Læknaneminn - 01.10.1991, Page 9

Læknaneminn - 01.10.1991, Page 9
Algengustu umbúðir um brunasár er, vaselíngrisja, næst sárinu, utaná hana eru lögð 4-5 lög af þurrum grisjum, og utaná þau lag af vatnasjúgandi bómull. Þetta er svo fest með Kling eða teygjubindum sem halda vel að, en tilgangslaust er að leggja þrýsting á brunasár til að minnka bjúgmyndun. Þessar umbúðir má láta liggja óhreyfðar í 5-6 daga, eða lengur ef þær blotna ekki í gegn, en þá þarf að skipta innað vaselíngrisjunum. Leiðbeiningar til brenndra sjúklinga, sem sendir eru heim að meðferð lokinni eru á þá leið, að sjúklingurinn á að koma til eftirlits á öðrum, eða þriðja degi. Hann á að koma strax. ef hann fer að finna til í sárinu, ef umbúðir gegnblotna. raskast, eða vond lvkt kemur af þeim. og ef hann fær hita. Algengast er að skipta á brunasárunum á 5.-7. degi, ef allt er eðlilegt. Séu sárin þurr og hrein er best að láta vaselíngrisjurnar vera kyrrar, uns þær losna af sjálfu sér, til að eyðileggja ekki þekjuna, sem er að myndast í sárunum. Brunasár, sem ekki gróa á þremur vikum eru djúp og gera þarf á þeim aðgerð. Smyrsl og sérhannaðar bruna- umbúðir Tegundir brunasmyrsla eru óteljandi. Sameiginlegt er með flestum þeirra, að framleiðendur lofa því, að þau flýti fyrir því, að sárin grói. Þeirri fullyrðingu hefur verið gerð skil í fyrri grein. Þau brunasmyrsl, sem helst koma til greina, til að halda sýkingu í skefjum eru, Sulfamyelon og silfursulfadiazine (Flamasine). Sumir nota slík smyrsl við meðferð á öllum 2.stigs brunasárum, sem meðhöndluð eru utan spítala, en ekki hefur verið sýnt fram á að verulegur munur sé á árangri gagnvart hefðbundinni meðferð. Sá galli er á Flamazini að það getur valdið miklum sviða. Á markaði eru margar tegundir brunaumbúða, sem sumar innihalda sýklaeyðandi efni. Við minnstu bruna geta slíkar umbúðir verið handhægar, en að jafnaði eru þær of dýrar til að nota á stærri bruna, og stundum er ekki auðvelt að koma þeim á, svo vel fari. Meðferð meiriháttar brunasára Hafi sjúklingur greinst með meiriháttar brunasár, fer það nokkuð eftir aðstæðum, hver viðbrögð eru. Sé slysstaður nálægt sjúkrahúsi skal koma sjúklingi þangað, svo fljótt sem kostur er. Hugsanlegt er að vefja hann í votar umbúðir og halda þeim blautum á leiðinni, þó skal fara varlega í að kæta útbreidda bruna, sérlega á börnum, vegna þess aðkælingingeturstuðlaðaðlosti. Þámákæling aldrei tefja lífsbjargandi meðferð. Sé það Ijóst að það muni taka nokkurn tíma, þ.e.a.s. meira en tvær klukku- stundir að koma sjúklingi á meðferðarstað, þarf að byrja meðferð, sem fyrst og fremst er í því fólgin, að gefasjúklingi vökva. Efsjúklingurermeðmeðvitund, á að láta hann drekka eins mikið og hann getur í sig látið, enjafnframt skal hefja vökvagjöf í æð, ef vökvi til innrennslis í æð er fyrir hendi. Þá skal leggja upp þvaglegg, til að fylgjast með þvagútskilnaði. Þegar þvagleggur er lagður, á að tæma blöðruna, mæla það þvag sem stendur og síðan mæla þvagútskilnaðinn á klukkustundar fresti. Deyfa þarf sársauka, og deyfilyf á að gefa í æð, því dreifing lyfja er seinkuð hjá brunasjúklingum. Meðan á flutningi stendur þarf að láta fara eins vel um sj úklinginn og kostur er á. Til þessa eru ti 1 sérhannaðar umbúðir, en séu þær ekki til, reynir á hugkvæmni þeirra sem búa um hinn brennda í að nota það sem fyrir hendi er. Þá er vert að muna, að víðast er hægt að ná símasambandi, við slysa- eðabrunadeild og leitaráða. Meðferð á sjúkrahúsi Þegar sjúklingur með meiriháttar bruna kemur inn á sjúkrahús, er byrjað á því að meta almennt ástand hans, kortleggja stærð brunasáranna og reyna að meta dýpt þeirra. Tekin er sjúkrasaga, ef sjúklingurinn er með meðvitund, annars leitað upplýsinga þeirra sem fylgja honum. í sjúkrasögu þarf að koma fram hvemig slysið skeði, hver brunavaldurinn var og hve lengi hann verkaði. Taka þarf inní sjúkrasögu og skoðun almennt heilsufar hinns brennda og það hvort hann sé undir áhrifum áfengis eða annarra vímugjafa, svo og LÆKNANEMINN 2 1991 44. árg. 7
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.