Læknaneminn - 01.12.1978, Side 58
segja sig úr prófi vegna t. d. meðvitaðs vanhæfis í
viðkomandi námsgrein, hafa ekki sama rétt og hinir
fyrrnefndu. MeS breytingunni verður að nokkru
tryggt, að þeir sem ekki vilja hagnýta sér veikleika
kerfisins, standi jafnréttháir hinum, sem kynnu að
íalla „tæknilega“ að vori og endurtaka að hausti.
2. Ymsir hafa orðið til þess úr kennaraliði deild-
arinnar, að vara við framangreindri nýbreytni með
þeim rökum, að stúdentar myndu almennt notfæra
sér þetta frjálsræði og fresta t. d. einu prófi af
þremur frá vori til hausts. Mikil aðsókn að haust-
prófum myndu síðan aftur krefjast aukinnar vinnu
af kennurum einmitt á þeim tíma, sem vetrarstarfið
er að hefjast með skipulagi þess o. s. frv. Þetta
kæmi einnig inn á sumarleyfistímann.
Þessu má svara að hluta hér á þann hátt, að benda
á, að heildarfj öldi prófúrlausna vor og haust verður
vafalaust minni, þegar fleiri gangast undir þau með
meiri vissu um að uppfylla kröfurnar en nú er. Skil-
yrði þess að þreyta haustpróf er nú, að hafa ekki
uppfyllt prófkröfur að vori.
Jafnframt skal bent á, að gert er ráð fyrir að sér-
stökum sjúkraprófum fækki. Þannig verður ekki séð
að þörf sé á sjúkraprófum í júní, þegar kostur er
að gangast undir próf í september.
Haustpróf eru nú haldin, þótt þau séu skilyrðum
háð og því jafnmikil vinna að semja þau eftir sam-
þykkt þessarar tillögu.
Unnt er að semja haust- og vorpróf samtímis að
vori og raunar mun eðlilegri vinnubrögð. Ef litið
er til framangreindra atriða er ljóst að heildar
prófálag færi stórlega minnkandi fyrir kennara.
3. Onnur gagnrök kennara eru þau, að fyrrnefnd
ákvæði um haustpróf í læknadeild mismuni stúdent-
um fjárhagslega. Efnameiri, sem ekki þurfa að
vinna fyrir sér, hefðu umfram aðstöðu yfir hina,
sem af efnalegum ástæðum neyðast til þess að vinna
með námi eða á sumrin. Hugsanlega er nokkuð til í
þessu, en þó skal þess getið að Lánasjóður íslenskra
námsmanna tekur fullt tillit til þess í útreikningi
lánþarfar, ef stúdent aflar ekki tekna að sumarlagi
vegna haustprófa eða af öðrum sökum. Þannig að
jafnvel þessi rök teljast fallin.
4. Gagnrök sumra kennara eru þau, að lækna-
deild beri að veita stúdentum aðhald í námi með
þröngum prófreglum. Að sjálfsögðu er það ekki
hlutverk frjáls háskóla að taka að sér þá furðulegu
umhyggju. Stúdentum skal í sjálfsvald sett, að svo
miklu leyti sem mögulegt er, hvernig þeir haga námi
sínu innan tímatakmarka.
5. Enda þótt talsverð áhersla hafi hér verið lögð
á aukið frjálsræði, sem af samþykkt tillögunnar
hlytist, eru flutningsmenn þess fullvissir, að stúdent-
ar munu ekki að nauðsynjalausu fresta prófum.
Idins vegar er Ijóst að undanþágubeiðnum mun stór-
lega fækka og nefndir og ráð, sem kjörnar eru lil
þess að stjórna deildinni, hefðu aukið ráðrúm til
þess að sinna mikilvægari málefnum.
6. Að lokum skal minnt á, að nánast allir kenn-
arar þessarar deildar gátu sagt sig úr prófi eða frest-
að um hálft ár, þegar þeir stunduðu þetta nám og
sumir þeirra notfærðu sér það. Þess vegna verður
ekki að óreyndu trúað, að deildin leggist gegn þessu
frjálsræði, sem raunar hefur gilt í öllum öðrum
deildum háskólans til þessa.
Ekki er kostur að gera öllum tillögum læknanema
eða læknadeildar jafn ítarleg skil nú, en að lokum
get ég rétt nefnt fáein atriði sem fram fengust í
þessu starfi:
1. Próftafla birtist í kennsluskrá, í stað j/2 mán-
uði fyrir próf.
2. Ursögn úr prófi skal berast skriflega til há-
skólans 3 dögum fyrir próf í stað 7 dögum fyrir
próf.
3. Kennari og prófdómari (þegar um það er að
ræða) gefa báðir einkunn, sem eru jafn gildar. Um
þetta er deilt í sumum deildum.
4. Kennslustj óri skal ráðinn til 2ja ára í senn og
starfið auglýst, en það hefur ekki tíðkast í lækna-
deild.
5. Stúdentar fái atkvæðisrétt á deildarfundum,
þegar leitað er álits á umsækjendum um kennara-
stöðu við deildina. Þetta yrði algjör nýjung. Á
deildarfundum höfum við 11 fulltrúa af 65. Hins
vegar var felld tillaga um að stúdentar fengju mann
í dómnefndir um hæfi umsækjenda.
6. Eftirfarandi var samþykkt á deildarfundi:
„Stúdent á rétt til að fá útskýringar kennara á mati
skriflegrar úrlausnar sinnar, ef hann æskir þess bréf-
lega innan 15 daga frá birtingu hennar. Vilji stúdent
ekki una mati kennarans getur hann snúið sér til
48
LÆKNANEMINN