Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1988, Page 32

Læknaneminn - 01.04.1988, Page 32
Heilablóðfall (heiladrep vegna blóðþurrðar) Sigurður Thorlacius læknir T alað er um heilablóðfall eða heilaslag (apoplexia cerebri) þegar heilinn skaðast af völdum blæðingar (haemorrhagia cerebri) eða dreps (infarctus cerebri). Heilablóðfall er mikið heilbrigðis- vandamál, því það er þriðja algengasta dánarorsök Vestur- landabúa (á eftir hjarta- sjúkdómum og krabbameini) og margir þeirra sem lifa af eru verulega bæklaðir. í Band- aríkjunum greinast u.þ.b. hálf milljón ný tilvik heilablóðfalls á ári (af þeim deyja meira en 200 þúsund) og um 1,9 milljónir manna hafa þar á hverjum tíma einkenni vegna heilablóðfalls( 1,2). Þótt einkennin séu gjarnan umtalsverð getur klínísk greining verið erfið, eins og sjá má af niðurstöðum rannsóknar sem framkvæmd var í Edinborg, þar sem niðurstöður 1152 sjúkra- húskrufninga voru bornar saman við klínískar sjúkdóms- greiningar(3). í 129 tilvikum var klínísk greining heila- æðasjúkdóms staðfest, en í 118 tilvikum stóðst klfníska greiningin ekki (í 71 tilviki fannst slíkur sjúkdómur án þess að klínískur grunur hefði legið fyrir og í 47 tilvikum var klínískri greiningu heilaæðasjúkdóms hnekkt). Um 20 af hundraði heilablóðfallstilfella flokkast sem heilablæðing, en um 80 af hundraði sem heiladrep( 1,4). í þessari grein verður hér eftir eingöngu fjallað um síðari flokkinn, heiladrep. Orsakir og afleiðingar blóðþurrðar í heila Heiladrep stafar af blóð- þurrð í heila (ischaemia cerebri). Tafla 1 sýnir helstu orsakir blóðþurrðar í heila( 1,6-10), en oft eru fleiri en einn þessara þátta samtímis að verki. Einnig spila þama inn í ýmsir áhættuþættir fyrir æðasjúkdóma (háþrýstingur, reykingar, ofneysla áfengis, offita, sykursýki, notkun p-pillunnar, hækkuð blóðfita, of- eða vanstarfsemi í skjaldkirtli, hækkun þvagsýru í blóði)( 1,6,8,9,11-14). í heilsufarssögu þarf einnig að huga að hvort um sé að ræða einkenni frá öðrum hlutum blóðrásarinnar (angina pectoris/infarctus myocardii, claudicatio inter- mittens). Blóðþurrð í heila getur valdið tímabundnum einkennum eða T.I.A. (transient ischemic attack). Líta verður á T.I.A. sem viðvörunareinkenni fyrir yfirvofandi heiladrep, því búast má við að u.þ.b. þriðjungur T.I.A. sjúklinga fái heilablóðfall innan 5 ára. Innan við fjórðungur slagtilfella kemur hins vegar í kjölfar T.I.A(6). (Fjallað var sérstaklega um T.I.A. í síðasta tölublaði Læknanemans(15)). Heilablóðfall getur komið fyrir á öllum aldri, en einkum þó þegarlíðatekuráæviskeiðið. Þegar á heildina er litið er því lang algengasta orsök blóðþurrðar í heila staðbundin lokun slagæðar af völdum blóðsega (thrombosis cerebri), en næst algengasta orsökin er æðalokun af völdum blóðreks (embolia cerebri) frá hjarta, sem orsakar u.þ.b. 15% heiladrepstilvika(7). Ungt fólk fær helst heiladrep ef það hefur mígreni, mítrallokusjúkdóm eða æðafláningu (arterial dissection), en reykingar og notkun p-pillunnar virðast vera mikilvægir áhættuþættir(l,9,10). Afleiðingar blóðþurrðar í heila ráðast að verulegu leyti af ástandi æða kerfis heilans almennt (útbreiðslu æðaskemmda, hversu opnar hliðargreinar skaddaðra æða eru, virkni sjálftemprunar blóðflæðisins) og hversu hratt ástandið þróast, þ.e. hvort blóðrásinni vinnst tími til aðlögunar. Skyndileg lokun æðar vegna blóðreks reynist þannig gjarnan afdrífaríkari en hægt vaxandi lokun vegna blóðsega á staðnum og drepið nær þá oft yfir stórt heilasvæði og kemur oftast án viðvörunareinkenna (T.I.A.). Málið er þó ekki svo einfalt að það sé aðeins ástand stóru heilaslagæðanna sent máli skipti, eins og sjá má af niðurstöðum vandlega útfærðrar alþjóðlegrar rannsóknar á árangri utan- innankúpu æðahjáveita (extra- cranial-intracranial arterial 30 LÆKNANEMINN 1/1988-41. árg.

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.