Læknaneminn - 01.09.1982, Blaðsíða 16
Eitrunarvaldar TAFLA 1 Fjöldi dauðsfalla Eitrunarvaldar Fjöldi dauðsfalla
Allýprópýmal l Klórmezanón+díazepam 1
Alkóhól 10 Klórmezanón+paracetamól 1
Amítriptýlín 4 Koloxíð 8
Amítriptýlín+alkóhól 3 Koloxíð+alkóhól 14
Amítriptýlín+alkóhól+díazepam 2 Maprótilín+salicýlsýra 1
Amítriptýlín+alkóhól+mepróbamat 1 Mebúmal 7
Amítriptýlín+díazepam+ísókarboxazíö 1 Mebúmal+alkóhól 2
Amítriptýlín + klózapín+prómetazín 1 Mebúmal+alkóhól+díazepam i
Amítriptýlín + maprótilín 2 Mcbúmal+alkóhól+amítriptýlín+klórdíazepoxíð 1
Bútan i Mebúmal+fenemal+mepróbamat i
Dextróprópoxýfen 2 Mebúmal + maprótilín i
Digoxín 2 Mepróbamat i
Díbenzepín + nortriptýlín I Nítrazepam + alkóhól i
Díazepam+alkóhól 7 Nortriptýlín i
Díazepam+alkóhól+prómetazín 1 Nortriptýlín+alkóhól i
Doxepín 1 Nortriptýlín + alkóhól+klórprótixen i
Doxepín+ergótamín+koffeín 1 Orfenadrín i
Fenemal + alkóhól 3 Oxíklórókín i
Fenemal+alkóhól+flúrazepam 1 Prómazín+alkóhól i
Fenemal+alkóhól+klórdíazepóxíö 1 Própranólól 3
Fenemal+díazepam+salicýlsýra 1 Própranólól+dífenhýdramín 1
Flúrazepam+alkóhól 1 Súxametóníum 1
Karbamazepín+díazepam 1 Tíórídazín+brómfeníramín 1
Klóral 2 Tólúen + ísóprópanól 1
Klóral + alkóhól+díazepam 1 Trímípramín + digoxín 1
Klórdíazepoxíð+alkóhól Frh. 1 Samtals 107
post mortem. I heila er myndun á
cýaníði aftur á móti óveruleg. Við
rannsókn á heila fást því betri upp-
lýsingar um hugsanlega cýaníðeitrun
en við rannsókn á blóði.
Post mortem geta orðið verulegar
breytingar á bindingu Iyfja í vefjum
og er þá hætt við að jafnvægi þeirra
milli blóðs og vetja raskist. Lyf, sem
bindast mjög í vefjunt geta þannig
losnað og síast út í blóðið og valdið
mælanlegri hækkun á blóðþéttni. í
slíkum tilvikum getur verið varasamt
að draga ályktanir af mælingum, sem
gerðar hafa vcrið á þéttni sömu lyfja í
blóði Iifandi manna. Réttarefna-
fræðilegt mat styðst þá við niður-
stöðutölur mælinga í öðrum líffær-
um. Samaer uppi á teningnum, þegar
ekkert öruggt santhengi er milli eit-
urhrifa og blóðþéttni eða skammta
og blóðþéttni, eins og t.d. hjá sumum
fentíazínsamböndum. Svipað á einn-
ig við um geðdeyfðarlyf, en þar er
lélegt samhengi á milli blóðþéttni og
eitrunareinkenna. Auðveldara er að
setja banvæn áhrif þessara lyfja,
a.m.k. amítriptýlíns, í samband við
þéttni þeirra í heila en þéttni þeirra í
blóði. lifur eða þvagi (Kristinsson et
al. 1983).
Við dauðsföll af völdum eitrana er
algengast að fleira en eitt lyf eða
eiturefni komi fyrir í sama málinu
(sjá síðar). Veldur þetta umtalsverð-
um erfiðleikum við réttarefnafræði-
Iegt mat. Algengast er að áfengi og lyf
komi fyrir samtímis, en áfengi eykur á
áhrif flestra lyfja, sem hafa slœvandi
áhrif á miðtaugakerfið. Algengt
dæmi um slíkt eru eitranir af völdum
barbitúrsýrusambanda og alkóhóls
(Jóhannesson, Þ. et al. 1973). Enda
þótt ekki sé vitað með vissu hvernig
samverkun barbitúrsýrusambanda
og alkóhóls er háttað, má oftast túlka
þessi mál með hliðsjón af fjölmörg-
um hliðstæðum málum, sem getið er
um í heimildum. Öðru máli gegnir
um sjaldgæfari lyf, og lyf með lítt
þekktar eiturverkanir, þar sem erfitt
getur reynst að finna hliðstæð mál til
samanburðar. A síðari árum hefur
verið tilhneiging í þá átt að fleiri og
fleiri lyf og eiturefni komi fyrir í
hverju máli. Samverkanir lyfja er lúta
að eitrunum eru oft lítt þekktar og
14
LÆKNANEMINN “"‘/ísej - 35. árg.