasklœSningar í loftum til lekavarna.
Vatnsskemmdir á bókum vegna lekans.
það svikið jafnóðum. Aðrir byltingarseggir reyndu
róttækar breytingar og settu hljóðeinangrandi plöt-
ur í loftið og sparsl í óteljandi sprungur og flekki á
veggjum og lofti, en húsið hefur varist vel og skilar
þessum aðskotaefnum jafnharðan aftur.
Svo sem áður er getið, eru ýmis þægindi í húsinu,
t. d. rennandi kalt vatn. Að vísu rennur stundum
treglega úr krönum, en þar bætist upp, með frjálsu
rennsli úr loftum, einkum í sjókomu og frosti eða
rigningu og hláku. Auk þess, sem þetta er mjög
Léleg nýting húsnœðis.
44
LÆKNANEMINN