Læknaneminn - 01.12.1978, Blaðsíða 56
Fyrirhugaðar breytingar á Reglugerð Hl
Viðtal við Eirík Þorgeirsson læknanema
Á dögunum barði blaðamaður Læknanemans upp á
hjá formanni félagsins til þess að fræðast um það
hvað liði endurskoðun núgildandi reglugerðar HI,
sem er að meginstofni til frá 1958. Á þeirri reglu-
gerð hafa verið gerðar margar og sundurliðaðar
breytingar frá 1958. Á þeirri reglugerð hafa verið
gerðar margar og sundurleitar breytingar sem erfitt
er að átta sig á. Eins og læknanemum er kunnugt
hafa læknanemar oft lent í deilum við deildarstj órn
um túlkun reglugerðarinnar og tilkvaddir lögfræð-
ingar ekki alltaf verið á einu máli um túlkun henn-
ar. Einnig hefur löngum verið vitað að hinar fast-
bundnu reglur um skipulag læknanáms, kennslu-
greinar, próf og vægi, hafa staðið deildinni fyrir
þrifum og torveldað allar skipulagsbreytingar og
samhæfingu á námi (intergration). Auk þessa hefur
læknadeild skorið sig úr öðrum deildum háskólans
í mörgum veigamiklum réttlætismálum stúdenta.
Þannig hafa verið harðari reglur um t. d. próf og
endurtekningu þeirra í læknadeild en öðrum deild-
um.
Blm.: Hvernig hefur verið staðið að fyrirhuguð-
um reglugerðarbreytingum?
Eiríkur: Á háskólaráðsfundi þann 28. október ’76
var kjörin 7 manna nefnd til þess að endurskoða og
samræma innbyrðis reglugerð fyrir Hí, svo og til
þess að gera tillögur að reglugerðarbreytingum
vegna setningu laga um Hí nr. 84/1970 og 45/1976.
Nefndin hélt alls 54 fundi og kal'laði meðal annars
alla forseta háskóladeilda á sinn fund og skilaði af
sér ítarlegu plaggi síðastliðið vor, í maí ’78.
Deildarráð læknadeildar hafði þá stofnað nefnd
til þess að fjalla um reglugerð deildarinnar og fékk
hún þetta reglugerðarplagg í hendurnar. Í nefnd
læknadeildar störfuðu mest Hannes Blöndal formað-
ur, Gunnar Guðmundsson, Jónas Hallgrímsson,
Tryggvi Ásmundsson, Gunnar Gunnlaugsson, Ást-
ríður Jóhannesdóttir stúdent og ég sem fulltrúi FL.
Nefnd deildarráðs hóf störf síðastliðið vor og
skilaði af sér til deildarráðs í október sl. Þá komu
reglugerðarmálin til umfjöllunar í deildarráði. End-
anlega var gengið frá tillögum læknadeildar á deild-
arfundum í janúar og febrúar sl. og málið þá sent
háskólaráði.
Blm.: Endurskoðun reglugerðarinnar hefur því
tekið 2J/o ár og enn bólar ekkert á því að breytingar
komist á.
Eiríkur: Það er rétt. Ljóst er að það er ekkert
áhlaupaverk að ráðast í heiklarendurskoðun laga og
reglugerða fyrir stóra og margbrotna stofnun eins
og Hl er. Gæta þarf hagsmuna margra aðila og leita
víða umsagna. Breytingatillögur einstakra deilda
eru nú komnar til umfjöllunar háskólaráðs. Stefnt
er að því að koma fram nauðsynlegustu breyting-
um og samræmingaratriðum hið snarasta og óska
samþykkis núsitjandi Alþingis fyrir vorið.
Að líkindum munu ágreiningsatriði í háskólaráði
sett í nefnd á nýjan leik, svo lítið verður um það
sagt á þessu stigi hver endalokin verða í einstökum
atriðum.
Blm.: Hvernig hefur þátttaka stúdenta heppnast í
þessu starfi?
Eiríkur: Eins og fram kom áðan þá áttu stúdentar
1 fulltrúa í nefnd háskólaráðs frá ’76 og síðan eiga
stúdentar sæti í reglugerðarnefndum einstakra
deilda, og við eigum 2 fulltrúa í deildarráði og 11 á
deildarfundum. 1 heild held ég megi halda því fram
að stúentar hafi komið fjölmörgu jákvæðu til leið-
ar í þessu starfi og samstarfið í stórum dráttum
gengið vel.
Blm.: Getur þú gefið okkur nokkra hugmynd um
nýjungar og breytingar, sem fram hafa komið í til-
lögum læknadeildar.
Eiríkur: Fyrst má kannski nefna að við áttum
frumkvæðið að tillögu um að deildarforsetar eigi
rétt á að vera leystir undan kennsluskyldu að ein-
46
LÆKNANEMINN