Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1988, Qupperneq 7

Læknaneminn - 01.04.1988, Qupperneq 7
ALNÆMI: ONÆMISFRÆÐI, MEINGERÐ OG LYFJAMEÐFERÐ Magnús Gottfreðsson, læknanemi Inngangur í þessari grein er ætlunin að fjalla um alnæmi og þá einkum ýmsar nýjungar varðandi sjúkdóm þennan. Aðaláhersla verður lögð á ónæmisfræði, kenningar um meingerð (pathogenesis) sjúk- dómsins og hugsanlega lyfja- meðferð. Lítillega er tæpt á veirufræði. Hins vegar er það ekki ætlunin að fjaila nákvæmlega um faraldursfræði ellegar hinar ýmsu myndir alnæmis nema þegar hjá þvf verður ekki komist, og þá í sem allra stystu máli. í upphafi gerði ég ráð fyrir (eins og bláeygra bjartsýnismanna er háttur) að ekki yrði mikið mál að taka saman greinarkorn um helstu nýjungar í alnæmisrannsóknum um þessar mundir. En mér skjátlaðist. Ef litið er í index medicus má sjá tugi ef ekki hundruð nýbirtra greina um alnæmi í hverjum mánuði. Vonlaust er að hesthúsa öll þau gullkorn, jafnvel fyrir bláeyga. Því tók ég þá ákvörðun að skrifa fremur um afmarkað efni ættu áform mín ekki að verða fyrir skriðufalli af pappír og fá síðan hægt andlát undir ljósritunarvél. Þessi grein er að nær öllu leyti byggð á heimildum frá árinu 1987 -’88 og er það von mín að hún veiti lesandanum einhverja innsýn í nýjungar í alnæmis- rannsóknum. Alnæmi var fyrst greint meðal homma frá Los Angeles og New York árið 1981. Það sem fyrst vakti athygli manna á þessum sjúkdómi var hin mikla aukning á ýmsumkvillumeráðurvorufátíðir, aðallega Kaposis sarcoma og pneumocystis carinii lungnabólgu. Það er kunnara en frá þurfi að segja að fljótlega kom í ljós að orsök ónæmisbilunarinnar var sýking með áður óþekktri veiru, sem fljótlega tókst að einangra. Eftir nokkrar skemmri skírnir sættust menn á að kalla veiru þessa HIV (Human Immunodeficiency Virus). Nú er talið að alnæmisveiran sé upprunin í Afríku. Talið er að rekja megi feril hennar allt aftur til ársins 1970 eða fyrr (8). Veirufræði HIV , sem einnig er þekkt undir nöfnunum LAV (Lymph- adenopathy-associated Virus) og HTLV III (Human T-cell Leukaemia Virus III) tilheyrir flokki retroveira (retroviridae). Retroveirum má skipta í þrjá flokka. Þeir eru lentiveirur, oncoveirur og spumaveirur. Lenti- og oncoveirur hafa verið allmikið rannsakaðar í seinni tíð en um spumaveirur er lítið vitað. Öllum þessum veirum er sameiginlegt að hafa ensímið reverse transcriptasa er sér um umritun á RNA veiranna yfir á DNA. HIV er um 100 nm í þvermál og er umlukin hjúp úr fosfólípíðum. I hjúpnum eru tvö glýkóprótein. Aðalglýkópróteinið nefnist gp 120 en hitt er kallað gp 41. Fyrir innan hjúpinn eru kjarnaprótein veirunnar (pl7,p24 (aðalpróteinið) og pl5), RNA og ensímið reverse transcriptasi. Erfðaefni veirunnar hefur verið LTR gag pol I I I L L tat I sor 1 1 trs/art env 3' orf J L LTR 4 5 6 k'Oóbassr Mgnd 1. ErfSaefni HIV. LÆKNANEMINN 1/1988-41. árg. 5
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.