Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.2023, Blaðsíða 38

Skinfaxi - 01.04.2023, Blaðsíða 38
38 S K I N FA X I Takk fyrir stuðninginn „Það er betra að vera herra í eigin lífi og ráða því sjálf eða sjálfur hvernig maður ver sínu lífi. Þá er betra að segja nei,“ sagði Guðni Th. Jóhannes- son, forseti Íslands, þegar hann afhenti á Bessastöðum í byrjun des- ember verðlaun fyrir verkefni sem unnin voru í tengslum við Forvarna- daginn 2023. Veitt voru verðlaun í tveimur flokkum. Þrír nemendur úr Hrafnagils- skóla í Eyjafjarðarsveit hlutu verðlaun í flokki grunnskóla, en þau gerðu myndband um tóbakslaust líf unglinga. Nemendurnir eru: Emelía Lind Brynjarsdóttir Lyngmo, Katrín Eva Arnþórsdóttir og Sunna Bríet Jónsdóttir. Fjórir nemendur úr Borgarholtsskóla hlutu verðlaun í flokki fram- haldsskóla, en þeir gerðu veggspjald þar sem vakin var athygli á mikil- vægi samverustunda fjölskyldunnar. Nemendurnir sem hlutu verð- launin eru: Daníel Orri Gunnarsson, Eybjörg Rós Tryggvadóttir, Snorri Steinn Svanhildarson og Sindri Þór Guðmundsson. Í stuttu ávarpi við verðlaunaafhendinguna minnti forseti á að For- varnadagurinn snerist um það að ungt fólk frestaði því eins lengi og unnt væri að neyta áfengis. Hann hvatti ungt fólk til að nota frelsi sitt og ábyrgð á sjálfu sér, og jafnframt að þvert á það sem sumir segðu gætu Íslendingar hugsað fram á veg. Forvarnadagurinn væri gott dæmi um það. Að Forvarnadeginum standa: Embætti landlæknis í samstarfi við Embætti forseta Íslands, Reykja- víkurborg, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Skátana, UMFÍ, Rann- sóknir og greiningu, Planet Youth, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samfés, Heimili og skóla og Samstarf félagasamtaka í forvörnum. Vefsíða Forvarnadagsins: www.forvarnardagur.is Fresti því að fá sér fyrsta sopann Nemendur í tveimur skólum unnu til verðlauna fyrir verkefni sem unnin voru í tilefni af Forvarnadeginum. Fulltrúar íþróttahreyfingarinnar, ásamt mökum, sem viðstaddir voru afhendingu verðlaunanna á Bessastöðum. Nemendur og kennari frá Hrafnagilsskóla ásamt Guðna Th. Jóhannes- syni forseta Íslands og Ölmu Möller frá landlæknisembættinu. Nemendur og kennari frá Borgarholtsskóla ásamt Guðna Th. Jóhannes- syni forseta Íslands og Ölmu Möller frá landlæknisembættinu.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.