Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.2023, Blaðsíða 36

Skinfaxi - 01.04.2023, Blaðsíða 36
36 S K I N FA X I F létta var stofnuð af vöruhönnuð- unum Birtu Rós Brynjólfsdóttur og Hrefnu Sigurðardóttur árið 2018. Meginhlutverk Fléttu er að endurvinna verk og gefa hlut- um og efni sem ekki er lengur í notkun nýtt líf. Hugmyndin hófst árið 2014 þegar Birta og Hrefna stunduðu nám við Lista- háskóla Íslands og unnu að verkefni sínu Haugfé ásamt Auði Ákadóttur. „Verkefnið miðaði að því að finna lausn til að aðstoða framleiðendur að losna við afgangs- hráefni sem annars færi í urðun,“ segir Hrefna. Birta, Hrefna og Auður unnu með hráefni sem fellur til við ýmiss konar framleiðslu og iðnað frá yfir hundrað fyrirtækjum á höfuðborgar- svæðinu og gerðu aðgengileg þeim sem sáu verðmæti í þeim. Með verkefninu vöktu þær athygli á nýtingu hráefna með vinnustofum, efnismörkuðum og fleiru. Nokkrum árum síðar stofnuðu Birta og Hrefna síðan Fléttu. „Við hönnum alltaf vörur með hráefnið í höndunum, við horfum á formið og eiginleika þess til að fullnýta það hráefni sem verið er að vinna með,“ segir Hrefna, en þær gera þetta til þess að sporna gegn því að til verði afgang- ar. Markmið þeirra hefur alltaf verið að nýta allt efni eins vel og mögulega hægt er. Vörulínan Trophy Vörulína Fléttu heitir Trophy og snýst um endur- vinnslu verðlaunagripa. Þar fá bikarar nýjan til- gang og verða að loftljósum, lömpum, hillum, borðum og skúlptúrum. Með þessu geta bikar- ar endurheimt verðmæti sitt og gildi. Eins og margir standa frammi fyrir, bæði ein- staklingar og forsvarsfólk íþróttafélaga, er stundum erfitt að komast að niðurstöðu um það hvað eigi að gera við gamla bikara sem hafa safnað ryki uppi á hillu. Þá er kannski ein- faldlega kominn tími til að gefa þeim nýjan tilgang. Birta og Hrefna segjast hafa virkilega gaman af því að vinna að bikaraverkefnum og taka við öllum verðlaunabikurum. Hrefna segir að ein- staklingar hafi komið með bikara frá íþrótta- ferli sínum og fengið þá endurnýtta í ýmis sér- smíðuð verkefni en einnig hafi íþróttafélög gefið frá sér bikara sem söfnuðu ryki upp í hillu og enginn vissi jafnvel lengur hver ætti. Stefna Fléttu er að öllum vörum sem þær hafa skapað og látið frá sér taka þær við aftur til viðgerðar, endurvinnslu eða endurnýtingar. Enda er alltaf hægt að taka efnin í sundur. Með öðrum orðum eru vörur skapaðar af Fléttu ekki á endastöð líftíma síns heldur fá þær fram- haldslíf. Blóð, sviti og tár á bak við hvern bikar „Við erum náttúrulega báðar miklir safnarar og elskum nytjamarkaði og fórum að taka eftir því að þar kom einn og einn bikar í sölu,“ segir Hrefna. Kveikjan að verkefninu hafi meðal annars falist í því að sjá þessa bikara til sölu, bikara sem á einhverjum tíma höfðu mikið gildi fyrir einstaklinga eða íþróttafélög en höfðu dagað uppi og misst merkingu sína. Fyrst í stað skemmtu þær sér við að sjá bikar- ana sem hluti, sem þeir vissulega eru. „Þeir eru eitthvað aðeins fyndnir, gerðir úr mörgum mismunandi efnum með stein á botninum, svo plaststykki og úr málmi,“ segir Hrefna. Eitt leiddi af öðru og fyrr en varði voru þær sjálfar farnar að safna bikurum. Þegar safnið var orðið dágott fóru þær að skrúfa bikarana í sundur og leika sér með þá. Þær komust fljót- lega að raun um að heilu kassarnir af gömlum bikurum leyndust í geymslum íþróttafélaga og marga hefði fólk enga hugmynd um hvað gera ætti við. „Við fórum að lesa okkur til um verðlauna- bikara og þróun þeirra í gegnum tíðina. Allar sögurnar á bak við hvern bikar eru okkur hug- leiknar, þar liggur að baki þrotlaus vinna, blóð, sviti og tár,“ segir Hrefna. Hún bætir við að með því að afbyggja bikarana og skapa eitt- hvað nýtt úr þeim sé verið að pæla í þessu öllu, sögunni á bak við hvern og einn bikar. Gamlir bikarar fá framhaldslíf Þær Birta og Hrefna hjá Fléttu hjálpa fólki sem á gamla bikara að gefa þeim nýtt líf.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.