Læknaneminn - 01.04.1988, Blaðsíða 52
Höfundur sem vitnaö er í
s
Ar, tímarit, bindi, bls.
Höfundar sem vitna
í ofangreindan höfund
SIGURDSSON B.
siBRn vrr j no
BRAHIC M BK« 220JJ R 1981 819 81
IC01ES EH BK » J7049 19*0 719 BO
GIBBS EPJ BK» 22572 R 25 71 81
GUDN ADOT.M MED BIOL R 59 77 JLL
Tímarit
bindi bls. ár
Mynd 5.
Index og leitar í höfundalyklinum
að höfundi greinarinnar. Þegar
höfundurinn finnst sést hver hefur
vitnað í hann síðan 1978. Með því
að iesa þær greinar sér leitandinn
hvaða þróun hefur átt sér stað í
þessu ákveðna efni. Notkun
heildarútgáfu áranna 1965-69 og
1970-74 geta sparað tíma.
Excerpta Medica
Amsterdam: Intemational
Abstracting Services.
Þetta rit hefur það fram yfir
margar skrár, að það gefur auk
tilvísanana, útdrátt úr
tímaritsgreinum. Þannig fást betri
upplýsingar um greinarnar. Útgáfa
Excerpta Medica er skipt í 44
efnisvið. Hefti um hvert efnissvið
koma út 10-12 sinnum á ári. Leita
má í sérhverju hefti eða hinni árlegu
heildarútgáfu undir efnisorði eða
nafni höfundar að tilvitnum.
Útdrættir eru á ensku, þó svo að
greinin sjálf sé rituð á öðru
tungumáli.
Chemical Abstract
Columbus: Chemical
Abstracts Services.
Chemical Abstracts
kemur út vikulega og skiptist í tvo
hluta. sem koma út til skiptis: 1.
Biochemistry and Organic
Chemistry. 2. Macronuclear,
Applied Chemistry, Chemical
Engineering, Physical and
Analytical Chemistry. Efni
þúsunda tímarita, bóka, skýrslna
og einkaleyfa eru þar skráð. Leita
má undir efnisorðum og númerum á
einkaleyfum.
Biological Abstracts
Philadelphia: Bio Sciences
Information Service.
Er skrá sem aðallega nær
yfir efni á sviði líffræði. Þar eru
skráð efni þúsunda tímarita, bóka,
yfirlitsgreina og bréfa. Það kom
fyrst út árið 1927 og kemur út annan
hvem mánuð. Hvert hefti hefur
höfunda og efnisorðalykil. Auk
tilvísanna eru einnig útdrættir.
Fylgirit Biological Abstracts er
Bio Research Index. Þar er skráð
mikið efni í klínískri læknisfræði.
Bio Research Index kemur út einu
sinni í mánuði. Þar er skráð efni
tímarita, skýrslna, bóka og annað.
Hospital Literature
Index
Chicago, American
Hospital Assn.
Það kemur út fjórum
sinnum á ári og er höfunda- og
efnisorðalykill úr tímaritum um
stjómun og rekstur sjúkrahúsa.
Allar greinarnar eru á ensku.
Notuð eru efnisorðin frá
MeSH, þau sömu og í Index
Medicus.
Heildarútgáfan er fjórða
heftið í lok ársins.
Ráðstefnur
Margskonar efni er fyrst
flutt sem fyrirlestrar á ráðstefnum.
Þessir fyrirlestrar koma ekki á
prenti fyrr en löngu seinna og
stundum líða nokkur ár. Samt sem
áður er oft hægt að finna
upplýsingar um þessa fyrirlestra
með því að fletta skrám um
ráðstefnur og skal nefnt sem dænri:
Inter Dok (Directory of
Published Proceedings) gefið út
af Institute for Scientific
Information. Annað ritmá nefnaog
það er Conference Paper Index
sem gefið er út mánaðarlega og
með nákvæmari lykli fjórum
sinnum á ári. Þar eru skráðir
fyrirlestrar og útdrættir, sem hafa
verið gefnir út í tilefni af
ráðstefnum.
Flest þau rit sem nefnd hafa
50
LÆKNANEMINN 1/1988-41. árg.