Læknaneminn - 01.04.1988, Page 49
Upplýsingaleit í læknisfræði
Sólveig Þorsteinsdóttir bókasafnsfræðingur
Það sem gerir mörgum
starfsmönnum á sviði heilbrigðis-
vísinda erfitt fyrir við að fylgjast
með á sínu sviði er aðallega tvennt:
tími til lestrar og leitar að
upplýsingum er naumur og
ritaflóðið gífurlega mikið.
Upplýsingaleit þarf þó ekki að vera
flókin eða erfið, ef viðkomandi
starfsmenn þekkja hagkvæmar
leitaraðferðir.
í þessu yfirliti verða kynntar
helstu leitaraðferðir og hjálpargögn
svo sem efnislyklar, skrár,
handbækur og gagnagrunnar. Þau
munu beina leitinni að
tímaritagreinum, bókum, skýrsl-
um, nýsigögnum og öðru efni sem
hefur upplýsingar að geyma.
Fjallað verður um Index Medicus
(IM), Current Contents, Science
Citation Index, Excerpta
Medica, Medlars og nokkur fleiri
hjálpartæki.
Tugþúsundir tímarita um
tækni og vísindi eru nú gefin út.
National Library of Medicine í
Washington er áskrifandi að um
22.000 tímaritum í læknisfræði og
skyldum greinum hvaðanæva að úr
heiminum. Læknisfræðitímarit
hófu göngu sína fyrir 300 árum í
Frakklandi og Englandi. Þeim
fjölgaði brátt og ekki leið á löngu
þar til erfitt var að finna greinar,
sem komið höfðu út á prenti.
Bandarískur læknir, John Shaw
Billings, byrjaði árið 1881 á skrá
um tímaritsgreinar. Aður höfðu
evrópskir læknar tekið saman skrár
yfirritað mál í læknisfræði, en þeim
var ekki haldið við. Skrá hans var
hinsvegar upphafið að Index
Medicus, sem er einn helsti lykill
að tímaritagreinum í læknisfræði í
dag.
Index Medicus
Index Medicus er gefinn út
af National Library of Medicine í
Bandarfkjunum og er lykili að efni
u.þ.b. 2700 tímarita í læknisfræði
og skyldum greinum. Þessi 2700
tímarit eru valin úr þeim 22.000
áskriftum sem safninu berast.
Index Medicus er gefinn
út mánaðarlega, en síðan eru
mánaðarheftin tólf sameinuð í eina
heildarútgáfu, Cumulated Index
Medicus, og kemur hún út í mars.
Sérhver færsla í Index Medicus
gefur eftirfarandi upplýsingar:
höfund, titil, nafn á tímariti þar sem
grein birtist, útgáfuár, mánuð,
bindi,tölublað og blaðsíðu.
Index Medicus er skipt í
tvo hluta: efnisskrá og höfunda-
skrá. Framan við efnisskrána er
sérstök skrá um yfirlitsgreinar
(review articles) og kemur hún sér
oft vel fyrir þann sem þarf að fá
yfirsýn yfir hvað skrifað hefur verið
um ákveðið efni. Höfundar slíkra
greina hafa viðað að sér miklu efni
og greinunum fylgir yfirleitt langur
heimildalisti.
í janúarhefti Index
Medicus er listi yfir þau tímarit
sem eru efnistekin. Listinn er í
tveimur hlutum: 1. Skammstafanir
á heitum tímarita. 2. Fullt heiti
tímarita.
Algengast er að Index
Medicus sé notaður til að finna
greinar um ákveðið efni og er þá
efnisskráin fyrst og fremst notuð.
Efnisorðin eru í stafrófsröð og
hverju efnisorði fylgja undir-
efnisorð.
Við leit að greinum um
ákveðið efni verður að nota rétt
efnisorð og er þetta nokkurt
þjálfunaratriði. í stað þess að reyna
að fletta strax að ákveðnu efnisorði
í Index Medicus, flettir leitandinn
upp í ákveðinni efnisorðaskrá,
Medical Subject Headings
Efnisord
Númer í
trénu
GALLBLADDER
A3.159 439
M rrlated
CHOLECYSTECTOVÍY
CHOLECYSTOGAAPHY
ALLBLADDER DISEASES
C6.IJO. 564+-
GALLBLADDER NEOPLASMS
C4.Stt.r74,120.401 C6.isa564.322
Mynd 1.
LÆKNANEMINN 1/1988-41. árg.
47