Skinfaxi - 01.04.2023, Blaðsíða 40
40 S K I N FA X I
Íþróttahátíð HSK var haldin á Selfossvelli í
kulda, nokkrum vindstigum og almennt frem-
ur leiðinlegu veðri fyrir frjálsíþróttamót dagana
12.–14. júlí árið 1985. Dagarnir á undan bentu
alls ekki til þess að leiðindaveður væri í vænd-
um. Brakandi þurrkur var á sambandssvæði
HSK, allir í heyskap sem gátu og fáir að velta
fyrir sér árangri í hástökki og fleiri greinum. Þátt-
taka á mótinu var eftir því dræm, en ekkert til að
gráta yfir. Þátttakendur voru um 320 talsins frá
18 félögum, sem kepptu í ýmsum greinum.
Stemningin var mjög góð á mótinu þrátt
fyrir hráslagalegt veður. Vel má vera að konurn-
ar í Sambandi sunnlenskra kvenna hafi lyft þar
andanum upp, en þær sáu um sölu á pönnu-
kökum og kóki og alls konar kræsingum.
Þetta var sögulegt mót á nokkra vegu. Þarna
var nefnilega í fyrsta sinn sprett úr spori í svo-
kölluðu Jónshlaupi, 5.000 metra hlaupi sem
nokkrir af bestu hlaupurum landsins tóku þátt
í. Hlaupið var til heiðurs Jóni H. Sigurðssyni
hlaupara, sem var heiðraður sérstaklega á
hátíðinni fyrir vel unnin störf. Jón ræsti hlaupið.
Skemmtilegt er frá því að segja að sá sem
kom fyrstur í mark var Jón Diðriksson, sem þá
þegar hafði skráð sig í hlaupasögubækurnar.
Hann hafði þremur árum fyrr náð þeim áfanga
að hlaupa mílu undir fjórum mínútum í gríðar-
sterku hlaupi í Koblenz í Þýskalandi og setti
met í 10 km götuhlaupi árið 1983.
Jón, sem hlaupið heitir eftir, var fæddur 31.
mars árið 1944, uppalinn í Úthlíð í Biskups-
tungum og stundaði þar búskap lengi. Hann
var sigursæll langhlaupari og átti mörg HSK-
met. Hann tók meðal annars þátt á fjórum
Landsmótum UMFÍ, þar af í 5.000 metra hlaupi
Sigurður Jónsson smellti mynd af verðlaunaafhendingu í fyrsta Jónshlaupinu sumarið 1985. Hún
er í eigu Héraðsskjalasafns Árnesinga. Á myndinni má sjá Jón H. Sigurðsson afhenda nafna sín-
um, Jóni Diðrikssyni, sigurbikarinn. Þarna má líka sjá aðra þátttakendur, eins og Árna Árnason,
Gunnar Birgisson, Gunnar Pál Jóakimsson, Ingvar Garðarsson, Markús Ívarsson, Sighvat D. Guð-
mundsson, Sigurð H. Magnússon og Þorgeir Óskarsson.
á 15. landsmóti félagsins sem fram fór á Akra-
nesi í júlí árið 1975.
Jón slasaðist alvarlega árið 1977 og notaðist
eftir það við hjólastól. Hann lést árið 2008,
aðeins 64 ára.
Þótt Jónshlaupið hafi oftast verið haldið sem
5.000 metra keppnishlaup í gegnum tíðina
hefur það einnig verið haldið í öðrum útfærsl-
um Jóni til heiðurs. Árið sem hann lést var efnt
til tveggja kílómetra hlaups í Elliðaárdalshólm-
anum. Bæði var hægt að taka þátt í þriggja
Gamla myndin: Sprett úr spori í fyrsta Jónshlaupinu
og sex tíma hlaupi. Sigurvegarar í flokki karla
og kvenna voru þau sem fóru flesta hringi
innan tímarammans. Annað dæmi var á
Landsmóti UMFÍ í júlí árið 2009. Þá hljóp
Gunnlaugur Júlíusson frá Reykjavík til Akur-
eyrar, þar sem mótið var haldið. UMFÍ og
Gunnlaugur skipulögðu hlaupið, sem var
til styrktar Hollvinum Grensásdeildar og til
minningar um Jón. Í hlaupinu söfnuðust 1,3
milljónir króna, sem Gunnlaugur afhenti
Grensásdeild.
Aflhlutir ehf.
Alark arkitektar ehf.
Allt í járnum
Álnabær
Alþrif
AMP ehf.
Apótek Vesturlands
Arttré
Atvinnueign ehf.
Auðhumla sf.
Baugsbót
Bergsteinar ehf.
Bílakallinn ehf.
Bílar og tjón
Bílasmiðurinn hf.
Bílaverkstæðið
Bifreiðaverkstæði
Kópavogs
BK kjúklingur
Bláskógabyggð
Blikkrás
Blómasetrið
Bókhaldsþjónusta
Arnar Inga
Bókráð
Bolungarvíkurkaupstaður
Bón Fús ehf.
Brunahönnun slf.
Cargo Express ehf.
Cargow ThorShip
DMM lausnir ehf.
DS lausnir
Dynkur ehf.
Dýralæknir Sandhólaferju
Efri-Reykir ehf.
Ég og Jói ehf.
EG verktak ehf.
Einhamar Seafood ehf.
Eldahestar ehf.
Enor ehf.
Eyja- og Miklaholtshreppur
Eyjafjarðarsveit
Fasteignasalan Gimli
Félag skipstjórnarmanna
Ferðavagnar ehf.
Fiskmarkaður Þórshafnar
Fiskvinnslan Drangur
Fjarðalagnir ehf.
Fjarðaveitingar ehf.
Flóahreppur
Fögrusteinar ehf.
Fossvélar ehf.
Franklin Covery vegferð
GG lagnir ehf.
Gáski ehf.
Gesthús Selfossi ehf.
Gjögur ehf.
Goddi ehf.
Grímsnes ehf.
Grýtubakkahreppur
Gröfuþjónusta Steins
Hagtak ehf.
Hamraborg ehf.
Hárstofa Sigríðar
Héraðsprent
HHÍ
Hildibrand Hótel
Höfðakaffi ehf.
Hópferðabílar Svans ehf.
Hotel Capitano
Hótel Óðinsvé ehf.
Hraunfossar - barnafoss
ehf.
Húnaþing vestra
Hvalur hf.
Hvammur eignamiðlun
Innrammarinn ehf.
Innrömmun ehf.
Ís og ævintýri ehf.
Ísfélag Vestmannaeyja hf.
Ísfrost ehf.
Íslands Apótek
Íþróttamiðstöð
Fjallabyggðar
Jarðverk ehf.
Jóndi og Gagga slf.
KHG
Kjarnafæði Norðlenska hf.
Klassík ehf.
KLM verðlaunagripir
Kökugerðin HP
Komedíuleikhúsið
Króm og hvítt ehf.
Kryddhúsið
KÞ verktakar ehf.
Lamb inn veitingar
Landsamband
lögreglumanna
Laxmaður ehf.
Loðnuvinnslan hf.
Malbikunarstöðin Höfði
Máni verktakar ehf.
Meitill GT tækni ehf.
Menntaskólinn að
Laugarvatni
Mosfellsbakarí
Músík og sport
N1
Nesbú egg
Norðanfiskur ehf.
Norm x ehf.
OG slf.
Ökuland
Öryggisgirðingar
Ósal ehf.
PG stálsmíði ehf.
Pallar og menn ehf.
PH smíði ehf.
Pro Ark
Prógramm
Ræktunaramband
Flóa og Skeiða
Rafey ehf.
Raftíðni ehf.
Rafverkstæði IB ehf.
Rágjöf og lausnir ehf.
Reykás ehf.
Reykhólahreppur
Reykjavík
Rima apótek
Rjómabúið Erpsstaðir
RJR / Sportvörur
Sæplast ehf.
Samhentir Umbúðarlausnir
SG hús
SIH pípulagnir ehf.
Síldarvinnslan
Sími og tölvulagnir ehf.
Skotfélag Reykjavíkur
Sparisjóður Austurlands
Sparri ehf.
Sportþjónustan ehf.
SS gólf ehf.
Starfsmannafélag
Vestmannaeyja
Stjórnendafélag
Austurlands
Stracta Hótel
Strendingur ehf.
Sveitafélagið Múlaþing
Sveitafélagið Ölfus
Sytra ehf.
Tálknafjörður
Tannlæknastofa
Suðurlands
Tannsinn ehf.
TBI ehf./Skalli
Tera verkfræðistofa
THG arkitekar
Tjörneshreppur
Trésmiðjan Borg
Trésmiðjan Stígandi
Túnþökuþjónustan
Veisluþjónusta Suðurlands
Vélsmiðja Suðurlands ehf.
Verkhönnun ehf.
Verslunartækni ehf.
Verslunin Álfheimar
Viðhald og nýsmíði ehf.
Viðhaldsmenn ehf.
Vinnuföt
Vinnuvélar Símonar ehf.
Vökvaþjónusta Kópasker
ÞGT ehf.
Ævintýradalurinn ehf.
Takk fyrir stuðninginn