Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1988, Blaðsíða 53

Læknaneminn - 01.04.1988, Blaðsíða 53
verið hér að framan eru til á íslenskum söfnum. Mörg önnur rit mætti nefna, sem ekki eru til hér á landi, en hægt að fá aðgang að þeim í gagnagrunnum. Upplýsingaleit með hjálp tölvu Bein upplýsingaleit með tölvu er aðferð til að finna upplýsingar frá hinum ýmsu gagnagrunnum, en gagnagrunnur er safn af upplýsingum í tölvutæku formi. Gagnagrunnur samsvarar hinum prentuðu skrám og lyklum eins og t.d. Index Medicus, Excerpta Medica o.fl. í flestum tilfellum eru það gagnasöfn, sem veita aðgang að gagnagrunnunum. Gagnasöfn leigja eða kaupa gagnagrunnana frá framleiðendum og má að því leyti líkja gagnasöfnum við bókasöfn, en gagnagrunnunum við safnkostinn. Gagnasaöfnin eru nokkur, en þau eru misstór líkt og bókasöfn. Þau stæstu innihalda um 300 gagnagrunna eins og t.d. Dialog Information Services. Önnur söfn eru t.d.: Bibliographic Retrieval Services (BRS), Data- Star, Dimdi, Infoline og Medline. Gagnagrunnum er hægt að skipta niður eftir efni: 1. Gagnagrunnar sem geyma tölfræðilegar upplýsingar. 2 Skrár yfir t.d. stofnanir og einstaklinga. 3. Lyklar að tímaritsgreinum og bókum. 4. Gagnagrunnar sem geyma allt efnið t.d. heilar tímaritsgreinar. Fyrir fáum árum voru leitir framkvæmdar eingöngu af bókasafnsfræðingum eða upplýsingafræðingum, en með tilkomu örtölvunar eru einstaklingar famir að leita sjálfir. Til þess að geta framkvæmt leitir í gagnagrunnum þarf tæki, sem eru: útstöð eða örtölva, prentari, sími og mótald (modem). Sækja þarf um aðgang að gagnasafni og fær hver notandi sitt lykilorð sem er um leið reikningsnúmer. Einnig þarf að kaupa sér aðgang að tölvusímneti, ef það er til staðar. Útkomu er hægt að fá prentaða hjá viðkomandi gagnasafni og fá hana senda. Einnig getur hver og einn prentað útkomuna sjálfur á staðnum. Fljótlega eftir að tölvu- tæknin kom til sögunnar tengdust upplýsingar henni og um leið upplýsingaleitir. Útgefendur lykla og skráa fóru að nota tölvur við útgáfustarfsemi. Upplýsingar voru þar með komnar í tölvutækt form, og það eina sem vantaði var leitarforrit, til að leita í upplýsing- unum. Tilraunir voru gerðar með mismunandi leitar- forrit á árunum 1965 - 1970 en um 1970 voru nokkrir gagna- grunnar komnir á hinn almenna markað. Síðan hefur gagnagrunnum fjölgað verulega og efnið orðið fjölbreytt- ara. Útbreyðslan hefur náð um allan heim og má þakka þar örri tækniþróun eins og t.d. tölvu- símnetinu. National Library of Medicine var ein af þeim stofnunum sem áttu frumkvæði að tölvuvæðingu á sviði upplýsinga umlæknisfræði. Varfariðað vinna Index Medicus í tölvu árið 1967 og auðveldaði það upplýsingaleit að miklum mun. Þetta tölvuvædda upplýsingakerfi heitir Medical Literature Analysis and Retrieval System, skammstafað Medlars. Medlars on-line kallast Medline. National Library of Medicine býður upp á fleirri gagnagrunna(mynd 6). Mörg önnur fyrirtæki hafa einnig yfir að ráða gagnagrunnum á sviði læknisfræði og skyldra greina(mynd 7). Hér á Iandi var árið 1974 haldin kynning á Medline. Ekki tókst þá að ná sambandi við móðurtölvu staðsetta í Stokkhólmi. Bókasafnsfræðingar hér á landi notfærðu sér þessa nýju tækni í hEDLINE FRÁ 1966. 3,700 TÍMARIT. INDEX MEDICUS, INDEX T0 DENTAL LITERATURE 0G INTERNATIONAL NURSING INDEX. CANCERLIT FRÁ 1963 TÍMARIT, RÁÐSTEFNURIT 0G SKÝRSLUR UM KRAÖBAMEIN. RTECS UPPLÝSINGAR UM EITRANIR. SWEMED FRÁ 1982. SÆNSKAR TÍMARITSGREINAR 0G D0KT0RSRITGERÐIR. DRUGLINE UPPLÝSINGAR UM LYF. NORDSER SAMSKRÁ UM TÍMARIT í 400 N0RRÆNUM HÁSKÓLA-0G LÆKNISFRÆÐIBÓKASÖFNUM. Mynd 6. LÆKNANEMINN 1/1988-41. árg. 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.