Læknaneminn - 01.10.1991, Blaðsíða 119
Skýrsla Kennslumálanefndar.
I störfum nefndarinnar hefur einna nrest borið á
endurskipulagningukennslunnar. Lagfæra þurfti það
sem betur mátti fara auk þess að skipuleggja þurfti
seinni námsár. Að auki var unnið í ýmsum öðrum
málum og verður hér einungis minnst á það helsta.
Endurskipulagning kennslu í
læknisfræði.
Nú fer í hönd fjórða áriðsem kennsla ídeildinni
ferfram eftirnýju skipulagi. Þeirsem hvað mest hafa
unnið að skipulaginu eru þeir Kristján Erlendsson,
kennslustjóri, auk Guðmundar Þorgeirssonar og
Sigurðar Guðmundssonar.
Tilgangurinn með nýju skipulagi á
kennsluháttum var að auka valmöguleika í náminu,
koma rannsóknarvinnu að í náminu og samræma
kennslu undir svokallað blokkakerfi. Nú þegar
heildarskipulag allra áranna er að komast í endanlegt
horf er Ijóst að ofangreint hefur ígrófum dráttum tekist
þó ýmsar lagfæringar standi enn til.
Kennsla á fyrsta ári gekk svo til snuðrulaust fyrir
sig utantafasem urðu á birtingu einkunna íjanúar. Til
bóta á þessu samþykkti kennslunefnd að engar
einkunnirverðibirtarfyrrennumerusclaususerbirtur
auk þess að ítrekað var að skilafrestur er 4 vikur frá
prófdegi. A öðru ári kom upp, sem fyrr, vandamál
með lífefnafræðiprófið. Vegna anna á fyrra misseri
þykir mönnum ógerningur að taka þetta próf til
viðbótar við lífefna- og líffærafræði og var því á
síðasta ári tekið eitt próf í lífefnafræði að vori. Til að
hafa samræmi milli allra faga var ákveðiði að á
komandi ári verði próf þreytt í ofangreindum þremur
fögum í desember en í staðinn verði (stærri) hluti
námsefnis fyrra misseris fluttur yfir á seinna misseri.
Af þriðja ári var óskað eftir að próf í sýklafræði yrði
flutt fram fyrir páska og var svo gert.
Kennslumálaráðstefna læknanema.
Á vegum nefndarinnar var þann 16. mars
síðastiliðinn haldin n.k. ráðstefna þear sem
nemendum gafst kostur á að ræða og koma á framfæri
hugmyndum varðandi það helsta sem lýtur að kennslu
í deildinni. Mæting var heldur dræm til að byrja með
en úr því rættist er líða tók á daginn.
Rætt var um tilhögun klíníska hluta námsins,
reysnlu endurskipulagningarinnar, vísindaverkefni 4.
námsársins, ráðningakerfið auk húsakynna
læknanema í Læknagarði. Ekki reyndist áhugi á að
fjalla um skoðanakannanir. Niðurstöður þessarra
umræðna voru síðan kynntar í Kennslunefnd
læknadeildar og þær ræddar og því reyndist þetta hin
gagnlegasta ráðstefna.
Lesstofumálið.
Þar sem í skýrslu stjórnar er nánar fjallað um
þetta mál er nóg að nefna hér hlutdeild
Kennslunefndar um málið. Kennslunefndarmenn
gerðu í vor vettvangskönun íLæknagarði og skoðuðu
aðsöðu okkar þar sem við höfum til lestrar.
Niðurstaðan var sú að hún væri deildinni til skammar
og var gengist fyrir að deildin sæi um að beturumbæta
lesaðstöðu okkar og eru þessu gerð skil í skýrslu
stjómarinnar.
Á kennslunefndarráðstefnunni fjölluðu fyrsta
árs nemar um húsakynnin í Læknagarði, þar á meðal
um lesaðstöðu okkar. Þar varlögð fram tillaga aðbetri
nýtingu húsnæðisins á þriðju hæð (aðstaðan fyrir
framan kaffiaðstöðuna). Auk þess kom fram sú óskað
læknanemar hefðu einhverja hlutdeild í
skipulagningu Læknagarðs.
Önnur mál.
Auk ýmissa smærri mála sem afgreidd voru í
nefndinni voru nokkrar nefndir settar á leggirnar. í
hverri þeirra situr auk kennara, fuiltrúi nemenda.
Þessar nefndireru:
Nefnd um einingakerfið.
Aljrjóðasamskiptanefnd.
Nefnd sem fjallar um próffyrirkomulag í deildinni.
Vísindaverkefni 4.árs (í samvinnu við B.S. nefnd).
Ekki verður hér fjallað um starfsemi þessa
nefnda.
Erlend samskipti.
Af erlendum samskiptum er það að segja að við
eigum fulltrúa í NFMU (Nordisk Federation for
Medecinsk Undervisning), Helgu Edwald. NFMU
LÆKNANEMINN 2 1991 44. árg.
117