Læknaneminn - 01.10.1991, Blaðsíða 26
málma í blóði og gera lyfjamælingar. Er það gert í því
augnamiði að athuga hvort um er að ræða
lyfjainntöku, hvort sem hún er af ásetningi eða ekki.
Þó svo að lyfjamælingar séu innan eðlilegra marka
getur það skýrt óráð hjá sumum einstaklingum
einkum eldra fólki (10).
Heilalínurit getur verið hjálplegt við að greina
hvort óráð sé af starfrænni truflun í heila eða vegna
annarrasjúkdóma. Einnig geturheilalínurit sagttil um
hvort óráð sé af völdum bráðrar lyfjaeitrunar eða
einhversannars. Heilalínuritgeturveriðsvipaðíóráði
og heilabilun og þá geta nokkur rit í röð hjálpað til við
að greina þarna á milli (10,12). Tölvusneiðmynd af
höfði ætti að panta ef taugaskoðun sýnir staðbundin
einkenni og einnig ef erfiðlega gengur að finna orsök
fyrir óráðinu (10).
Mænuástungu skal gera ef heilsufarsaga og
skoðun er neikvæð. Eldra fólk með greinda sýkingu
fyrir utan miðtaugakerfið getur verið með óráði án
þess að um heilahimnubólgu sé að ræða. Einnig er
hætta á að menn rugli saman hnakkastífleika og
slitgigt í hálsliðum við mat á heilahimnubólgu. Hér
þarf því að meta hvert tilfelli fyrir sig með tilliti til
þessa (5).
Meðferð
Til að mögulegt sé að veita bestu meðferð við
óráði þarf að greina heilkennið sem fyrst, finna
undirliggjandi orsakir og einnig þarf að vera til staðar
möguleikar á góðri stuðningsmeðferð. Sé óráð greint
nógu snemma og réttri meðferð beitt er það oftast
læknanlegt. Hins vegar ef undirliggjandi þættir eru
ekki leiðréttir getur óráð endað í heilabilun eða
dauða (12).
Oráð er þannig hættulegt ástand sem þarf að
bregðast skjótt við. Byrja þarf á að vökva sjúkling,
leiðrétta elektrólýta og bæta blóðsykur, súrefnis-
mettun eða vítamínskort sjúklings (6,12). Hætta skal
öllum lyfjagjöfum sem ekki teljast bráðnauðsynlegar
(8,9,10,12).
Auk þess að lækna undirliggjandi orsakir óráðs
þarf einnig að setja í gang meðferðaráætlun sem miðar
að því að hindra sjúking í að slasa sig og að útbúa
umhverfi þar sem skynáreiti æsa sjúkling sem
minnst (12).
Best er að hafa sjúkling á vel upplýstri
sjúkrastofu með persónulegum munum hans í
kringum rúmið. Auk þess er gott ef gluggi er á
herberginu og einnig er hjálplegt að hafa á veggnum
klukku eðadagatal svo sjúklingureigi auðvelt með að
fylgjast með tímanum (6,10,12).
Einnig er gott ef hægt er að hafa sjúkling nálægt
vaktherberginu og stundum getur verið nauðsynlegt
að sitja yfir honum og er þá mjög hjálplegt ef
fjölskylda hans er reiðubúin til þess (12).
Reynt skal að nota tækifærið á daginn þegar
sjúklingur er með réttu ráði til að útskýra ástand hans
fyrir honum og segja honum hvar hann er (12).
Lyfjameðferð
Nauðsynlegt getur verið að róa sjúkling með
lyfjum. Yfirleitt er öruggast og gefur besta raun að
nota Haloperidol (Haldol) í slíkum tilfellum. Má þá
gefa frá 0,5-1 mg í æð eða um munn sem
hleðsluskammt þar til sjúklingur róast (6,12). 1
áfengisfráhvarfi er benzodiazepín kjörlyf. I slæmum
Iyfjaeitrunum af völdum andkólínergra lyfja má gefa
fysóstigmín 1 -2mghægtíæðeðavöðvaogendurtaka
skammtinn síðan eftir þörfum. Frábendingar við
þessari meðferð eru saga um hjartasjúkdóma, asthma,
sykursýki, magasár og þvag- eða hægðateppu. Þarf að
gefa það með gát til að forðast krampa og
hjartsláttartruflanir. Ef um er að ræða lifrarbilun má
nota oxazepam eða lorazepam til róunar í lágum
skömmtum (6).
Lokaorð
Oráð er algengt heilkenni og þá sérstaklega hjá
eldra fólki, en getur komið á hvaða aldri sem er og
verið merki um alvarlegan undirliggjandi sjúkdóm.
Það hefur sýnt sig að sjúklingar fá oft óráð inni á
sjúkrahúsi án þess að greinast. Ættu allir læknar og
hjúkrunarfólk að gera sér far um að greina óráð sem
fyrst svo að hægt sé að koma í veg fyrir fylgikvilla
þess, svo sem dauða, heilabilun eða áverka.
Pálmi V. Jónsson lyf- og öldrunarlœknir fœr
bestu þakkirfyrir góðar ábendingar og yfirlestur.
24
LÆKNANEMINN 2 1991 44. árg.