Læknaneminn


Læknaneminn - 01.09.1982, Page 47

Læknaneminn - 01.09.1982, Page 47
kvæmum sjúkdómsgreiningum, en fyrsta og síðasta hugsun þeirra var að hjálpa sjúklingum til heilsu. Þeir litu á lækningarsem listgrein og á lækninn sem listamann, og að þeirra áliti gat enginn lærdóm- ur bætt úr hæfileikaskorti, þótt æfing væri nauðsynleg. Margir þekktir læknar voru frá Kosskólanum, en miklu frægastur þeirra er Hippokrates, sem kallað- ur hefur verið faðir læknisfræð- innar. Hippokrates var fæddur á Kos um 460 f. Kr. og kominn af langri læknaætt. Hann nam fyrst læknisfræði á Kos, en ferðaðist síðan víða og kynnti sér lækningar t. d. í Knidos, á eyjunni Þasos, í Þessalíu, í Egyptalandi og við Svartahaf. Hann settist síðan að í Þessalíu á meginlandi Grikklands og lézt þar um 377 f. Kr. í bænum Larissa, 83ja ára að talið er. Hippokrates var uppi á mesta blómaskeiði Grikklands undir stjórn Periklesar og var samtíma- maður frægustu sagnfræðinga, myndhöggvara og leikritaskálda Hellena, og sjálfur var hann höf- undur víðtækra framfara í læknis- fræði. Beztu heimildirnar um kenningar og lækningar Hippo- kratesar eru rit þau, sem kennd eru við hann, Corpus Hippokrat- icum. Nú er talið víst, að Hippo- krates sé ekki höfundur þeirra allra, en ekki eru menn eins sam- mála um, hver séu helzt frá hans hendi. Það er því bezt að taka orð- in ,,Hippokrates sagði“ ekki of bókstaflega. Corpus er þó allur um það bil frá tímum Hippokrat- esar og gefur Ijósa mynd af lækn- isfræði þess tíma. Hver sem les rit Hippokratesar, hlýtur að hrífast af siðfræði höfundarins. Inntak hennar er að stunda starf sitt af alúð og vera öðrum til fyrirmyndar um heilbrigt og flekklaust líferni, koma vel fram við sjúklinga sína og hafa velferð þeirra jafnan efst í huga. Hippokratesareiðurinn er sennilega rangfeðraður og ekki eftir Hippokrates, en þar er einnig lögð megináherzla á siðfræði læknisins í anda Hippokratesar. Athyglisgáfa og ályktunarhæfni Hippokratesar vekur einnig að- dáun. T. d. lýsir hann víða áhrifum umhverfis lifnaðarhátta á heilsu manna, en gerir sér jafnframt grein fyrir ættgengi sjúkdóma, t. d. flogaveiki, sem talin var heil- agur sjúkdómur. Hippokrates taldi engan sjúkdóm öðrum helgari, því að allirsjúkdómarættu sér náttúru- legar orsakir. Hann taldi, að börn erfðu eiginleika beggja foreldra, en áður var álitið, að hlutverk móðurinnar í sköpun barnsins væri aðeins að veita því húsaskjól og næringu. Meinafræði sína tók Hippokrates upp eftir Pýþagórasi. Hún var ,,humoral pathologisk" og byggðist á því, að lífið væri samsett úr 4 höfuðskepnum: jörðu, lofti, eldi og vatni og svar- andi til þeirra voru eiginleikarnir: þurrt, kalt, heitt og rakt. Líkams- vessarnir voru 4, hver gæddur 2 eiginleikum: blóðið heitt og rakt, slímið kalt og rakt, gula gallið heitt og þurrt og svarta gallið kalt og þurrt. Þegar vessarnir voru í jafn- vægi og blöndunin rétt, eukrasia, var maðurinn heilbrigður. Sjúk- dómar stöfuðu aftur af dyskrasia, eða röskun á vessablöndunni. Sjúkdómsrásinni skipti hann í 3 stig, sem komu bezt fram í bráðum hitasóttum. Á 1. stigi, apepsia, breyttust vessarnir, og kom það m. a. fram í nefrennsli og þvag- breytingum. Á 2. stigi hitaði líkam- inn vessana upp, sem tóku á sig annað form, t. d. varð blóðið að greftri. Þetta stig var nefnt pepsis eða suða. Á 3. stigi losaði líkaminn sig við hina skaðlegu vessa með þvaglátum eða svita. Það gat tekið langan tíma, lysis, eða gerzt í skyndi og var þá nefnt krisis eða sjúkdómshvörf. Hvörfin taldi hann helzt verða á ákveðnum dögum (4.-6,—8.-10.-14.-20. o. s. frv.) sjúkdómsins, svofnefndum hvarf- LÆKNANEMINN - 35. árg. 45

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.