Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.2023, Blaðsíða 42

Skinfaxi - 01.04.2023, Blaðsíða 42
42 S K I N FA X I HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? „Klifur er ekki síður andleg þjálfun en líkamleg. Við klifur notar fólk í raun flesta sína vöðva, sem gerir þessa íþrótt mjög hentuga til að halda sér í góðu formi. Síðan þarf útsjónarsemi, þolimæði, frumleika og oft þor og áræðni til að ná mark- miðum sínum,“ segir Björgvin Hilmarsson, for- maður Klifurfélags Vestfjarða, sem er aðildar- félag Héraðssambands Vestfirðinga (HSV). Björgvin flutti með fjölskyldu sinni á Ísafjörð haustið 2019 og þá einungis til að búa þar einn vetur. „Það endaði svo með að við ílengdumst. Dætur okkar, 8 og 13 ára, eru báðar að klifra á fullu og ég var sjálfur mikið með þær í Klifurhús- inu í Reykjavík áður en við fluttum. Þær sögðu að það eina sem vantaði á Ísafjörð væri inni- klifuraðstaða,“ segir Björgvin, sem fór strax í að skoða möguleikana fyrir klifur á Ísafirði. Björgvin er langt í frá nýgræðingur í því að fóta sig í fjallaklifri. Hann hefur klifrað í um 24 ár, bæði hér á landi og víða erlendis, í klettum sem og ís. Hann hefur þegar opnað tvö útikletta- klifursvæði á Vestfjörðum sem eru með boltuð- um leiðum og fleiri möguleikar eru í boði. Einnig er mikið hægt að stunda ísklifur á svæðinu. Á Ísafirði hefur lengi verið hópur fólks með vonir um að byggja upp inniklifuraðstöðu, en aldrei fannst almennilegt húsnæði og meiri drifkraft vantaði. „Inniklifur er oft það sem fólk byrjar á að stunda og leiðir það svo í útiklifur. Einn daginn kíktum við Óliver Hilmarsson vin- ur minn inn í gamla skátaheimilið hér á Ísafirði og áttuðum okkur á að þar væri hægt að setja upp klifuraðstöðu. Ég dreif mig í að undirbúa stofnun Klifurfélagsins svo að við gætum farið að safna styrkjum,“ segir Björgvin. Haustið 2022 voru komnir einhverjir peningar í kassann og fóru Björgvin og Óliver á fullt að smíða klifurveggi inn í skátaheimilið. „Rýmið sem við höfum er ekki ýkja stórt en við reynum að nýta það vel. Við erum auðvitað þakklát skátafélag- inu hér fyrir að leyfa okkur að nýta rýmið í þetta en það er líka gaman að geta glætt þetta hús lífi að nýju,“ bætir Björgvin við. Nokkur fyrirtæki og einstaklingar á svæðinu hafa stutt fjárhagslega við bakið á félaginu. „Fremst í flokki er vestfirska ferðaþjónustu- fyrirtækið Borea Adventures. Rúnar og Nanný, sem þar stjórna, eru helstu bakhjarlar klifur- Horft niður til Ísafjarðar . aðstöðunnar. Við vonum að einn góðan veður- dag sjái bærinn sér síðan fært að styðja við verkefnið,“ segir Björgvin, sem hefur víða sótt um styrki. Öll vinna við inniklifuraðstöðuna er sjálfboðastarf og drifin áfram af ástríðu þeirra sem að því koma. Fyrir tveimur árum flutti Hjördís Björnsdóttir á Ísafjörð, en hún hefur kennt klifur í Klifurhús- inu í Reykjavík. „Það var frábært að fá hana hingað til liðs við okkur,“ segir Björgvin. Klifur fyrir alla Áhuginn á klifri á Ísafirði hefur komið vel í ljós eftir að klifuraðstaðan innandyra fór að líta dagsins ljós. Klifurfélagið hefur verið með opna daga og haldið námskeið fyrir börn. „Börnin eru mjög áhugasöm og hafa gaman af þessu. Haldin hafa verið námskeið fyrir grunnskóla- börn í 3. og 4. bekk ásamt sumarnámskeiðum síðastliðið sumar sem tókust mjög vel,“ segir Björgvin. Eins og er eru ekki komnir fastir opn- unartímar en það er á planinu eftir áramót ásamt fleiri námskeiðum og ýmsum viðburð- um fyrir alla aldurshópa. „Eitt af því sem er gott við að hafa klifur- aðstöðu á svæðinu er að þá opnast eitthvað nýtt fyrir þá sem eru ekki fyrir þessar hefð- bundnu hópíþróttir. Það er frábært að geta virkjað þessi börn sem annars væru kannski ekki að stunda íþróttir,“ segir Björgvin. Klifur hentar öllum aldurshópum og bætir Björgvin við að ekki einungis hafi börnin gaman af þessu heldur sé oft auðveldara að byrja að stunda klif- ur á fullorðinsaldri en margar aðrar íþróttir, til dæmis hraðar boltaíþróttir. „Í klifrinu er hægt að stjórna álagi mjög vel og hver og einn getur verið á eigin forsendum,“ segir Björgvin. Erlend- ir stúdentar í Háskólasetrinu á Ísafirði hafa til dæmis verið duglegir að nýta aðstöðuna. „Maður finnur fyrir því að ekki allir vita um hvað þetta klifur snýst og þess vegna er kannski erfitt að sannfæra fólk um hversu jákvætt þetta starf er,“ segir Björgvin. Mikið fjör í inniklifuraðstöðunni á Ísafirði. Klifur er nýjasta sportið á Ísafirði Bjartur Týr Ólafsson og Björgvin Hilmarsson hamingjusamir í frumferð sinni á leiðinni Googooplex (WI4, AD+, 340 m). Klifrað upp úr Bakkahvilft í Hnífsdal og upp á Þórólfsgnúp.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.