Læknaneminn - 01.04.1988, Page 6

Læknaneminn - 01.04.1988, Page 6
LEIÐARI Nú hefur lœknaneminn skriðið út undir bert loftfen bara smápása, er á leiðinni út ísjoppu). Hárið er náttúrlega allt úfið og ber vott um túrbulent flœði hugsana, hörundið ber lit blaðsíðna bókanna og hann er allur í keng sökum krampakenndrar yfirlegu - en allt þetta stendur til bóta þar sem einhversstaðar í framtíðinni œtlar hann að teygja úr sér í sólinni og stinga sér í risastórri parabólu ofaní kristaltœrt og svalandi vatnið. Utúr prentvélinni hefur þó Læknaneminn skriðið. Þegarlitið er á innra umhverfi hans, þá kennir ýmissa grasa. Nú eiga sér stað umrœður um hugsanlegar breytingar á kennslu í lœknisfrœði. Ríkir nú velvilji á öllum vígstöðvum fyrir því að dusta rykið af deildargarminum og fvlla uppí glufurnar. Hér er augljóslega mikið mál áferðinni og œttu því allir lœknanemar að hafa bœði augun galopinn gagnvart því. Kristján Erlendsson, einrt þriggja hönnuða þessara tillagna, gerir íþessu blaði grein fyrir því hvað hér er á seyði. Kennslumálafrœðingarnir Ari og Gunnlaugur berafána nemenda á lofti. Flest berum við í hugum okkar drauminn um betri lœknadeild og því getum við nú sameinast í gleði okkar yfir því að nú séu í sjónmáli einhverjar breytingar til batnaðar. Margt safaríkt fyrirfinnst í þessum nýju tillögum sem fœr aldna lœknanema til að klökkna. Hér er rœtt um hluti einsog samhæfingu kennslugreina (integration), vinna við grunn- rannsóknir og tutora-kerfi. Semsagt, allt í áttina. Eg hefði nú viljað sjá hugmyndir um aukna verkefna- vinnu á kostnað hinna stóru og þunglamalegu prófa áfyrstu árum námsins, draga inní myndina 4 margbreytilegri mœlistikur á gœði stúdenta og auka fjölbreyttni námsins. Það eru til fleiri leiðir uppá þetta fjall. En oft grunar mig að áhugamenn um klettaklifur hafi haft ískyggileg áhrif á deildina í gegnum tíðina. / þessu blaði hefur göngu sína fastur dálkur sem nefnist Höfuðlausn. Hér er um að ræða vangaveltudálk, rifrildisdálk eða einhversskonar allsherjar útrásar- dálk. Ollum læknanemum er að sjálfsögðu velkomið að troða hér upp, en heimildalistar eru með öllu bannaðir. Hans Jakob Beck ríður fyrstur ávaðið. Þetta blað er með öllu unnið á tölvu. Þeir sem hyggjast nema land á síðum þess í framtíðinni er því bent góðfúslega á að koma til ritnefndar með diskling í fórum sínum frekar en pappír. Með von um að læknanemar allir skríði glaðhlakkalegir útúr prófum inní sumarið, P.B.J. LÆKNANEMINN 1/1988-41. árg.

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.