Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1988, Qupperneq 56

Læknaneminn - 01.04.1988, Qupperneq 56
Hugleiðingar um breytta læknakennslu Kristján Erlendsson læknir Um þessar mundir fer fram úttekt á kennsluskipan í læknadeild Háskóla íslands. Sú vinna er jafnframt undirbúningur er leitt gæti til breytingar á kennslufyrirkomulagi. I raun er enn ekki búið að ákveða að til breytinga þessara komi, deildin hefur einungis samþykkt að skoða málið með ákveðin megin sjónarmið í huga. Ljóst er að ákvörðun verður að taka á næstu 8 vikum ef einhverjar breytingar eiga að sjá dagsins ljós næsta haust. Við þessar aðstæður er rétt að spyrja, er einhver þörf á breytingum og ef svo, hversu víðtækum? Ljóst er að menn skiptast í hópa hvað varðar álit á nauðsyn breytinga. Talsmenn breytinga halda því fram, að mikið skorti á að stúdentar fái gagnlega heildarmynd af læknisfræði, kennslan fari fram í bútum, sem gleymast jafnóðum og hafist er handa við næsta bút, mjög skorti á akademiskan hugsunarhátt og áhugi fyrir eigin þekkingarleit sé í algjöru lágmarki. Því hefurjafnvel verið haldið fram að stúdentar komi inn í deildina ákafir og frjóir, í einlægri þekkingarleiten komi út úr deildinni áhugalausir og illa menntaðir. Þeir sem eru á móti breytingum, halda sig við hina vel þekktu skoðun knattspyrnu- þjálfara, að sigurliði skuli ekki breytt. Ágætinúverandikerfisfelst t.d. í því að hérlendis sé eitthvert fullkomnasta heilbrigðiskerfi í heimi og íslenskir læknar veki yfirleitt athygli erlendis fyrir glæsta frammistöðu. Af því er dregin sú ályktun að deildin útskrifi kandídata, sem standi nánast öllum framar. Þama bætist við umræða um langlífi þjóðarinnar og annað þess háttar, þætti sem má í rauninni útskýra betur út frá öðru heldur en stórfenglegri læknakennslu. Síðasta reglugerðarbreyting varðfyrir 17árumenþaðþýðirekki að það sé síðasta breytingin sem varð. Þvert á móti hafa hinir ýmsu kennarar deildarinnar verið að reyna fyrir sér smátt og smátt, fundið endurbætur, sem leitt hafa til verulegra framfara í kennslu. Það eru þó enn allmargir veikir hlekkir í læknakennslunni. Forsaga Á síðustu árum hafa alheimssamtök um læknakennslu vaxið töluverður ásmegin. Þau hafa einbeitt sér að því að safna hvaðanæfa úr heiminum straumum í læknakennslu og reynt að samræma og samhæfa það besta. Á Evrópuþingi í Dublin nú í september s.l. var kynntur árangur og niðurstöður þessa starfs, sem á næsta ári munu vera lagt fyrir alheimsþing og síðar stjómmálamenn til þess að leggja upp með eina breiða línu í læknakennslu. Það var áberandi á þessu þingi hve allir voru sammála! Þess ber þó að geta að einungis um 10% af læknaskólum í Evrópu sá ástæðu til að senda fulltrúa á þessa samkomu og töidu ýmsir að þetta væri veikleikamerki, þ.e.a.s. að sú stefna sem kom fram á ráðstefnunni, og er því opinber stefna samtakanna um læknakennslu, væri einungis prívatskoðanir fámennrar klíku og hefði þess vegna ekkert með heildarstefnu í kennslumálum að gera. Aðrirtúlkuðuþettahins vegar þannig, að stærsti hluti læknaskóla hefðu engan áhuga á að skoða frammistöðu sína, hvað þá að bæta sig og því ekki ástæða til þess að láta stefnuleysi þeirra ráða ef framfara væri óskað. Fyrir rúmu ári höfðu deildarforseti, varadeildarforseti og formaður kennslunefndar hafið undirbúningsumræður og viðræður við ýmsa kennara deildarinnar er miðuðu að því að samræma læknakennslu á Islandi þeim heidlarsjónarmiðum er komið höfðu fram hjá alheims- samtökunum. Eftir þær umræður var sett fram vinnuplagg, þar sem að lögð voru drög að breytingu á kennsluskipan. í ágúst mánuði 1987 voru síðan fengnir til starfa þrír nytsamir sakleysingjar af yngri kynslóðinni, Guðmundur Þorgeirsson, Kristján Erlendsson og Sigurður Guðmundsson til að reyna að útfæra frekar þær hugmyndir, sem settar höfðu verið fram. Höfumviðsíðangerttillögur að heildarskipulagi, rætt þær í einkaviðtölum við allmarga 54 LÆKNANEMINN 1/1988-41. árg.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.