Læknaneminn - 01.09.1982, Síða 54
Þættir
Ævintýri úr Westurheimi
Juhani Kömpelöinen
Smásaga í einum kafla
Einu sinni voru ríkur og voldugur
tannlæknir og tannlækniskona í
ríki sínu. Þau áttu heima í Power
Street og áttu sér eina dóttur. Hún
var voða mjó og fín og sat allan
daginn í hvítum silkikjól og saum-
aði út eða spilaði á píanó. Hún var
voða góð og mesta uppáhald for-
eldra sinna.
Á sama tíma var fátækur at-
vinnuleysingi og búðahnuplari
sem bjó í bílakassa niðri í fjöru.
Hann var svo fátækur að hann átti
ekki fyrir frímerkjum til að senda
umsóknir um atvinnu. Enda hefði
það ekkert þýtt, hann hafði svo
skakkar tennur að enginn vildi
ráða hann í vinnu.
Einn dag gerðist það að drekinn
sem lá á opinberum skjölum í
stórum dimmum kjöllurum
Rockefellerbókasafnsins stal
mjóu sætu tannlæknisdótturinni.
Hann fór með hana ofan í stóra
dimma skjalakjallarann — en
drekar hér liggja ekki á gulli
heldur skjölum, fyrst eru þeir bara
litlir ormar, en leggist þeir á opin-
bert skjal vaxa þeir og skjölin líka,
— læsti hana inn í skjalaskáp og
tók að fita hana með því að gefa
henni eingöngu kók.
Lét nú tannlæknirinn boð út
ganga að hver sem frelsaði dóttur
52
hans mætti eiga hana og fengi
ókeypis tannréttingar að auki.
Þetta frétti fátæki búðahnuplar-
inn þegar hann sá auglýsinguna í
dagblaði sem hann fann og ætlaði
að nota til að troða upp í rifu á
kassanum sínum.
Skipti það engum togum að
hann lagði af stað upp College
Hill, laumaðist inn um glugga á
Rockefellerbókasaninu, tók stóru
skjalalyftuna niðrí kjallara og
hnuplaði öllu Kóki drekans. Því
næst fór hann í The Thayer Market
og hnuplaði jafn mörgum dósum
af Tab og Kókdósir drekans höfðu
verið.
Þegar drekinn fór inn í Kókbúrið
sitt til að sækja Kók handa tann-
læknisdótturinni tók hann ekki
eftir neinu og án þess að hann
vissi hvað hann var raunverulega
að gera gaf hann henni Tab. En
Tab er, öfugt við Kók, megrandi.
Þegar tannlæknisdóttirin varð
mjórri og mjórri með hverjum deg-
inum sem leið varð drekinn svo
reiður að hann drapst og fátæki
búðahnuplarinn fór og sótti tann-
læknisdótturina. Þarsem hann var
flinkur hnuplari gekk honum vel
að opna skjalaskápinn sem hún
var læst inní.
Þegar búðahnuplarinn færði
Time Square.
tannlækninum dóttur hans mjórri
og fínni en hún hafði nokkru sinni
verið þá urðu tannlæknirinn og
kona hans glaðari en orð fá lýst.
Tannlæknirinn gaf búðahnuplar-
anum ókeypis tannréttingu og
búðahnuplarinn setti upp tann-
burstabros og fór í bankann og
sagði ég er tengdasonur tann-
læknisins. Og hann fékk lán og
vinnu við að stimpla skjölin sem
höfðu vaxið undir drekanum. Svo
giftist hann tannlæknisdótturinni
og þau voru mjög fín hjón og áttu
Kadilakk og bjuggu í New Haven
og drukku aldrei Kók eftir það og
trimmuðu á hverjum degi allt til
dauðadags.
Og lýkur þar sögu þessari.
LÆKNANEMINN 3'Vxml - 35. árg.