Læknaneminn - 01.04.1988, Blaðsíða 18
Þar sem ein algengasta
dánarorsök alnæmissjúklinga er
lungnabólga vegna pneumcystis
carinii hefur verð reynt að
meðhöndla þá sjúklinga
fyrirbyggjandi með trimethoprim
og sulfametoxazóli. Niðurstöður
benda til að fækka megi
dauðsföllum af pneumocystis
lungnabólgu með þessu móti, enda
þótt aðrir fylgisýklar taki sig upp
fyrreðasíðar(36).
Unnt er að hindra að HIV
sýki frumur in vitro með því að gefa
leysanlegt CD 4 (recombinant
soluble CD 4)(39). Sameindin
binst glykópróteinum á yfirborði
veirunnar og minnkar þannig
smithæfni hennar (41,42). Einnig
hefur verið sýntfram á að leysanlegt
CD 4 kemur í veg fyrir
frumusamruna, (eins og einstofna
mótefni gegn CD 4), með því að
tengjast gp 120 á yfirborði sýktra
fruma. Gallinn við einstofna
mótefni gegn CD 4 er að þau hindra
tengingu T hjálparfruma við class
IlantigenAPC enþess verðurekki
vart eftir gjöf CD 4 (40). Enn á eftir
að rannsaka hve stór hluti CD 4
sameindarinnar er nauðsynlegur til
að hindra smithæfni HIV. Fram að
þessu hefur nær öll sameindin verið
notuð í tilraunum, en líklegt er talið
að hluti hennar nægi e.t.v. til að
hindra smit (42). Talið er að
leysanlegt CD 4 hindri smit með
öllum HIV-1 og HIV-2 stofnum.
Er það í samræmi við þá kenningu
að allir stofnar veirunnar greini
samasvæði (domain) á CD 4 (38).
Ein hugsanlegra leiða til að
hindra sýkingu með HIV er að
framleiða mótefni er blokkera
sértækt CD 4 sameindina, en eins
og áður segir er nú almennt álitið að
hún sé viðtaki fyrir gp 120 og að
tenging verði að eiga sér stað milli
þeirra til að veiran geti ráðist til
inngöngu.
Með því að næma mýs fyrir
CD 4 er unnt að innleiða
mótefnaframleiðslu gegn þeirri
sameind. Hefur mótefni þetta verið
nefnt anti-Leu3a, og hindrar það
tengingu HIV við CD 4 in vitro.
Með því að dæla anti-Leu3a í mýs
fæst fjölstofna anti-idiotypu
mótefnasvar gegn þeirri sameind
og líkjast þær sameindir því
epitopi CD4! Hugsanlegteraðgjöf
á mótefnum gegn CD 4 (og
vakning á anti-idiotypu
mótefnasvari gegn þeim mót-
efnum) geti gegnt hlutverki eins
konar bólusetningar í
framtíðinni(22). Ekki er komin
klím'sk reynsla af þessari leið.
Önnur leið til að hindra
veirufjölgun er að gefa svokallaðan
"anti-sense" DNA-búta, ertengjast
sérhæft við ákveðna genahluta
veirunnar. Fræðilega ættu þessir
DN A-bútar að geta komið í veg fyrir
umritun og/eða hindrað tengingu
stjómpróteina við erfðaefnið. Hafa
menn m.a. hugsað sér að koma
mætti í veg fyrir veirufjölgun
m.þ.a. bæla á þennan hátt tat og
tra/art. M.a.s. hefur verið rætt um
að búa til "anti-sense" veiru,
retróveiru er framleiddi mRNA er
tengdist við mRNA HIV!(52).
Imuthiol (Natrium-diethyl-
dithiocarbamate)(25) eða forstigs-
efni þess(26) hefur verið reynt í
allumfangsmikilli tvíblindri
rannsókn á alnæmissjúklingum í
Frakklandi. Klínískur bati varð í
tæplega helmingi sjúklinga er lyfið
fengu, en ástand rúmlega helmings
þeirra stóð í stað. Einnig varð vart
við fjölgun á T hjálparfrumum í
tæplega helmingi þáttakenda er
fengu imuthiol (25).
Ribavirin er guanosín
analog sem hefur breiðvirk
hamlandi áhrif á veirutjölgun, bæði
RNA og DNA veira. Það hefur nú
verið reynt í alnæmissjúkingum.
Fylgisýkingum fækkaði, ónæmis-
svörun batnaði og í sumum
tilfellum datt veirufjölgun nær
alveg niður meðan á lyfjagjöfinni
stóð. Fyrstu niðurstöður benda til að
lyfið þolist vel, jafnvel við
langvarandi gjöf (33).
Komið hefur í ljós í
tilraunum in vitro að fjöl-
sykrungarnir dextran súlfat og
heparín hamla gegn HIV fjölgun.
Svo virðist sem þessi hömlun sé
ekki bundin við reverse trans-
criptasa og hugsanlegt er talið að
áhrifjum þessara lyfja sé miðlað
með hindrun á tengingu eða
inngöngu veirunnar í hýsil-
frumur(23).
Önnur lyf sem stungið hefur
verið upp á (og sum reynd í
alnæmissjúklingum) eru RS 47
(24) og fúsidínsýra, en sýnt hefur
verið fram á að bæði þessi efni
hindra veirufjölgun in vitro
(24.27.28) . Þau verka ekki með
hömlun á reverse transcriptasa
(27.28) . Nú standa yfir tilraunir á
virkni lyfsins í sjúklingum sem
ekki fá AZT eða svara því lyfi
illa(28).
Ymis lyf og efni er hafa
áhrif á glycosyleringu gp!20 hafa
verið reynd in vitro. Glykopróteinið
gp 120 inniheldur margar
kolvetnissameindir sem álitið er að
16
LÆKNANEMINN 1/1988-41. árg.