Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1988, Side 64

Læknaneminn - 01.04.1988, Side 64
eiginleikum, sem búa í hverjum manni og geta orðið svo ýktir að þeir afskræmi manninn. Þroskinn getur hneigst til að velja of margt eða hafna of mörgu. Við sem höfum valið að lesa læknisfræði kynnumst grein sem er í senn gífurlega víðtæk, en sækir þó þekkingu til þröngra sviða ýmissa grunngreina. í sinni hreinustu mynd snýst greinin um líf og heilsu mannsins, sem er gleðilega óhégómlegt viðfangsefni á tímum miklu ómerkilegri gæða. Er hér ekki akur að plægja einlyndum mönnum eða marg- lyndum, ólíkum að skapi og hugsun? Persóna ein í íslenskri skáldsögu hafði tíðum á orði að lífið væri bara til í bókum, enda heldur holur rnaður í raun þó annað sýndist við fyrstu kynni. Ætli skaðinn sem fólk getur orðið fyrir í læknanámi stafi ekki af sömu villu. Menn ætla kannski, að dag einn standi þeir upp, ljúki aftur bók og kunni Iæknisfræði. Þetta er firra vegna þess að lífið er ekki að finna í bókum. Og samt verður enginn læknir nema lesa margar bækur, og kannski enn fleiri sem hann vill verðabetri. Steinn Steinarr segir á einum stað um Reykjavík “Hún hefur að vísu ekki gefið okkur neitt, sem auga sér eða hönd á festir. En hún hefur gert okkur að mönnum...”. Þessum orðum mætti snúa við og hafa um deildina: Hún hefur gefið okkur eitthvað sem auga sér og hönd á festir. En hún hefur að vísu ekki gert okkur að mönnum. GARÐS APÓTEK APÓTEK SOGAVEGI 108 AUSTURBÆJAR HATEIGSVEGI 1 Læknasími: 34006 Almennur sími: 33090 Læknasími: 23270 Almennur sími: 621044 Leiðrétting í grein Björns Hjálmarsonar "Hlutdeild rauðra blóðkoma í eyðingu mótefnafléttna", í síðasta tölublaði Læknanemans, urðu þau mistök að hluti af samantektinni var tvítekin. Samantektin er heil og óslitin en kaflinn á undan henni er sundurslitinn af stórum hluta úr samantektinni. Að auki vantar inní flæðiskema greinarinnar "Activation of Hageman Factor" þaðan sem örvar stefna frá eyðu uppi til hægri. Við biðjum Bjöm velvirðingar á þessum leiðu mistökum. Ritnefnd. 62 LÆKNANEMINN 1/1988-41. árg.

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.