Læknaneminn


Læknaneminn - 01.09.1982, Side 43

Læknaneminn - 01.09.1982, Side 43
I tilefni árs aldraðra: Elli Smásaga eftir Pentti Holappa Ég læt dyrnar á herbergi mínu standa opnar til að geta heyrt hvað hann er að sýsla inni hjá sér í her- berginu bak við borðstofuna. En dyrnar hjá honum eru lokaðar. Ég skil hann ef hann vill vera einn. Ég býst ekki við að hann yrði ánægð- ur ef hann vissi af mér hér njósn- andi um sig. Ekki get á láð honum það. Raunar ætti ég að skammast mín. Sonur minn er orðinn hálf- þrítugur en samt sit ég hér með sperrt eyru eins og ég treysti hon- um ekki. Hann gæti haldið að ég ætli að ræna hann æskunni og því frelsi sem hún veitir. En ég öfunda hann ekki. Oft eru höfð ófögur orð um þá sem öfunda. Það finnst mér rangt. Öfund býryfireinhvers kon- ar þunglyndislegri sáttargjörð, nokkru af innri angist hins kúgaða dýrs. En angistarfullt dýr veit líka ævinlega af eigin styrk. Það getur komið á óvart, stokkið fram og sýnt tennurnar. Kannski er eitt- hvað fallegt við þetta allt. Hví neita ég þá svona afdráttarlaust að ég öfundi tuttugu og fimm ára gaml- an son minn? Það kann að virðast skringilegt, en ég vil ekki verja sjálfan mig. Ég skal þó játa að bet- ur væri að ég öfundaði hann. Þá ætti ég rétt til að lifa, ég ætti rétt á hverju sem er. En þessa stundina er aðstaða mín í raun mun verri. Ég er kominn of langt burtu frá öllu. Væri ég hreinskilinn hefði ég fyrir mörgum árum viðurkennt að mér ber að leggja upp laupana. Þreyttur maður, saddur lífdaga á að draga sig í hlé. Ég hefi lifað of lengi. Eða hefi ekki lifað, ég er ekki að ásaka neinn. Ég hefi verið til, aðeins fundist ég vera til og það nægir ekki. Það er óverjandi að sjá tilver- una í smækkaðri mynd. Ég veit það, þvi manneskjuleifarnar sem eftir eru í mér tryggja það. Mér er skemmt. Ég er kominn út úr öllu en er þó fulltrúi lífsins hér. Slík óeigingirni er ómöguleg. En satt að segja hefi ég ástæðu til, mjög gilda ástæðu. Hún er sú að ef ég get ekki lengur elskað lífið verður tilvistin ein mér nauðsyn. Að ég viðurkenni aðstöðu mína óverj- andi þýðir alls ekki uppgjöf af minni hálfu. Orð eins og „tilvist" getur reyndar ekki vakið upp ímynd neinna tilfinninga. En ég er sannfærður um að þetta orð er nokkru skýrara en dauðinn. Eða að það er tómlegt, ég skynja tóm- leikann, en þegar aftur á móti er um að ræða dauðann get ég aldrei sagt hvað hann er. Einmitt frá þeim stað sem ég nú er staddur á er næsta ógerlegt að komast nokkuð. En ég vil ekki hugsa um dauðann. Það er mér ekki að skapi. Af hverju sit ég þá á hleri þegar sonur minn er að pakka ofan í töskur sínar í eigin herbergi? Það er óþarfi að spyrja ef haft er í huga að ég hefi alltaf — að minnsta kosti mjög lengi — haft þessa af- stöðu gagnvart honum. Þótt til- vistin ein bjóði ekki upp á marga valkosti, býr hún altént yfir einni vitneskju, vitneskjunni um að maður er til. Og þessa vitneskju hefði ég aldrei fengið nema með hans hjálp. Hann verður að vera þar sem ég get heyrt hann og séð. Mér er sama hvernig hann er, hvaða mann hann geymir. Það eitt skiptir máli að hann er líka til fyrir mig. Ég hefi ekki þorað að segja syni mínum þá von mína að hann fari ekki. Þegar ég las honum bréfið þar sem bróðir minn bauð honum til sín, fylgdist ég spenntur með svip hans. Drengurinn reyndi ekki að dylja gleði sína. Svipur fagnað- arog hamingju breiddistyfirandlit hans. Ég held ég hafi ekki séð þennan svip hjá honum árum saman, ekki síðan hann var barn. Með miskunnarleysi og hroka tek- ur hann ákvörðun sína. - Pabbi, ég fer. Auðvitað fer ég. Síðan skellti hann uppúr og hló svo innilega að ég gat ekki annað en móðgast. Ég reyndi að taka þátt í gleði hans, en smám saman gerði hann sér grein fyrir að það voru tóm látalæti af minni hálfu. Þá sárnaði honum andartak, en aðeins andartak. Eftirþað hefirtil- hugsunin um mig aðeins verið honum til armæðu. Til að vera alveg hreinskilinn verður að geta þess að það hentar mér einstak- lega vel. Þið sjáið vel að það myndi ekki hjálpa neitt þótt ég færi að sporna opinskátt við brottför son- ar míns. Það myndi þýða að bar- átta mín flyttist út á vígvöll sem ég gaf löngu upp á bátinn. Ef ég áenn einhverja sigurmöguleika eru þeir helst fólgnir í að vera til. En ég væri sauður ef ég ekki vissi að ég hlýt að tapa leiknum. Og ég veit alls ekki, eftir allt saman, hvort ég kæri mig um að sigra, ég ann hon- um eins og áður. Ég er bara eilítið of gamall og hann of ungur. Ég hefði þurft að kynnast Anni, kon- unni minni fyrr. Þegar maður giftir LÆKNANEMINN “-/ib.2 - 35. árg. 41

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.