Skinfaxi - 01.04.2023, Blaðsíða 4
4 S K I N FA X I
Nýtt ár er handan við hornið og ný dag-
renning fram undan í íþróttahreyfing-
unni. Grunnurinn að henni var lagð-
ur fyrr á þessu ári, sem er í mínum huga tíma-
mótaár fyrir íþróttastarf í landinu. Árið 2023
hefur verið með þeim afkastameiri sem nú-
verandi stjórnarfólk UMFÍ hefur tekið þátt í.
Við, ásamt framsækinni grasrót og mörgum
fleirum, tókum stór skref og sköpuðum vett-
vang fyrir þau verkefni sem líta dagsins ljós á
næstu misserum. Ef við göngum í takt, nýtum
tækifærin og höldum rétt á spilunum mun
þessi vinna opna dyr fyrir íþróttahreyfinguna
inn í nýja framtíð.
Árið 2023 markaði tímamót. Þá flutti þjón-
ustumiðstöð UMFÍ í Íþróttamiðstöðina í Laugar-
dal. Þetta er árið sem UMFÍ og Íþrótta- og
Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) fóru í fyrsta
sinn undir sama þak. Nálægðin hefur leitt til
þess að samstarfið hefur aldrei verið meira
og betra.
Fyrstu merkin um góða samleið að sameigin-
legu markmiði komu fram á þingi ÍSÍ í vor og
var það innsiglað í haust á sambandsþingi
UMFÍ. Þá voru samþykktar samhljóða tillögur
sem fela í sér stofnun svæðastöðva íþrótta-
héraða um allt land og breytingar á lottó-
greiðslum. Tillögurnar voru afsprengi sam-
starfsverkefna fjölmargra aðila innan íþrótta-
hreyfingarinnar. Svæðastöðvarnar byggja á
nýjum samstarfsgrundvelli íþróttahéraða með
aðkomu stjórnvalda. Ef allt þróast með þeim
hætti sem lagt er upp með verður íþrótta-
hreyfingin alltumlykjandi og allt íþróttastarf
tengdara stefnu stjórnvalda og samfélaginu
en áður.
Enginn er eyland. Lykilorðið að árangri er
samvinna. Þær upplýsingar sem við byggjum
starf okkar á sýna glöggt kosti samvinnu og
þátttöku í skipulögðu starfi íþróttafélaga.
Íslenska forvarnamódelið hefði aldrei orðið
til nema með samvinnu og samstöðu. Við
verðum að vera óhrædd við að snúa oftar
bökum saman, vera hugmyndarík, sýna djörf-
ung og þor. Þá þurfum við að vera óhrædd
við að leita nýrra leiða til að ná í sam-
einingu til þeirra sem ýmist hafa
veikt bakland, eiga annan menn-
ingarlegan bakgrunn eða standa
af einhverjum ástæðum utan
íþróttastarfsins. Við verðum að
vinna saman að því að allir verði
með á sínum forsendum.
Á sambandsþingi UMFÍ í
haust sagði forseti Íslands
ungmennafélagshreyf-
inguna geta gegnt lykil-
hlutverki í lýðheilsumál-
um, verið málsvari hollrar
hreyfingar og talað fyrir
gildi útivistar, æfinga og keppni. Það þyrfti að
gera með jákvæðum hvata og heilbrigðu
sjálfstrausti án metings og monts. Þessa hvatn-
ingu verndara UMFÍ skulum við tileinka okkur.
Þegar við kryddum það svo með gleðinni
munu fleiri finna fyrir hinum eftirsóknarverða
ungmennafélagsanda.
Áramót eru ákveðin tímamót. Þá er gott
tækifæri til að staldra við og skoða uppskeru
ársins. Frá mínum bæjardyrum séð standa
fjölmargar gleðistundir upp úr sem ég hef
notið með fjölskyldu, vinum og félögum í
ungmennafélagshreyfingunni. Ég er sann-
færður um að þau fjölmörgu handtök sjálf-
boðaliða og starfsmanna í hreyfingunni hafa
bætt samfélagið. Fyrir það er ég þakk-
látur. Það er gefandi að vera hluti af
svo öflugri heild sem hefur það að
markmiði að vinna saman að því
að láta gott af sér leiða og bæta
samfélagið um leið.
Ég óska landsmönnum gleðilegra
jóla og farsæls komandi árs með von
um að heimsbyggðin geti sem
fyrst notið friðar þar sem
allir búa í sátt og samlyndi.
Jóhann Steinar
Ingimundarson,
formaður UMFÍ
Efnisyfirlit
16 – 21 Sambandsþingi UMFÍ
30 Lýsir eftir hinsegin fyrirmyndum í
íþróttum – Bergsteinn Sampsted
42 Klifur er nýjasta sportið á Ísafirði
Leiðari Öflugri saman inn í framtíðina
22 Tveir nýir heiðursfélagar UMFÍ
6 Skýrar leiðbeiningar bæta starfið
8 Spenntar fyrir nýju ári
10 Ekkert stoppar Grindavík
14 Styrktu félög um 6,6 milljarða
16 Tímamót á sambandsþingi UMFÍ
18 Fjórir sæmdir gullmerki UMFÍ
18 Sjálfboðaliðar, hugmyndaauðgi og
Special Olympics
18 Tvö ný í stjórn UMFÍ.
18 Lýðheilsa í lykilhlutverki
19 Öll börn fái að njóta sín í samfélaginu
19 Hjálpaði öðrum að klára af diskum
22 Ungmennaráðið vakti lukku
20 UMFÍ í einhverjum mesta blóma sem
ég hef séð lengi
21 Sá Magnús Þór á puttanum og
stoppaði bílinn
23 Hvað stendur upp úr og hver er staðan?
24 Ný stjórn UMFÍ 2023–2025:
Hvað er fram undan?
34 Aðferðafræði sem nýtist öllum börnum
36 Gamlir bikarar fá framhaldslíf
38 Fresti því að fá sér fyrsta sopann
40 Gamla myndin: Sprett úr spori í
fyrsta Jónshlaupinu