Læknaneminn - 01.12.1978, Side 55
Betra salernið.
hentugt, þá getur þetta sparað mikinn lestur, t. d. ef
Harrison blotnar og blaðsíðurnar límast saman tvær
og tvær. Einnig örvar þetta rennsli hugmyndaflug
manna og athafnaþrá. Eru hér ,,konstrúeraðar“
rennur, afföll og safnþrær af mikilli list og mætti
sjálfsagt leigja verkfræðideildinni húsið fyrir offjár
sem þjálfunarbúðir.
Hús þetta er enda svo stolt af sjálfu sér, að það
veit varla í hvert hornið það á að stíga. Þetta veld-
ur svo því, að menn þurfa helst að vera tveir til þrír
um að loka hverri hurð, en aftur á móti opnast þær
oft á tíðum sjálfkrafa, til mikillar hagræðingar.
Eins og sæmir öldungi, þá er rennsli í æðakerfi
hússins tregt. Ofnar ná að volgna lítillega á blettum,
en eru ekki affögufærir u,m varrna til umhverfisins.
Auk þess er loftið oft á hraðferð á leið sinni um
húsið, og örvar þetta mjög heilbrigðar athafnir s. s.
skjálfta, handanudd og formælingar.
I myrkviðum kj allarans hefur náttúran svo komið
upp vísi að dýrasafni (ekki meint til ykkar strákar,
alveg satt!) og væri upplagt að fara þangað í vett-
vangskönnun í Hygienu.
Einhver hafði á orði að menn hefðu verið Iausir
við á lesstofunni um jólin, en allt á sínar skýringar:
Um jólin ég þótti við lærdóminn laus,
en lesið ég gat ekki staf,
því „Harrison“ fastan í hillunni fraus
en hinar þar fennti í kaf.
Minni og minnistruflanir
Framh. aj bls. 43.
komið um eðli gagnaugablaðs skemmda ýmist á
víkjandi eða ríkjandi hlið. Þá hefur ekki verið rætt
neitt um óteljandi afbrigði af traumatiskri amnesiu.
Sjúklingur sem kvartar um skert minni lýsir stund-
um þessari skerðingu á raunsæjan hátt, en oft kem-
ur í ljós að það sem hann telur vera skert minni er
alll annars eðlis. Athugun á minnistruflunum veitir
því mikilvægt innsæi í sálarlíf og úrvinnsluhæfni.
HEIMILDIR:
1. A. D. Braddeley: The Psychology of Memory, Harper &
Row, London, 1976.
2. G. Underwood: Attention and Memory, Pergamon Press,
Oxford, 1976.
3. McGaugh, J. L. et al. (eds.), Controversial issues jn con-
solidation of the memory trace, N. Y. Atherton Press,
1970.
4. Scoville, W. B. & Milner, B.: Loss of recent memory
after bilateral hippocampal lesions. Journ. of Neurology,
Neurosurgery and Psychiatry, 20, 11-21, 1957.
5. Papez, J.: A proposed mechanism of emotion. Archives
of Neurology and Psychiatry, 38, 725-743, 1937.
6. Horel, J. A.: The neuroanatomy of Amnesia. A critique
of the hippocampal hypothesis. Brain, 101, 403-445, 1978.
7. Barbizet, J.: Human Memory and its Pathology, San
Francisco, Freeman, 1970.
8. Pribram, K. H.: The neurobiology of remembering.
Scientific American, 1969, 220, 73-88. (b).
9. Luria, A. A.: The Neuropsychology of Memory, John
Wiley & Sons, 1976.
10. Henry, G. M. et al.: Influence of affective states and
psychoactive drugs on verval learning and memory.
American Journal of Psychiatry, 1973, 130, 966-971.
LÆICNANEMINN
45