Læknaneminn - 01.09.1982, Blaðsíða 55
Þættir (frh.)
Brands þáttur fiðlu
Örvar Klumps
Árið 1914 bjó í Sauradal Hlaðfussi
jarl. Hann var brjálaður. Brjálaðri
var þó kona hans en hún var asni.
Hún hét Móða. Syni áttu þau hjón
tvo. Voru þeir báðir fífl en annar
aumingi til viðbótar. Þóttu þeir
mjög draga dám af hvor öðrum og
verða við það ekki betri. Hesta áttu
þau fjóra og voru allir dauðir. Hús-
um var þannig háttað í Sauradal
að til vinstri var hlaða en til haegri
mehús. Þar áttu hjónin eina kind.
Hún var svo vitlaus að varð að
binda hana til að ekki færi sér að
voða. Mehúsið var að hruni komið
en hlaðan hrunin. Uppi yfir henni
var íbúðin. Hélt hún þrjú herbergi
og var skítur í hverju. Eitt var eld-
hús og þar eldaði Móða pöddu-
grauta og rottusúpur. Salerni var
þar og inni. Bræðurnir áttu saman
herbergi og lágu þar um daga. Um
nætur hjóuðu þeir föður sinn og
naflaskoðuðu móður sína. Var
það þeirra besta skemmtun. Syst-
ur áttu þeir forljóta. Hún hét Röra
og stóð hverjum manni opin sem
hafa vildi. Á hlaðinu var fjóshaug-
ur og sóttu þau fimm þangað and-
lega næringu sína.
Á næsta bæ þeim er Órofa-
mygludalur heitir bjó Brandur
fiðla. Hann var varmenni mestaog
í öllu ójafnaðarmaður. Synir hans
voru þrír og hétu Jarpur, Ljótur og
Guðgeir. Þeir fyrrnefndu þóttu
líkir föður sínum en Guðgeir besti
maður. Kvöld eitt í ágúst fóru þeir
feðgar Brandur, Ljótur og Jarpur
og drápu Guðgeir. Hvarf hann þá
úr heimilislífinu. Kerlingu hafði
Brandur átt en hana löngu í tunnu
saltað og étið.
Nú skeði það einn fagran vor-
morgun að þeirfeðgartóku orf sín
og Ijá og héldu á engjar. Ekki
höfðu þeir lengi slegið þegar
Hlaðfussi jarl og synir hans úr
Sauradal koma æðandi. Brandur
fiðla brá þá Ijánum og sneið
bræðurna í sundur um brisið.
Faðir þeirra var síðan handsam-
aður, fæturnir höggnir af honum
og hendurnar en nefið allt barið í
klessu. Þeir feðgar yfirgáfu nú
Hlaðfussa jarl bjargarlausan og
héldu heim í Sauradal. Hittu þeir
þar Móðu kerlingu sem stóð og
stritaði við grautarpott. Átu þeir úr
henni augun og stungu síðan öf-
ugri ofan í pottinn. Því næst lögðu
þeir eld í hús og brenndu en tóku
dótturina Röru með sér heim til
dundurs. Lifðu þau saurugu lífi í
Órofamygludal til ársins 1915 er
bærinn sprakk og þau dóu.
Lýkur þar Brands þætti fiðlu.
Gjaldkeri skúrar.
Gjaldkeri háttar.
Þar sem blaðið er frábært vill rit-
stjóri nota tækifærið og óska sér
og samstarfsmönnum sínum til
hamingju. Óski menn eftir að
hrósa ritstjóra eða láta aðdáun
sína í Ijós er hann til viðtals á her-
bergi sínu að Hrafnistu milli klukkan
5 flesta daga nema á afmælinu sínu.
Eftirfarandi lesningu er að finna á
ungverskum strætómiðum: A
jegyet az utazás megkezdésekor
— az utasnak — a jegykezelö
készulékkel érvényesíteni kell.
Érvényesítés után át nem
ruházható. A jegyet ellenörzésre
át kell adni.
Læsilegt, ekki satt?
LÆKNANEMINN 3~V,M2 - 35. árg.
53