Læknaneminn - 01.09.1982, Qupperneq 32
Marglitur sauðahópur kom til ráðstefnunnar.
„Námsáhugi“ í Cambridge
StefnirSvan Guðnason
og
Sigríður Dóra Magnúsdóttir læknanemar
legur fundur. Allur tíminn fór í aö
þrefa um þaö hver ætti að verða
næsti formaður NMS en enginn
virtist hafa áhuga á því að ræða
sameiginleg mál læknanema. Sá
sem harðast gekk fram í því að
verða kjörinn formaður var Svíi
nokkur frá Umeá. Hann taldi sig
langbestan til starfans, hann hafði
nefnilega setið í einni af 1000
starfandi námsnefndum í Svíþjóð.
Sökum útlits hans og hversu
húmorslaus hann var reyndum við
Stefnir allt til að koma i veg fyrir
ráðningu hans, bentum meðal
annars á Finna nokkurn sem
kvöldið áður hafði tekist að særa
þjóðernistilfinningu Norðmanna
all hressilega á opinberum vett-
fangi með þvi að klæðast norska
fánanum, auðvitað ölvaður eins og
sannur Finni. En allt kom fyrir
ekki, Svíinn fékk nafnbótina sem
hann sóttist svo eftir, jafnframt því
sem hann lofaði að vera duglegur
formaður. Þegar þetta er skrifað
hefur ekkert heyrst frá honum,
hálfu ári seinna.
Að lokum vil ég geta þess að við
Stefnir urðum fyrir miklum von-
brigðum með þessa för til Þránd-
heims. Allur sá tími sem fór í að
ræða einhver áhugamál einstakra
manna á þingi NFMU og ekki síst
þessi mikla deyfð sem ríkir í NMS
rýrðu trú okkar á tilverurétt þess-
ara samtaka í núverandi mynd.
Því er það skoðun okkar Stefnis
að endurskoða þurfi aðild okkar
að þessum tveim samtökum í ná-
inni framtíð.
I lok september 1982 var haldin
ráðstefna í bænum Cambridge á
Englandi. Þar var fjallað um
hvernig best væri að vekja og við-
halda áhuga læknanema á nám-
inu. AMEE (Association for Medi-
cal Education in Europe), þ. e.
samtök læknaskóla í Evrópu
héldu ráðstefnuna en slíkar sam-
komur eru árlega. Sú síðasta var í
Madríd og voru þá viðfangsefnin
fjöldatakmarkanir og skipulag
læknakennslu.
í Cambridge vorum við greinar-
höfundar fulltrúar Félags lækna-
nema. Á vegum læknadeildar H.í
voru þarna þrír menn, Jón G. Stef-
ánsson, Högni Óskarsson og Ás-
mundur Brekkan. Ásmundur
puntaði upp á samkunduna með
konu sinni Ólöfu. Ráðstefnan var
fjölmenn, þátttakendur voru um
250 talsins en stúdentar mjög fáir
eða 11.
Ráðstefnan byrjaði á mánudegi
með hanastéli, lítið meira vargert
þann daginn. Næstu tvo morgna
héldu tíu menn frá átta löndum
framsögu og voru umræður eftir
hvert erindi. Eftir hádegi báða
dagana störfuðu umræðuhópar
þar sem rætt var um áhrif t. d.
kennara, prófa, námsefnis, skipu-
lags deilda, kennsluaðferða o.fl. á
námsáhuga. Við störfuðum sitt í
hvorum umræðuhópnum, einnig
sátum við nokkra fundi með stúd-
entum sem á ráðstefnunni voru. Á
30
LÆKNANEMINN3-/iB.2-35.árg.