Læknaneminn


Læknaneminn - 01.09.1982, Qupperneq 35

Læknaneminn - 01.09.1982, Qupperneq 35
entum aö náminu en með góðu skipulagi náms ætti ýmislegt annað að halda við áhuga stúd- enta á náminu. Flest það sem við höfum áður talað um var nefnt í þessu sambandi s. s. kennarar, kennsluaðferðir, hraði námsyfir- ferðar. Allar þessar umræður bar þó að lokum að sama brunni. Kynna þarf nemendum snemma læknisstörf í einhverjum mæli og sýna fram á tilganginn með náms- efninu með því að tengja það því sem seinna bíður stúdenta og lækna. Áhersla var lögð á að stjórn- skipulag læknadeilda væri þannig að nemendur og kennarar gætu breytt námsskipulagi og náms- efni. Ekki á að vera mögulegt fyrir fáa menn að standa í vegi fyrir breytingum sem meirihluti vill ná fram. Stúdentarnir á ráðstefnunni hittust nokkrum sinnum, bæði sér til skemmtunaren mesttil að ræða efni ráðstefnunnar. Hollenskur læknanemi, Van Amsterdam, kynnti ráðstefnugestum viðhorf stúdenta með tölu á síðasta degi ráðstefnunnar. Var mörgum skot- um skotið vítt og breitt en undir- tektir þingheims þó góðar. í raun sögðu stúdentar margt það sama og kom frá umræðu- hóþunum en með öðrum áhersl- um. Við bentum á nauðsyn „breyt- anlegra skóla“ þar sem stúdentar geta haft áhrif á námið. Lækna- skólar mega ekki vera of íhalds- samir. Kennara á að velja meira eftir kennsluhæfileikum en nú er gert. Þá lögðum við áherslu á sál- ræna þátt læknanámsins. Til að komast í gegn þurfa stúdentar að leggja á sig mikla vinnu svo lítill tími er oft til að sinna persónuleg- um málum. Einnig lenda lækna- nemar í ýmsum aðstæðum sem eru krefjandi andlega. Hverjum leið vel þegar þeir sáu rottu rotaða í fyrsta sinn, við fyrstu krufning- una, við að taka sjúkraskrá af krabbameinssjúkling og horfa kannski á viðkomandi deyjastuttu seinna. Við sögðum að á slíkum stundum ætti stúdent að geta leitað til einhvers til að ræða málin og helst að vera undirbúinn. Núna þurfa stúdentar oftast að dylja til- finningar sínar og leika kalda karla. Útkoman úr slíkri hegðun getur orðið manneskja sem á erfitt með að láta tilfinningar í Ijós sem hlýtur að vera slæmt fyrir lækni sem þarf oft að geta sýnt samúð og skilning. í heild þótti okkur ráðstefnan gagnleg, við sáum og heyrðum margt sem við vissum ekki áður. Okkur fannst sem flestir á ráð- stefnunni væru sammála, vildu gera læknanám sem best og áhugaverðast. í flestum skólum virðast vera svipuð vandamál og settar voru fram ýmsar hugmyndir (margar gamlar að vísu) um hverju mætti breyta og til betri vegar færa. Stundum fannst okkur skrýtið að sitja þarna með fulltrú- um frá fjölda landa, sem voru að því er virtist allir áhugasamir um umbætur, að gera læknanám betra. í flestum þessum löndum er læknanám í mjög föstum skorðum og litlu virðist hægt að breyta, t. d. finnst okkur ástandið vera þannig hér. Svona ráðstefna hefur þó hvetjandi áhrif á þátttakendur, menn fyllast áhuga á að breyta og gera betur. Við verðum bara að vona að Jón, Högni og Ásmundur komi einhverjum úrbótum til leiðar hér. Við munum nýta okkur nýfengna vitneskju í stöðugri bar- áttu læknanema fyrir bættu námi og námsaðstöðu í læknadeild Há- skóla íslands. Næsta ráðstefnaá vegum AMEE verður haldin í Prag í september 1983. S.D.M. og S.S.G.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.