Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.2023, Blaðsíða 4

Skinfaxi - 01.04.2023, Blaðsíða 4
4 S K I N FA X I Nýtt ár er handan við hornið og ný dag- renning fram undan í íþróttahreyfing- unni. Grunnurinn að henni var lagð- ur fyrr á þessu ári, sem er í mínum huga tíma- mótaár fyrir íþróttastarf í landinu. Árið 2023 hefur verið með þeim afkastameiri sem nú- verandi stjórnarfólk UMFÍ hefur tekið þátt í. Við, ásamt framsækinni grasrót og mörgum fleirum, tókum stór skref og sköpuðum vett- vang fyrir þau verkefni sem líta dagsins ljós á næstu misserum. Ef við göngum í takt, nýtum tækifærin og höldum rétt á spilunum mun þessi vinna opna dyr fyrir íþróttahreyfinguna inn í nýja framtíð. Árið 2023 markaði tímamót. Þá flutti þjón- ustumiðstöð UMFÍ í Íþróttamiðstöðina í Laugar- dal. Þetta er árið sem UMFÍ og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) fóru í fyrsta sinn undir sama þak. Nálægðin hefur leitt til þess að samstarfið hefur aldrei verið meira og betra. Fyrstu merkin um góða samleið að sameigin- legu markmiði komu fram á þingi ÍSÍ í vor og var það innsiglað í haust á sambandsþingi UMFÍ. Þá voru samþykktar samhljóða tillögur sem fela í sér stofnun svæðastöðva íþrótta- héraða um allt land og breytingar á lottó- greiðslum. Tillögurnar voru afsprengi sam- starfsverkefna fjölmargra aðila innan íþrótta- hreyfingarinnar. Svæðastöðvarnar byggja á nýjum samstarfsgrundvelli íþróttahéraða með aðkomu stjórnvalda. Ef allt þróast með þeim hætti sem lagt er upp með verður íþrótta- hreyfingin alltumlykjandi og allt íþróttastarf tengdara stefnu stjórnvalda og samfélaginu en áður. Enginn er eyland. Lykilorðið að árangri er samvinna. Þær upplýsingar sem við byggjum starf okkar á sýna glöggt kosti samvinnu og þátttöku í skipulögðu starfi íþróttafélaga. Íslenska forvarnamódelið hefði aldrei orðið til nema með samvinnu og samstöðu. Við verðum að vera óhrædd við að snúa oftar bökum saman, vera hugmyndarík, sýna djörf- ung og þor. Þá þurfum við að vera óhrædd við að leita nýrra leiða til að ná í sam- einingu til þeirra sem ýmist hafa veikt bakland, eiga annan menn- ingarlegan bakgrunn eða standa af einhverjum ástæðum utan íþróttastarfsins. Við verðum að vinna saman að því að allir verði með á sínum forsendum. Á sambandsþingi UMFÍ í haust sagði forseti Íslands ungmennafélagshreyf- inguna geta gegnt lykil- hlutverki í lýðheilsumál- um, verið málsvari hollrar hreyfingar og talað fyrir gildi útivistar, æfinga og keppni. Það þyrfti að gera með jákvæðum hvata og heilbrigðu sjálfstrausti án metings og monts. Þessa hvatn- ingu verndara UMFÍ skulum við tileinka okkur. Þegar við kryddum það svo með gleðinni munu fleiri finna fyrir hinum eftirsóknarverða ungmennafélagsanda. Áramót eru ákveðin tímamót. Þá er gott tækifæri til að staldra við og skoða uppskeru ársins. Frá mínum bæjardyrum séð standa fjölmargar gleðistundir upp úr sem ég hef notið með fjölskyldu, vinum og félögum í ungmennafélagshreyfingunni. Ég er sann- færður um að þau fjölmörgu handtök sjálf- boðaliða og starfsmanna í hreyfingunni hafa bætt samfélagið. Fyrir það er ég þakk- látur. Það er gefandi að vera hluti af svo öflugri heild sem hefur það að markmiði að vinna saman að því að láta gott af sér leiða og bæta samfélagið um leið. Ég óska landsmönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með von um að heimsbyggðin geti sem fyrst notið friðar þar sem allir búa í sátt og samlyndi. Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ Efnisyfirlit 16 – 21 Sambandsþingi UMFÍ 30 Lýsir eftir hinsegin fyrirmyndum í íþróttum – Bergsteinn Sampsted 42 Klifur er nýjasta sportið á Ísafirði Leiðari Öflugri saman inn í framtíðina 22 Tveir nýir heiðursfélagar UMFÍ 6 Skýrar leiðbeiningar bæta starfið 8 Spenntar fyrir nýju ári 10 Ekkert stoppar Grindavík 14 Styrktu félög um 6,6 milljarða 16 Tímamót á sambandsþingi UMFÍ 18 Fjórir sæmdir gullmerki UMFÍ 18 Sjálfboðaliðar, hugmyndaauðgi og Special Olympics 18 Tvö ný í stjórn UMFÍ. 18 Lýðheilsa í lykilhlutverki 19 Öll börn fái að njóta sín í samfélaginu 19 Hjálpaði öðrum að klára af diskum 22 Ungmennaráðið vakti lukku 20 UMFÍ í einhverjum mesta blóma sem ég hef séð lengi 21 Sá Magnús Þór á puttanum og stoppaði bílinn 23 Hvað stendur upp úr og hver er staðan? 24 Ný stjórn UMFÍ 2023–2025: Hvað er fram undan? 34 Aðferðafræði sem nýtist öllum börnum 36 Gamlir bikarar fá framhaldslíf 38 Fresti því að fá sér fyrsta sopann 40 Gamla myndin: Sprett úr spori í fyrsta Jónshlaupinu

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.